REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Stækkun á skuldabréfaflokkunum REITIR150535 og REITIR150537

REITIR: Stækkun á skuldabréfaflokkunum REITIR150535 og REITIR150537

Reitir fasteignafélag hf. hefur lokið sölu á skuldabréfum í skuldabréfaflokkunum REITIR150535 og REITIR150537.

REITIR150535 er verðtryggður skuldabréfaflokkur sem er veðtryggður með almenna tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 15. maí 2035 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum fram til lokagjalddaga, þegar allar eftirstöðvar greiðast í einni greiðslu. Greiðslur vaxta og afborgana höfuðstóls fara fram á tveggja mánaða fresti.

Seld voru skuldabréf að nafnverði 2.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,08%. Áður hafa verið gefin út skuldabréf í flokknum að nafnvirði 8.398 m.kr. og verður því flokkurinn eftir stækkunina samtals 10.398 m.kr. að nafnvirði.

REITIR150537 er verðtryggður skuldabréfaflokkur sem er veðtryggður með almenna tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 15. maí 2037 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum. Greiðslur vaxta og afborgana höfuðstóls fara fram á tveggja mánaða fresti.

Seld voru skuldabréf að nafnverði 2.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,01%. Áður hafa verið gefin út skuldabréf í flokknum að nafnvirði 7.690 m.kr. og verður því flokkurinn eftir stækkunina samtals 9.690 m.kr. að nafnvirði.

Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna miðvikudaginn 2. apríl nk. og verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfarið.

Grunnlýsing félagsins, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra skuldabréfa verða birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins. 

Fossar fjárfestingarbanki hafði umsjón með sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita:

Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: , sími 669 4416 og

Arnar Geir Sæmundsson, Markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki, netfang: , sími 832 4066.



EN
26/03/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 44

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 44 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 24. september 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 44. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 770.000 eigin hluti að kaupver...

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 43

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 43 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 24. september 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 43. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 504.200 eigin hluti að kaupver...

 PRESS RELEASE

REITIR: Úthlutun kauprétta

REITIR: Úthlutun kauprétta Stjórn Reita fasteignafélags hf. ákvað á fundi sínum í dag að veita kauprétti fyrir allt að 850.000 hlutum í félaginu  sem svarar til 0,12% af heildarhlutafé félagsins.   Kaupréttir samkvæmt kaupréttaráætluninni ná til stjórnenda og annarra lykilstarfsmanna Reita og er markmið áætlunarinnar að samtvinna fjárhagslega hagsmuni stjórnenda og lykilstarfsmanna langtímahagsmunum eigenda félagsins. Skilmálar kaupréttarsamninga félagsins eru í samræmi við kaupréttaráætlun, sem samþykkt var á hluthafafundi félagsins þann 16. október 2024. Nýtingarverð er 123,3 kr. fyrir ...

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 42

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 42 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 24. september 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 42. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 570.000 eigin hluti að kaupver...

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 41

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 41 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. september 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 24. september 2025. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 41. viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 790.000 eigin hluti að kaupver...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch