Kvika banki hf.: Ekki verður af samruna Kviku banka og Arion banka
Forviðræðum Kviku banka og Arion banka við Samkeppniseftirlitið vegna samrunaáforma félaganna er lokið. Í dag funduðu fulltrúar Kviku banka og Arion banka með fulltrúum Samkeppniseftirlitsins sem kynnti afstöðu sína að loknum forviðræðum.
Í ljósi þeirrar afstöðu Samkeppniseftirlitsins sem fram kom á fundinum telja stjórnir Kviku banka og Arion banka að ekki geti orðið af samruna félaganna. Stjórnir bankanna hafa því fallið frá samrunaáformum sem upplýst var um í tilkynningu til Kauphallar þann 6. júlí 2025.
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:
„Mikil vinna hefur verið lögð í forviðræður bankanna við Samkeppniseftirlitið síðastliðna mánuði og vil ég þakka Arion banka fyrir uppbyggilegt og gott samstarf. Viðræður síðustu mánaða hafa verið gagnlegar að því leyti að nú liggur endanlega fyrir að ekki verður af samruna Kviku við stóru viðskiptabankana. Í ljósi þess hve samruni við Arion hefði getað skapað mikil verðmæti fyrir hluthafa og viðskiptavini töldum við eðlilegt að kanna hvort slíkur samruni gæti orðið að veruleika. Nú liggur niðurstaða forviðræðna fyrir og Kvika heldur ótrauð áfram á sinni spennandi vegferð. Bankinn hefur á að skipa öflugu starfsfólki, tryggum viðskiptavinum, fjölbreyttum traustum vörumerkjum og býr yfir miklum vaxtartækifærum bæði á Íslandi og í Bretlandi.
Eins og fram kom í afkomukynningu okkar þann 11. febrúar síðastliðinn er eiginfjárstaða bankans gríðarsterk og til staðar er umtalsvert svigrúm til að skila verulegum fjármunum til hluthafa. Kvika gerir ráð fyrir að boða til hlutafafundar á næstunni þar sem stjórn bankans hyggst leggja til að samþykkt verði sérstök arðgreiðsla til hluthafa.“
Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi er tilkynning á innherjaupplýsingum í samræmi við 7. gr. reglugerðar (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), sem var veitt lagagildi hérlendis með lögum um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
