KALD KALDALON HF.

Kaldalón hf.: Ársreikningur 2025

Kaldalón hf.: Ársreikningur 2025

Ársreikningur Kaldalóns hf. fyrir árið 2025 var samþykktur af stjórn félagsins 4. mars 2026 

Helstu niðurstöður ársins 2025: 

  • Markmið um 100 milljarða króna eignasafn í sjónmáli á grundvelli gildandi samninga 
  • Rekstrarhagnaður og leigutekjur aukast um 24% milli ára 
  • Hagnaður er 3.525 m.kr. fyrir skatta 
  • Handbært fé frá rekstri 2.711 m.kr. 
  • Stjórn leggur til arðgreiðslu sem nemur 1.000 milljónum króna 


 
2025 2024
Rekstrartekjur5.598 4.508
Tekjuvegið útleiguhlutfall afhentra eigna97,6% 97,1%
Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu   4.387 3.548
Rekstrarhagnaðarhlutfall  78,4% 78,7%
Matsbreyting á tímabilinu   3.168 3.991
Heildarhagnaður fyrir skatta3.525 4.311
Arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli12,5% 13,3%
Handbært fé í lok tímabils   1.090 1.727


 


 


 


 
2025  2024
Fjárfestingareignir/fasteignir   84.959 73.444
Heildareignir   86.387 75.823
Vaxtaberandi skuldir   48.092 42.117
Eigið fé   28.104 25.786
Veðsetningarhlutfall   56,6% 57,3%
Eiginfjárhlutfall   32,5% 34,2%

Allar fjárhæðir í milljónum nema annað sé tekið fram.  

Jón Þór Gunnarsson, forstjóri 

Rekstur Kaldalóns gekk vel á árinu 2025 og framgangur var góður. 

Metnaðarfull markmið félagsins eru í sjónmáli. Fyrir þremur árum kynnti félagið áætlun um virðisaukandi vöxt til ársins 2026. Fjárfestingareignir yrðu 100 milljarðar króna eða tekjur á ársgrundvelli 8 milljarðar. Félagið yrði á þeim tímapunkti stórt fasteignafélag á höfuðborgarsvæðinu, með góða áhættudreifingu og sterka viðskiptavini. Sú stærð yrði jafnframt hagkvæm í rekstri fyrir viðskiptavini og hluthafa. 

Félagið hefur fyllilega staðið undir þeim kröfum og væntingum sem sú stefnumörkun skapaði. Stefnan var vissulega sett á umfangsmikinn og hraðann vöxt. Móttaka eigna í eignasafnið hefur gengið vel. Unnið hefur verið þétt með viðskiptavinum að þróun sinnar starfsemi í fasteignum félagsins og uppbyggingu nýrra fasteigna. Þá hefur fjármögnunfélagsins samliða þróast á jákvæðan hátt. Þrátt fyrir umbreytingar- og vaxtarfasa hefur félagið alltaf skilað jákvæðri afkomu og rekstrarhagnaði umfram hrein fjármagnsgjöld. 

Með þeim viðskiptum sem nú eru í frágangi er félagið á áætlun með að ná settum markmiðum. Það er fagnaðarefni. Leiðin að settu marki  hefur litast af aukinni samkeppni og háum vöxtum sem atvinnulífið þarf að glíma við. Kaldalón hefur ávallt fylgt stefnu um arðsemi í viðskiptum og fjárfest í þeim eignaflokkum sem félagið hefur lagt áherslu á. Í ár, þegar Kaldalón hefur náð öllum settum markmiðum, tekur við hlutfallslega hægari vöxtur. Félagið mun engu að síður nýta góð tækifæri á markaði hvort sem er til uppbyggingar á atvinnueignum eða almennra fjárfestinga á tekjuberandi fasteignum. 

Leigutekjur og rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingar jukust um 24% milli ára, eða um 20% umfram verðlag. Afkoman er í samræmi við hækkaða afkomuspá félagsins frá ágúst síðastliðnum. Sterkt og fyrirsjáanlegt tekjustreymi verðtryggðra leigutekna nemur nú um níu ára tekjuveginni lengd leigusamninga. Umsamdar tekjur af leigusamningum félagsins eru jafnframt hærri en allar vaxtaberandi skuldir samstæðunnar. 

Verðtryggðir meðalvextir lækkuðu úr 4,9% í 4,5% þrátt fyrir að meðalálag á löng ríkisskuldabréf á skuldabréfamarkaði hækkaði um 6% milli ára. Þessi árangur næst samhliða tilfærslu úr bankafjármögnun yfir í markaðsskuldabréf. Um 36% af vaxtaberandi skuldum félagsins eru í árslok fjármagnaðar af bönkum, og þess vegna eru  áfram umtalsverð tækifæri til frekari hagræðingar á fjármögnunarhlið Kaldalóns. Félagið er reglulegur útgefandi á skuldabréfamarkaði og samhliða lækkun vaxta mun rekstur skila hærri afkomu. 

Á árinu fjárfesti Kaldalón um 8 milljörðum króna í kaupum og uppbyggingu fasteigna. Félagið hefur komið að byggingu um 27.000 fermetra fasteigna á síðastliðnum tveimur árum. Fasteignasafn Kaldalóns er ungt og er þar með eitt það yngsta meðal þeirra fasteignafélaga sem félagið ber sig saman við. Í lok árs 2025 undirritaði Kaldalón kauptilboð í allar fasteignir FÍ fasteignafélags, og er gert ráð fyrir að viðskiptin geti gengið eftir á öðrum ársfjórðungi 2026. 

Eftirspurn eftir atvinnueignum er metin stöðug. Kaldalón hefur á undanförnum misserum staðið að byggingu fasteigna til að mæta eftirspurn, og eru þær nýbyggingar nú að fullu útleigðar. Félagið horfir því til frekari nýbygginga atvinnueigna á árinu 2026 til að mæta áframhaldandi eftirspurn. 

Eitt af markmiðum Kaldalóns til lengri tíma er að félagið verði fyrsti valkostur atvinnulífsins að leita til í þeim fasteignaflokkum sem félagið leggur áherslu á. Við finnum fyrir miklum meðbyr á þeirri vegferð þar sem fyrirtæki leita nú í auknum mælum til Kaldalóns fyrst til að leysa sínar húsnæðisþarfir. 

Árangur og afkoma Kaldalóns á árinu 2025 var með ágætum. Tekjuvöxtur var í samræmi við áætlanir og kostnaðarhlutfall hélst óbreytt. Félagið mun á vormánuðum búa yfir um 170.000 fermetra fasteignasafni á höfuðborgarsvæðinu, með hátt útleiguhlutfall og sterkt, verðtryggt langtíma tekjustreymi. Samhliða hefur félagið fjárfest í nýjum eignum og undirbýr frekari nýframkvæmdir til að mæta eftirspurn atvinnulífsins eftir þjónustu Kaldalóns.“  

Ársreikningur 2025 

Skýrsla stjórnar og forstjóra félagsins er að finna í ársreikningi félagsins. Ársreikningur er gerður í samræmi við reikningsskilastaðla (IFRS). 

Horfur ársins 2026 

Horfur í rekstri félagsins fyrir árið 2026 eru góðar. Félagið gerir ráð fyrir að rekstrartekjur verði á bilinu 6.200 – 6.350 m.kr. og rekstrarhagnaður ársins nemi 4.860 – 5.030 m.kr. Sú spá gerir ráð fyrir 4,3% hækkun verðlags milli ára og sambærilegu nýtingarhlutfalli. Spáin gerir ekki ráð fyrir kaupum á fasteignum FÍ fasteignafélags sem tilkynnt var um þann 15. desember síðastliðinn. Í ofangreindri spá er ekki gert ráð fyrir tekjum af nýjum fjárfestingum á árinu 2026, slíkar fyrirhugaðar fjárfestingar koma því til viðbótar. 

Horfur í rekstri verða uppfærðar þegar tilefni gefur til. 

Aðalfundur 2026 

Aðalfundur félagsins verður haldinn kl. 16:00, fimmtudaginn 26. mars 2026 á Hótel Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, 102 Reykjavík. 

Tillaga um arðgreiðslu 

Tillaga stjórnar er að 1.000 milljónir króna verði greiddar í arð til hluthafa fyrir rekstrarárið. Tillaga að arðgreiðslu er í samræmi við þau viðmið sem kynnt hafa verið fjárfestum. Nánari upplýsingar um tillöguna sem lögð verður fyrir hluthafa á aðalfundi félagsins, sem fyrirhugaður er þann 26. mars n.k. verða í fundarboði aðalfundar. 

Árs- og sjálfbærniskýrsla 

Árs- og sjálfbærniskýrsla verður gefin út fyrir aðalfund félagsins.  

Frekari upplýsingar

Jón Þór Gunnarsson

Forstjóri





 

Viðhengi



EN
04/03/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on KALDALON HF.

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Annual General Meeting 26 March 2026

Kaldalón hf.: Annual General Meeting 26 March 2026 The Board of Directors of Kaldalón hf. hereby announces that the Annual General Meeting of the company will be held on Thursday, March 26, 2026, at 16:00 GMT. The meeting will be held at Reykjavík Natura, Nauthólsvegur 52, 101 Reykjavík. Enclosed is the agenda for the Annual General Meeting.  Meeting documents and further information concerning the meeting is available on the website . Attachment

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Aðalfundur 26. mars 2026

Kaldalón hf.: Aðalfundur 26. mars 2026 Stjórn Kaldalóns hf. boðar til aðalfundar í félaginu fimmtudaginn 26. mars 2026 kl. 16:00. Fundurinn verður haldinn á á Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, 101 Reykjavík. Meðfylgjandi er fundarboð aðalfundar og dagskrá.  Gögn fundar má jafnframt finna á  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Financial Statements 2025

Kaldalón hf.: Financial Statements 2025 The annual accounts of Kaldalón hf. for the year 2025 were approved by the company's board of directors on 4 March 2026. Key highlights of the 2025 Annual Accounts: Target of a ISK 100 billion property portfolio within reach based on existing agreementsOperating profit and rental income increased by 24% year-on-yearProfit before tax amounted to ISK 3,525 millionCash generated from operations amounted to ISK 2,711 millionThe Board of Directors proposes a dividend payment of ISK 1,000 million  2025 2024Operating revenues5,598 4,508Revenue Weighted occ...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Ársreikningur 2025

Kaldalón hf.: Ársreikningur 2025 Ársreikningur Kaldalóns hf. fyrir árið 2025 var samþykktur af stjórn félagsins 4. mars 2026  Helstu niðurstöður ársins 2025:  Markmið um 100 milljarða króna eignasafn í sjónmáli á grundvelli gildandi samninga  Rekstrarhagnaður og leigutekjur aukast um 24% milli ára  Hagnaður er 3.525 m.kr. fyrir skatta  Handbært fé frá rekstri 2.711 m.kr.  Stjórn leggur til arðgreiðslu sem nemur 1.000 milljónum króna   2025 2024Rekstrartekjur5.598 4.508Tekjuvegið útleiguhlutfall afhentra eigna97,6% 97,1%Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu   4.387 3.548Rekstrarhagnaðar...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Routine Announcement Regarding Share Buybacks Pursuant t...

Kaldalón hf.: Routine Announcement Regarding Share Buybacks Pursuant to Buyback Program – End of Buyback In week 10 of 2026, Kaldalón hf. purchased 200,000 of its own shares for a total consideration of ISK 5.480,000 as detailed below:  DateTimePurchased sharesShare pricePurchase priceOwn shares after transaction 2.3.202614:11:58189,16327.45,183,06624,280,9812.3.202614:41:3710,83727.4296,93424,291,818  200,000 15,480,000  The transactions are carried out under Kaldalón hf.’s share repurchase programme, which was announced on Nasdaq Iceland on 6 January 2026. The buyback program has now been...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch