KVIKA Kvika banki hf

Kvika banki hf.: Uppgjör Kviku banka hf. fyrir árið 2020

Kvika banki hf.: Uppgjör Kviku banka hf. fyrir árið 2020

Á stjórnarfundi þann 17. febrúar 2021 samþykktu stjórn og forstjóri ársreikning samstæðu Kviku banka hf. fyrir árið 2020.

Helstu atriði úr ársreikningi

  • Hagnaður fyrir skatta nam 2.339 milljónum króna
  • Hagnaður eftir skatta nam 2.273 milljónum króna
  • Arðsemi eigin fjár eftir skatta nam 14,2%
  • Hagnaður á hlut nam 1,10 krónum
  • Hreinar rekstrartekjur námu 8.666 milljónum króna
  • Rekstrarkostnaður nam 5.724 milljónum króna
  • Heildareignir námu 123,2 milljörðum króna
  • Eigið fé samstæðunnar nam 19,2 milljörðum króna
  • Eiginfjárhlutfall var 28,3% að teknu tilliti til arðgreiðslustefnu
  • Lausafjárþekja (LCR) var 266%
  • Heildareignir í stýringu námu 527 milljörðum króna
  • Starfsmenn í fullu starfi voru 160 í lok árs

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn fimmtudaginn 18. febrúar kl. 11:30. Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum bankans, Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Léttar veitingar verða í boði. Meðfylgjandi er fjárfestakynning.

Fyrirmælum yfirvalda vegna samkomutakmarkana verður fylgt í hvívetna og eru fundargestir beðnir um að boða komu sína fyrirfram á netfangið . Fundinum verður jafnframt streymt: .

Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fund eða á meðan á honum stendur á .

Góð afkoma og vöxtur í öllum tekjustofnum

Hagnaður Kviku banka hf. fyrir skatta á árinu 2020 nam 2.339 milljónum króna og var lítillega yfir uppfærðri afkomuspá bankans sem hljóðaði upp á 2.000 - 2.300 m.kr. hagnað fyrir skatta. Hagnaður eftir skatta nam 2.273 milljónum króna. Arðsemi eigin fjár á árinu var 14,2% en arðsemi eigin fjár á fjórða ársfjórðungi nam 21,9%.

Hreinar vaxtatekjur námu 1.800 milljónum króna og jukust lítillega á milli ára. Hreinar þóknanatekjur námu 5.956 milljónum króna og jukust um 24% á milli ára. Fjárfestingartekjur námu 833 milljónum króna og jukust um 25% á milli ára. Hrein virðisbreyting var neikvæð um 317 milljónir króna og skýrist að hluta af varúðarfærslum vegna COVID-19.

Rekstrarkostnaður nam 5.724 milljónum króna og hækkaði um 13% á milli ára. Hækkunin skýrist að mestu leyti vegna stofnunar á KKV í London á árinu 2020 sem og einskiptiskostnaðar vegna kaupa á Netgíró hf. og fyrirhugaðrar sameininingar við TM hf. og Lykil fjármögnun hf.

Efnahagsreikningur stækkar á milli ára en stærð útlánasafns er lítið breytt

Í lok árs 2020 námu heildareignir 123,2 milljörðum króna samanborið við 105,6 milljarða króna í lok árs 2019. Útlán til viðskiptavina námu 29,3 milljörðum króna í lok árs og drógust saman um 0,8 milljarða króna á árinu. Handbært fé og innstæður í Seðlabanka námu 28,9 milljörðum króna í lok árs en því til viðbótar námu ríkistryggð skuldabréf 33,0 milljörðum króna. Lausafjárstaða bankans er því mjög sterk og var lausafjárhlutfall 266% í lok árs samanborið við 246% í lok árs 2019 og var langt umfram kröfur um 100% lágmarksþekju. Stefnt er að lækkun hlutfallsins á næstu mánuðum en það er töluvert umfram langtímamarkmið bankans.

Eigið fé nam 19,2 milljörðum króna og var áhættuvegið eiginfjárhlutfall 28,3% samanborið við 24,1% í lok árs 2019. Var eiginfjárhlutfallið talsvert umfram 20,6% eiginfjárkröfu eftirlitsaðila, sem síðast var uppfærð þann 18. mars 2020.

Afkoma 2021 áætluð 2.600 - 3.000 milljónir króna fyrir skatta

Áætlunin gerir ráð fyrir að hagnaður fyrir skatta verði á bilinu 2.600 – 3.000 milljónir króna. Afkoma bankans getur vikið frá áætlun, meðal annars vegna markaðsaðstæðna og annarra ófyrirséða atburða.

Stefnt er að samruna við TM hf. og Lykil fjármögnun hf. sem áætlað er að verði fyrir lok fyrsta ársfjórðungs. Þar sem eftirlitsaðilar og hlutahafafundir félaganna hafa ekki samþykkt samrunann þá gerir áætlunin ekki ráð fyrir honum. Ef af samruna verður munu forsendur áætlunar breytast verulega. Eftir samruna verður birt ný áætlun sameinaðs félags.

Fyrirhuguð sameining Kviku banka hf. og TM hf.

Þann 28. september samþykktu stjórnir Kviku banka hf. og TM hf. að hefja viðræður um sameiningu félaganna. Hluthafar í TM hf. fá sem endurgjald fyrir hlutabréf sín 2.509.934.076 hluti í sameinuðu félagi. Sameiningin er háð samþykki eftirlitsaðila og hluthafa en gert er ráð fyrir að boða til hluthafafundar í báðum félögum fyrir lok mars.

Marinó Örn Tryggvason forstjóri Kviku banka hf.:

„Árið 2020 fól í sér margar áskoranir fyrir fólk og fyrirtæki. Ég er stoltur af samstarfsfólki mínu sem hefur staðið sig einstaklega vel í að takast á við þessar áskoranir. Niðurstaðan kemur fram í rekstri bankans sem gekk vonum framar á síðasta ári.

Á undanförnum árum hefur Kvika breyst úr því að vera lítill banki í að verða öflugt fjármálafyrirtæki. Reksturinn gengur vel og fjárhagsstaða bankans er sterk. Félagið stendur nú á tímamótum því fyrirhuguð er sameining við TM hf. og Lykil fjármögnun hf. Sameinað félag verður eitt öflugasta félag landsins sem hefur allar forsendur til að ná árangri með aukinni samkeppni og nýjungum fyrir viðskiptavini. Það eru spennandi tímar framundan.“



Viðhengi



EN
17/02/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Kvika banki hf

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Merger between Kvika banki and Arion banki will not t...

Kvika banki hf.: Merger between Kvika banki and Arion banki will not take place The preliminary discussions between Kvika banki hf. and Arion banki hf. with the Competition Authority regarding the proposed merger have now concluded. Representatives of Kvika banki and Arion banki met with representatives of the Competition Authority today, during which the authority presented its position following the completion of the preliminary discussions process. In light of the position expressed by the Competition Authority at the meeting, the Boards of Directors of Kvika banki and Arion banki have...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Ekki verður af samruna Kviku banka og Arion banka

Kvika banki hf.: Ekki verður af samruna Kviku banka og Arion banka Forviðræðum Kviku banka og Arion banka við Samkeppniseftirlitið vegna samrunaáforma félaganna er lokið. Í dag funduðu fulltrúar Kviku banka og Arion banka með fulltrúum Samkeppniseftirlitsins sem kynnti afstöðu sína að loknum forviðræðum. Í ljósi þeirrar afstöðu Samkeppniseftirlitsins sem fram kom á fundinum telja stjórnir Kviku banka og Arion banka að ekki geti orðið af samruna félaganna. Stjórnir bankanna hafa því fallið frá samrunaáformum sem upplýst var um í tilkynningu til Kauphallar þann 6. júlí 2025.   Ármann ...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Announcement regarding reduction in share capital

Kvika banki hf.: Announcement regarding reduction in share capital At Kvika's AGM held on 18 March 2026 the meeting approved to reduce the company's share capital by ISK 301,000,000 nominal value, or the equivalent of 301,000,000 shares, from ISK 4,631,000,000 to ISK 4,330,000,000 nominal value, by cancelling own shares held by the company in the said amount, 301,000,000 shares. These are shares that the company purchased under a formal buy-back programme from last AGM. The share capital reduction has now been registed by the register of undertakings of the Directorate of internal Revenue...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Tilkynning um lækkun hlutafjár

Kvika banki hf.: Tilkynning um lækkun hlutafjár Á aðalfundi Kviku sem haldinn var þann 18. mars 2026 var samþykkt að lækka hlutafé félagsins um 301.000.000 kr. að nafnvirði, eða sem nemur 301.000.000 hlutum, úr 4.631.000.000 kr. í 4.330.000.000 kr. að nafnvirði, með ógildingu eigin hluta félagsins að 301.000.000 hlutum. Um er að ræða hluti sem voru keyptir samkvæmt formlegri endurkaupaáætlun frá síðasta aðalfundi. Hlutafjárlækkunin hefur nú verið skráð hjá fyrirtækjaskrá Skattsins og hlutafé félagsins stendur í kr. 4.330.000.000. Eftir lækkun á bankinn 7.236.463 eigin hluti. 

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Decisions of AGM

Kvika banki hf.: Decisions of AGM The Annual General Meeting of Kvika banki hf. was held on 18 March 2026 at Iceland Parliament Hotel. Attached are the main results of the meeting. Attachment

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch