SFS B Slaturfelag Sudurlands Svf

Árshlutareikningur Sláturfélag Suðurlands jan - jún 2022

Árshlutareikningur Sláturfélag Suðurlands jan - jún 2022

Reykjavík, 25. ágúst 2022.

Fréttatilkynning frá Sláturfélagi Suðurlands svf.

Afkoma á fyrri árshelmingi 2022

  • Tekjur á fyrri árshelmingi 8.242 m.kr. og hækka um 26% milli ára.
  • 437 m.kr. hagnaður á fyrri árshelmingi ársins en 129 m.kr. hagnaður árið áður.
  • EBITDA afkoma var 958 m.kr. en 539 m.kr. árið áður.
  • Eigið fé 5.753 m.kr. í lok júní og eiginfjárhlutfall 51%.

Árshlutareikningurinn samanstendur af árshlutareikningi Sláturfélags Suðurlands svf. og dótturfélögum þess, Reykjagarði hf. og Hollt og gott ehf.

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á tímabilinu janúar til júní 2022 var 437 m.kr. Á sama tímabili árið áður var 129 m.kr. hagnaður. Eigið fé Sláturfélagsins er 5.753 m.kr. í lok júní.

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 8.242 m.kr. á fyrri árshelmingi ársins 2022, en 6.563 m.kr. á sama tíma árið áður og hækka því um tæp 26%. Aðrar tekjur voru 43 m.kr. en 49 m.kr. árið áður.

Vöru- og umbúðanotkun var 4.470 m.kr. en 3.479 m.kr. árið áður. Launakostnaður var 1.754 m.kr. og hækkaði um tæp 8%, annar rekstrarkostnaður var 1.103 m.kr. og hækkaði um tæp 15% og afskriftir voru 240 m.kr. svipað og á síðasta ári. Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 718 m.kr., en 299 m.kr. árið áður. Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBITDA) var 958 m.kr. en var 539 m.kr. á sama tíma í fyrra.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 181 m.kr., en voru 143 m.kr., á sama tímabili í fyrra.   Reiknaður tekjuskattur nam 103 m.kr., en 31 m.kr. árið áður. Hagnaður af rekstri tímabilsins var 437 m.kr. en 129 m.kr. á sama tímabili árið áður.

Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 951 m.kr. á fyrri árshelmingi ársins 2022, samanborið við 523 m.kr. fyrir sama tímabil árið 2021. Heildareignir Sláturfélagsins 30. júní voru 11.331 m.kr. og eiginfjárhlutfall 51% en 48% árið áður. Veltufjárhlutfall var 2,4 á fyrri hluta ársins 2022, en 2,2 árið áður.

Fjárfest var í varanlegum rekstarfjármunum á fyrri árshelmingi 2022 fyrir 331 m.kr. en 125 m.kr. á sama tímabili árið áður.   Fjárfest var í fasteignum fyrir 35 m.kr. og vélbúnaði og bifreiðum fyrir 296 m.kr.

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2022 var í aprílmánuði greiddur 14,84% arður af B-deild stofnsjóðs alls 27 m.kr. og reiknaðir 6% vextir á A-deild stofnsjóðs alls 21 m.kr.

Stjórn og forstjóri staðfestu árshlutareikning samstæðu Sláturfélagsins fyrir tímabilið 1. janúar – 30. júní 2022

með undirritun á stjórnarfundi í dag. Árshlutareikningur samstæðunnar er með könnunaráritun endurskoðenda.

Árshlutareikningurinn er aðgengilegur á heimasíðu SS:

Sláturfélagið er skráð á First North markaðinn hjá NASDAQ.   Sláturfélagið birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti. Ráðgert er að birta afkomu ársins 2022 þann 16. febrúar 2023.

Staða og horfur

Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er traust með 51% eiginfjárhlutfall og veltufjárhlutfall 2,4. Langtímaskuldir í lok júní 2022 voru 2.621 m.kr. Næsta árs afborganir eru um 91 m.kr. en lán samstæðunnar eru til mjög langs tíma.

Afkoma Sláturfélagsins batnar milli ára um 308 m.kr. en afkoma allra meginsviða félagsins batnar milli ára. Velta samstæðunnar jókst á milli ára um 26% eða 1.679 m.kr. Jákvæð áhrif á veltu má m.a. rekja til aukningar á ferðamönnum, bættrar stöðu á útflutningsmörkuðum, sterkari stöðu í sölu kjötvara og innflutningi matvæla og búrekstrarvara til bænda.

Talsverð óvissa er framundan sem getur haft neikvæð áhrif á rekstur samstæðunnar á seinni árshelmingi. Hækkanir á rekstrarvöru, bæði innlendri sem erlendri, hafa verið umtalsverðar á árinu og ekki sér enn fyrir endann á þeirri þróun. Gengisstyrking krónu hefur haft jákvæð áhrif en óvíst að svo verði áfram. Afurðaverð sauðfjár mun taka umtalsverðum hækkunum í haust og áhrif af kjarasamningum sem framundan eru geta orðið framleiðslufyrirtækjum þung.

Sala á lambakjöti hefur gengið vel á árinu og birgðastaða í upphafi sláturtíðar verður mjög lág. Innflutningur á kjöti hefur hins vegar neikvæð áhrif á afkomu afurðafélaga og dregur úr framleiðslu innanlands en til að mynda var engin aukning milli ára í kjötframleiðslu innanlands. Áfram verður unnið að því að aðlaga rekstur samstæðunnar að breyttu rekstrarumhverfi, m.a. með því að leggja áherslu á sérstöðu og gæði innlendrar framleiðslu.

Staða lykilvörumerkja félagsins í matvælaiðnaði er sterk og ímynd félagsins góð á markaði sem rennir stoðum undir frekari uppbyggingu á markaðsstöðu á komandi árum. Aukin vélvæðing og öflug vöruþróun hefur styrkt grundvöll félagsins sem leiðandi aðila á kjötmarkaði. Samt sem áður er reiknað með erfiðum aðstæðum á kjötmarkaði á næstu árum vegna hækkana á hrávöru til landbúnaðarframleiðslu og aukningu í innflutningi kjötvara.

Matvöruhluti innflutningsdeildar hefur styrkt stöðu sína á markaði með nýjum vöruflokkum sem ganga vel. Búvöruhluti innflutningsdeildar hefur byggst upp á undanförnum árum og er að þjónusta bændur með allar helstu rekstrarvörur. Áfram verða nýtt tækifæri til frekari vaxtar. Umtalsverð óvissa er um verðþróun á áburði og kjarnfóðri á næstu misserum sem getur haft neikvæð áhrif á framleiðslukostnað landbúnaðarvara.

Fjárhagsdagatal

Júlí – desember 2022 uppgjör                16. febrúar 2023

Aðalfundur 2023                                   17. mars 2023

Frekari upplýsingar veita:

Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 –

Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 –

Viðhengi



EN
25/08/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Slaturfelag Sudurlands Svf

 PRESS RELEASE

Árshlutareikningur Sláturfélag Suðurlands jan - jún 2024

Árshlutareikningur Sláturfélag Suðurlands jan - jún 2024 Reykjavík, 22. ágúst 2024. Fréttatilkynning frá Sláturfélagi Suðurlands svf. Afkoma á fyrri árshelmingi 2024 Tekjur á fyrri árshelmingi 9.262 m.kr. og hækka um 3% milli ára613 m.kr. hagnaður á fyrri árshelmingi ársins en 532 m.kr. hagnaður árið áðurEBITDA afkoma var 1.103 m.kr. en 1.068 m.kr. árið áðurEigið fé 7.935 m.kr. í lok júní og eiginfjárhlutfall 56% Árshlutareikningurinn samanstendur af árshlutareikningi Sláturfélags Suðurlands svf. og dótturfélögum þess, Reykjagarði hf. og Hollt og gott ehf...

 PRESS RELEASE

Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands 15. mars 2024

Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands 15. mars 2024 Sláturfélag Suðurlands svf Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands svf. Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands var haldinn föstudaginn 15. mars 2024 kl. 15:00 að Goðalandi, Fljótshlíð. 1. ÁrsreikningurAðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2023. 2. Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs samþykktStjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 18,01% arður af B-deild stofnsjóðs, þar af er verðbótaþáttur 8,01% skv. 1. mgr. 14. gr. samþykkta félagsins, alls kr. 36...

 PRESS RELEASE

Sláturfélag Suðurlands - Ársskýrsla 2023

Sláturfélag Suðurlands - Ársskýrsla 2023  Sjá viðhengi. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Framboð til stjórnar og varastjórnar Sláturfélags Suðurlands svf. á að...

Framboð til stjórnar og varastjórnar Sláturfélags Suðurlands svf. á aðalfundi 15. mars 2024 Framboð til stjórnar og varastjórnar Sláturfélags Suðurlands svf. á aðalfundi 15. mars 2024. Framboð til stjórnar og varastjórnar skal hafa borist skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en þremur vikum fyrir aðalfund í samræmi við 2. mgr. 27. gr. samþykkta félagsins. Framboð hefur borist innan tilskilins frests frá eftirtöldum aðilum: Til setu í aðalstjórnGuðrún S. Magnúsdóttir, Bræðratungu, 806 SelfossiHallfreður Vilhjálmsson, Kambshóli, 301 AkranesiLilja G. Eyþórsdóttir, Vestri-Reynir, 301 A...

 PRESS RELEASE

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 15....

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 15. mars 2024 Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 15. mars 2024 á Goðalandi Fljótshlíð og hefst kl. 15:00. Dagskrá: 1.        Setning aðalfundar, kosning starfsmanna fundarins og könnun á mætingu fulltrúa.        2.        Skýrsla stjórnar félagsins. 3.        Starfsemi félagsins á liðnu ári.4.        Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skýrður.5.        Skýrsla skoðunarmanna.6.        Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.7.       Umræður um skýrslu stjórnar, ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch