REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt

REITIR: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt

Reitir hafa endurnýjað samning sinn við Arion banka hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af félaginu sem skráð eru á aðalmarkað NASDAQ Iceland.

Samningurinn kveður á um að Arion skuli hvern viðskiptadag leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi Kauphallarinnar áður en markaðurinn er opnaður. Tilboðin skulu gilda innan dagsins. Verði tilboði Arion tekið eða verði það fellt niður af hálfu Arion skal Arion setja fram nýtt tilboð þar til hámarksfjárhæð viðskipta fyrir hvern dag hefur verið náð. Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu eða þau felld niður af hálfu Arion.

Kaup- og sölutilboð skulu vera að lágmarki í 200.000 hluti að nafnvirði á gengi sem Arion ákveður. Tilboðin verða lögð fram í tveimur hlutum. Annars vegar að minnsta kosti 10.000 hlutir með verðbili að hámarki 1,5% og hins vegar að lágmarki 190.000 hlutir með verðbili sem skal vera sem næst 1,5%, en ekki lægra en 1,45%. Báðir hlutarnir verða ákveðnir með hliðsjón af verðskrefatöflu Kauphallarinnar. Arion er þó heimilt að setja fram tilboð með lægra verðbili í A og B hluta ef sérstakar aðstæður skapast vegna verðskrefatöflunnar. Eigi Arion viðskipti með bréf félagsins samkvæmt samningnum fyrir 75.000.000 kr. að markaðsvirði eða meira innan dags, falla niður skyldur um hámarksmun kaup- og sölutilboða innan þess dags.

Samningurinn er ótímabundinn og kemur til framkvæmda frá og með 21. mars 2025. Samningurinn er uppsegjanlegur af beggja hálfu með 14 daga fyrirvara.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669-4416 eða á netfangið .



EN
20/03/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: Flöggun - LSR

REITIR: Flöggun - LSR Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins  Viðhengi

 PRESS RELEASE

REITIR: Flöggun - Brimgarðar ehf.

REITIR: Flöggun - Brimgarðar ehf. Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun frá Brimgörðum ehf. Viðhengi

 PRESS RELEASE

REITIR: Flöggun - Íslandsbanki hf.

REITIR: Flöggun - Íslandsbanki hf. Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun frá Íslandsbanka Viðhengi

Reitir Fasteignafelag Hf: 1 director

A director at Reitir Fasteignafelag Hf bought 750,000 shares at 116.000ISK and the significance rating of the trade was 100/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two...

 PRESS RELEASE

REITIR: Niðurstöður aðalfundar 2026

REITIR: Niðurstöður aðalfundar 2026 Miðvikudaginn 25. mars 2026 var aðalfundur Reita fasteignafélags hf. haldinn á Hilton Reykjavík Nordica. Fundurinn hófst kl. 15.00. Tillögur þær sem lágu fyrir á fundinum má finna á vefsíðu félagsins Niðurstöður fundarins urðu eftirfarandi: 1. Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsárAðalfundur samþykkti ársreikning og samstæðureikning félagsins vegna ársins 2025. 2. Ráðstöfun hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsáriTillaga stjórnar um að greiða út arð að fjárhæð 3,9 kr. fyrir hverja krónu nafnverðs útistandandi hlutafjár í...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch