REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Niðurstöður aðalfundar 2026

REITIR: Niðurstöður aðalfundar 2026

Miðvikudaginn 25. mars 2026 var aðalfundur Reita fasteignafélags hf. haldinn á Hilton Reykjavík Nordica. Fundurinn hófst kl. 15.00.

Tillögur þær sem lágu fyrir á fundinum má finna á vefsíðu félagsins

Niðurstöður fundarins urðu eftirfarandi:

1. Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár

Aðalfundur samþykkti ársreikning og samstæðureikning félagsins vegna ársins 2025.

2. Ráðstöfun hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsári

Tillaga stjórnar um að greiða út arð að fjárhæð 3,9 kr. fyrir hverja krónu nafnverðs útistandandi hlutafjár í félaginu vegna rekstrarársins 2025, eða um 2.672 milljónir kr., var samþykkt. Arðurinn verður greiddur í tveimur hlutum.

Fyrri hluti arðgreiðslu nemur 2,3 kr. á hlut. Arðleysisdagur verður 26. mars 2026 og arðsviðmiðunardagur 27. mars 2026. Fyrri arðgreiðsludagur verður 17. apríl 2026.

Síðari hluti arðgreiðslu nemur 1,6 kr. á hlut. Arðleysisdagur verður 16. september 2026 og arðsviðmiðunardagur 17. september 2026. Síðari arðgreiðsludagur verður 24. september 2026.

3. Heimild til kaupa á eigin bréfum

Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um heimild til kaupa á allt að 10% af eigin bréfum.

4. Tillaga um lækkun hlutafjár til jöfnunar á eigin hlutum

Tillaga um lækkun hlutafjár úr 697.000.000 kr. í 684.000.000 og tilheyrandi breyting á 4. gr. samþykkta félagsins var samþykkt.

5. Tillaga um breytingu á samþykktum

Aðalfundur samþykkti tillögur stjórnar um breytingu á samþykktum félagsins. Nafni félagsins er breytt og heitir félagið nú Reitir hf. Aðrar breytingar snúa að lækkun hlutafjár, heimild til kaupa á eigin bréfum og ráðstöfun eigin bréfa.

6. Tillaga um óbreytta starfskjarastefnu félagsins samþykkt

Aðalfundur samþykkti tillögur stjórnar um að framlögð starfskjarastefna yrði samþykkt en stefnan er óbreytt frá þeirri starfskjarastefnu sem samþykkt var á aðalfundi árið 2025.

7. Skipun nefndarmanna í tilnefningarnefnd

Aðalfundur staðfesti skipun Auðar Þórisdóttur, Hilmars G. Hjaltasonar og Stefáns Árna Auðólfssonar í tilnefningarnefnd félagsins.

8. Kosning utanaðkomandi nefndarmanns í endurskoðunarnefnd

Aðalfundur staðfesti skipun Helgu Harðardóttur, endurskoðanda, sem utanaðkomandi nefndarmann í endurskoðunarnefnd.

9. Kjör stjórnarmanna félagsins

Eftirtaldir aðilar voru sjálfkjörnir í stjórn félagsins: 

Anna Kristín Pálsdóttir, Árni Sigurjónsson, Elín Árnadóttir, Kristinn Albertsson og Pálmar Óli Magnússon.

10. Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags

Aðalfundur staðfesti tillögu um að Deloitte ehf. yrði áfram endurskoðunarfélag félagsins.

11. Ákvörðun um laun stjórnar, undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar fyrir komandi starfsár

Aðalfundur félagsins samþykkti að mánaðarleg stjórnarlaun fyrir komandi starfsár skuli vera 470.000 kr. fyrir stjórnarmenn en laun stjórnarformanns verði tvöföld stjórnarlaun. Þóknun nefndarmanna í endurskoðunarnefnd verði 120.000 kr. á mánuði og þóknun formanns nefndarinnar verði 200.000 kr. á mánuði. Þóknun nefndarmanna í starfskjaranefnd verði 60.000 kr. á mánuði og þóknun formanns nefndarinnar verði 110.000 kr. á mánuði. Fyrir störf í tilnefningarnefnd fái nefndarmenn greiddar 1.000.000 kr. fyrir starfsárið, en formaður fái greiddar 1.500.000 kr. fyrir starfsárið.

Greiðslur til endurskoðenda skulu vera samkvæmt reikningi.

12. Önnur mál

Engin önnur mál voru tekin til afgreiðslu á fundinum og var honum slitið kl. 16:22.



EN
25/03/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

Reitir Fasteignafelag Hf: 1 director

A director at Reitir Fasteignafelag Hf bought 750,000 shares at 116.000ISK and the significance rating of the trade was 100/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two...

 PRESS RELEASE

REITIR: Niðurstöður aðalfundar 2026

REITIR: Niðurstöður aðalfundar 2026 Miðvikudaginn 25. mars 2026 var aðalfundur Reita fasteignafélags hf. haldinn á Hilton Reykjavík Nordica. Fundurinn hófst kl. 15.00. Tillögur þær sem lágu fyrir á fundinum má finna á vefsíðu félagsins Niðurstöður fundarins urðu eftirfarandi: 1. Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsárAðalfundur samþykkti ársreikning og samstæðureikning félagsins vegna ársins 2025. 2. Ráðstöfun hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsáriTillaga stjórnar um að greiða út arð að fjárhæð 3,9 kr. fyrir hverja krónu nafnverðs útistandandi hlutafjár í...

 PRESS RELEASE

REITIR: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda

REITIR: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda Sjá meðfylgjandi tilkynningu Viðhengi

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 12 - Lok endurkaupaáætluna...

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 12 - Lok endurkaupaáætlunar Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 16. febrúar 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 17. febrúar 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 12. viku 2026 keypti Reitir fasteignafélag hf. 680.000 e...

 PRESS RELEASE

REITIR: Viðauki við skýrslu tilnefningarnefndar Reita fasteignafélags ...

REITIR: Viðauki við skýrslu tilnefningarnefndar Reita fasteignafélags hf. til aðalfundar Meðfylgjandi er viðauki II við skýrslu tilnefningarnefndar Reita fasteignafélags hf. til aðalfundar. Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch