REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 15
Stjórn Reita hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 8. apríl 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 9. apríl 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 15. viku 2026 keyptu Reitir hf. 150.000 eigin hluti að kaupverði 17.250.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Gengi | Kaupverð |
| 9/4/26 | 11:21 | 50.000 | 115,00 | 5.750.000 |
| 9/4/26 | 14:08 | 50.000 | 115,00 | 5.750.000 |
| 10/4/26 | 11:11 | 50.000 | 115,00 | 5.750.000 |
| Samtals | 150.000 | 17.250.000 |
Reitir hafa nú keypt samtals 150.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 5% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 17.250.000 kr. sem samsvarar 4,3% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 3.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 440 milljónir króna.
Frá lokum fjórða ársfjórðungs, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 3.173.000 eigin hluti fyrir 400.441.064 kr.
Reitir eiga nú samtals 2.150.000 eigin hluti, eða um 0,31% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 681.850.000. Framangreindar fjárhæðir miða við að lækkun hlutafjár sem samþykkt var á aðalfundi sé komin til framkvæmda.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á .
