KVIKA Kvika banki hf

Kvika banki hf.: Afkomutilkynning fyrir fyrri árshelming 2020

Kvika banki hf.: Afkomutilkynning fyrir fyrri árshelming 2020

Kvika banki hf.: Afkomutilkynning fyrir fyrri árshelming 2020

Á stjórnarfundi þann 20. ágúst 2020 samþykktu stjórn og forstjóri árshlutareikning samstæðu Kviku banka hf. fyrir tímabilið 1. janúar 2020 til 30. júní 2020. 

Helstu atriði úr árshlutareikningi á fyrri árshelmingi 2020

  • Hagnaður fyrir skatta nam 1.016 milljónum króna
  • Hagnaður eftir skatta nam 924 milljónum króna
  • Arðsemi eigin fjár eftir skatta nam 11,8%
  • Hagnaður á hlut nam 0,47 krónum
  • Hreinar rekstrartekjur námu 4.147 milljónum króna
  • Rekstrarkostnaður nam 2.671 milljón króna
  • Heildareignir námu 113,1 milljarði króna
  • Eigið fé samstæðunnar nam 16,7 milljörðum króna
  • Eiginfjárhlutfall í lok júní var 26,2% með tilliti til arðgreiðslustefnu
  • Lausafjárþekja (LCR) var 221%
  • Heildareignir í stýringu námu 514 milljörðum króna
  • Starfsmenn í fullu starfi voru 145 í lok júní

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn í höfuðstöðvum Kviku, Katrínartúni 2, 105 Reykjavík kl. 11:45 föstudaginn 21. ágúst. Meðfylgjandi er fjárfestakynning.

Sterkur rekstur í erfiðu árferði

Hagnaður Kviku banka hf. fyrir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins 2020 nam 1.016 milljónum króna og var nokkuð yfir áætlun tímabilsins. Hagnaður eftir skatta nam 924 milljónum króna. Arðsemi eigin fjár á tímabilinu var 11,8% en arðsemi eigin fjár á öðrum ársfjórðungi nam 15,1%.

Hreinar vaxtatekjur námu 868 milljónum króna og jukust um 3% á milli ára. Hreinar þóknanatekjur námu 3.013 milljónum króna og jukust um 3% á milli ára. Fjárfestingartekjur námu 222 milljónum króna og drógust saman um 41% á milli ára. Hrein virðisbreyting var neikvæð um 209 milljónir króna og skýrist að mestu leyti af varúðarfærslum vegna COVID-19.

Rekstrarkostnaður nam 2.671 milljón króna á fyrstu sex mánuðum ársins og hækkaði um 0,5% á milli ára, sem var í samræmi við áætlanir.

Traust eiginfjárstaða og hátt hlutfall lausafjáreigna

Í lok júní 2020 námu heildareignir 113,1 milljarði króna samanborið við 105,6 milljarða króna í lok árs 2019. Útlán til viðskiptavina námu 30,3 milljörðum króna í lok júní og jukust um 0,2 milljarða króna á tímabilinu. Lausafjárstaða bankans er sterk en handbært fé og innstæður í Seðlabanka námu 26,9 milljörðum króna í lok júní en því til viðbótar námu ríkistryggð skuldabréf 24,5 milljörðum króna. Lausafjárhlutfall var 221% í lok júní samanborið við 246% í lok árs 2019 og var vel umfram kröfur um 100% lágmarksþekju.

Eigið fé nam 16,7 milljörðum króna og var eiginfjárhlutfall 26,2% að teknu tilliti til 25% arðgreiðslustefnu (26,7% án tillits til arðgreiðslustefnu), samanborið við 24,1% í lok árs 2019 og var talsvert umfram 20,6% eiginfjárkröfu eftirlitsaðila sem síðast var uppfærð þann 18. mars 2020.

Afkomuáætlun Kviku er óbreytt og gerir áfram ráð fyrir að hagnaður á árinu verði á bilinu 1.700 – 2.300 milljónir króna fyrir skatta.

Eignastýringarstarfsemi í Bretlandi stækkuð

Í júní gekk breska félagið KKV Investment Management Ltd., dótturfélag Kvika Securities Ltd., sem er dótturfélag Kviku banka hf., frá samningum um stýringu á tveimur breskum veðlánasjóðum. Samtals var hrein eign (e. Net Asset Value) sjóðanna rúmlega £394 milljónir, andvirði um 67 milljarða króna í lok júní. Heildareignir í stýringu Kviku námu 514 milljörðum króna í lok júní og hafa aukist um 88 milljarða króna á tímabilinu.

Eignarhlutur í Korta seldur

Í apríl var undirritaður samningur um sölu á öllum eignarhlut Kviku í Korta hf. til breska fjártæknifélagsins Rapyd. Núverandi mat bankans á endanlegu kaupverði fyrir eignarhlut bankans í Korta er að það verði í samræmi við bókfært virði hlutarins um s.l. áramót og muni því ekki hafa áhrif á afkomu bankans á þessu rekstrarári.

Marinó Örn Tryggvason forstjóri Kviku:

,,Ég er stoltur af afkomu bankans á fyrri hluta ársins. Á undanförnum árum hefur markvisst verið unnið að því að breikka tekjugrunninn og það er því ánægjulegt að sjá að bankinn er að skila góðri rekstrarniðurstöðu í krefjandi umhverfi.

Það er mikil óvissa í íslensku efnahagslífi en Kvika er í góðri stöðu til þess að vinna með núverandi og nýjum viðskiptavinum. Töluvert uppbyggingarstarf er framundan í íslensku atvinnulífi en vaxtastig hefur lækkað mikið og er líklegt að áhrif þess á verðmæti eigna hafi ekki komið fram að fullu. Bankinn rekur öfluga eignastýringarstarfsemi, verðbréfamiðlun og fyrirtækjaráðgjöf ásamt sérhæfðri bankaþjónustu. Þetta eru áhugaverðir tímar fyrir öll svið bankans og geta þau gegnt mikilvægu hlutverki í nauðsynlegri viðspyrnu íslensks efnahagslífs.

Á undanförnum árum hefur verið lögð sérstök áhersla á að byggja upp eignastýringarstarfsemi bankans. Umsvif í eignastýringu hafa haldið áfram að aukast á árinu. Það er sérstaklega ánægjulegt að eignir í stýringu dótturfélags Kviku í Bretlandi hafa vaxið umtalsvert.

Ég vil þakka starfsfólki bankans fyrir hvernig því hefur tekist að halda áfram að ná góðum árangri í erfiðu ytra umhverfi. Ég er stoltur af því að vera hluti af þessum öfluga hópi starfsmanna. Mikilvægt er að starfsfólk fjármálafyrirtækja haldi áfram að þjónusta viðskiptavini og leggi sig fram við að fjármagna nauðsynlega uppbyggingu atvinnulífsins.“

 

Viðhengi

EN
20/08/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Kvika banki hf

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Merger between Kvika banki and Arion banki will not t...

Kvika banki hf.: Merger between Kvika banki and Arion banki will not take place The preliminary discussions between Kvika banki hf. and Arion banki hf. with the Competition Authority regarding the proposed merger have now concluded. Representatives of Kvika banki and Arion banki met with representatives of the Competition Authority today, during which the authority presented its position following the completion of the preliminary discussions process. In light of the position expressed by the Competition Authority at the meeting, the Boards of Directors of Kvika banki and Arion banki have...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Ekki verður af samruna Kviku banka og Arion banka

Kvika banki hf.: Ekki verður af samruna Kviku banka og Arion banka Forviðræðum Kviku banka og Arion banka við Samkeppniseftirlitið vegna samrunaáforma félaganna er lokið. Í dag funduðu fulltrúar Kviku banka og Arion banka með fulltrúum Samkeppniseftirlitsins sem kynnti afstöðu sína að loknum forviðræðum. Í ljósi þeirrar afstöðu Samkeppniseftirlitsins sem fram kom á fundinum telja stjórnir Kviku banka og Arion banka að ekki geti orðið af samruna félaganna. Stjórnir bankanna hafa því fallið frá samrunaáformum sem upplýst var um í tilkynningu til Kauphallar þann 6. júlí 2025.   Ármann ...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Announcement regarding reduction in share capital

Kvika banki hf.: Announcement regarding reduction in share capital At Kvika's AGM held on 18 March 2026 the meeting approved to reduce the company's share capital by ISK 301,000,000 nominal value, or the equivalent of 301,000,000 shares, from ISK 4,631,000,000 to ISK 4,330,000,000 nominal value, by cancelling own shares held by the company in the said amount, 301,000,000 shares. These are shares that the company purchased under a formal buy-back programme from last AGM. The share capital reduction has now been registed by the register of undertakings of the Directorate of internal Revenue...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Tilkynning um lækkun hlutafjár

Kvika banki hf.: Tilkynning um lækkun hlutafjár Á aðalfundi Kviku sem haldinn var þann 18. mars 2026 var samþykkt að lækka hlutafé félagsins um 301.000.000 kr. að nafnvirði, eða sem nemur 301.000.000 hlutum, úr 4.631.000.000 kr. í 4.330.000.000 kr. að nafnvirði, með ógildingu eigin hluta félagsins að 301.000.000 hlutum. Um er að ræða hluti sem voru keyptir samkvæmt formlegri endurkaupaáætlun frá síðasta aðalfundi. Hlutafjárlækkunin hefur nú verið skráð hjá fyrirtækjaskrá Skattsins og hlutafé félagsins stendur í kr. 4.330.000.000. Eftir lækkun á bankinn 7.236.463 eigin hluti. 

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Decisions of AGM

Kvika banki hf.: Decisions of AGM The Annual General Meeting of Kvika banki hf. was held on 18 March 2026 at Iceland Parliament Hotel. Attached are the main results of the meeting. Attachment

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch