SFS B Slaturfelag Sudurlands Svf

Árshlutareikningur Sláturfélag Suðurlands jan - jún 2024

Árshlutareikningur Sláturfélag Suðurlands jan - jún 2024

Reykjavík, 22. ágúst 2024.

Fréttatilkynning frá Sláturfélagi Suðurlands svf.

Afkoma á fyrri árshelmingi 2024

  • Tekjur á fyrri árshelmingi 9.262 m.kr. og hækka um 3% milli ára
  • 613 m.kr. hagnaður á fyrri árshelmingi ársins en 532 m.kr. hagnaður árið áður
  • EBITDA afkoma var 1.103 m.kr. en 1.068 m.kr. árið áður
  • Eigið fé 7.935 m.kr. í lok júní og eiginfjárhlutfall 56%

Árshlutareikningurinn samanstendur af árshlutareikningi Sláturfélags Suðurlands svf. og dótturfélögum þess, Reykjagarði hf. og Hollt og gott ehf.

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á tímabilinu janúar til júní 2024 var 613 m.kr. Á sama tímabili árið áður var 532 m.kr. hagnaður. Eigið fé Sláturfélagsins er 7.935 m.kr. í lok júní.

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 9.262 m.kr. á fyrri árshelmingi ársins 2024, en 9.001 m.kr. á sama tíma árið áður og hækka því um tæp 3%. Aðrar tekjur voru 61 m.kr. en 120 m.kr. árið áður.

Vöru- og umbúðanotkun var 4.779 m.kr. en 4.878 m.kr. árið áður. Launakostnaður var 2.110 m.kr. og hækkaði um tæp 8%, annar rekstrarkostnaður var 1.331 m.kr. og hækkaði um tæp 10% og afskriftir voru 275 m.kr. og hækkuðu um rúm 4%. Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 828 m.kr., en 804 m.kr. árið áður. Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBITDA) var 1.103 m.kr. en var 1.068 m.kr. á sama tíma í fyrra.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 68 m.kr., en voru 165 m.kr., á sama tímabili í fyrra.   Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var 0 m.kr. Reiknaður tekjuskattur nam 147 m.kr., en 122 m.kr. árið áður. Hagnaður af rekstri tímabilsins var 613 m.kr. en 532 m.kr. á sama tímabili árið áður.

Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 1.106 m.kr. á fyrri árshelmingi ársins 2024, samanborið við 1.062 m.kr. fyrir sama tímabil árið 2023. Heildareignir Sláturfélagsins 30. júní voru 14.293 m.kr. og eiginfjárhlutfall 56% en 54% árið áður. Veltufjárhlutfall var 2,2 á fyrri hluta ársins 2024, en 2,9 árið áður.

Fjárfest var í varanlegum rekstrarfjármunum á fyrri árshelmingi 2024 fyrir 321 m.kr. en 245 m.kr. á sama tímabili árið áður.   Fjárfest var í fasteignum fyrir 44 m.kr. og vélbúnaði og bifreiðum fyrir 277 m.kr.

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2024 var í aprílmánuði greiddur 18,01% arður af B-deild stofnsjóðs alls 36 m.kr. og reiknaðir 10,0% vextir á A-deild stofnsjóðs alls 40 m.kr.

Stjórn og forstjóri staðfestu árshlutareikning samstæðu Sláturfélagsins fyrir tímabilið 1. janúar – 30. júní 2024

með undirritun á stjórnarfundi í dag. Árshlutareikningur samstæðunnar er með könnunaráritun endurskoðenda.

Árshlutareikningurinn er aðgengilegur á heimasíðu SS:

Sláturfélagið er skráð á First North markaðinn hjá NASDAQ.   Sláturfélagið birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti. Ráðgert er að birta afkomu ársins 2024 þann 18. febrúar 2025.

Staða og horfur

Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er traust með 56% eiginfjárhlutfall og veltufjárhlutfall 2,2. Langtímaskuldir í lok júní 2024 voru 1.975 m.kr. Næsta árs afborganir eru um 50 m.kr. en lán samstæðunnar eru til mjög langs tíma. Lausafjárstaða félagsins er einnig góð en handbært fé var í lok júní 1.918 m.kr.

Afkoma Sláturfélagsins batnar milli ára um 82 m.kr. Velta samstæðunnar jókst á milli ára um 3% eða 261 m.kr. Jákvæð áhrif á veltu má fyrst og fremst rekja til aukningar í tekjum af sölu kjötvara.

Nokkur óvissa er framundan sem getur haft neikvæð áhrif á rekstur samstæðunnar á seinni árshelmingi. Hækkanir á rekstrarvöru, bæði innlendri sem erlendri, hafa verið talsverðar á árinu en gert er ráð fyrir að það hægist á þeirri þróun þegar kemur fram á árið 2025. Óvissa er um gengisþróun sem getur haft neikvæð áhrif á afkomu félagins á síðari árshelmingi. Afurðaverð sauðfjár til bænda mun taka hækkunum í haust en lítið svigrúm er til að hækka verð við þær aðstæður sem nú eru á neytendamarkaði en gert er ráð fyrir að einkaneysla dragist saman á næstu mánuðum vegna hás vaxtastigs.

Sala á lambakjöti hefur dregist saman á árinu og birgðastaða í upphafi sláturtíðar verður hærri en í fyrra. Sölusamdráttur lambakjöts á landsvísu var um 11% milli ára sem er umtalsvert en á móti kemur aukning í sölu alifuglakjöts og nautgripakjöts. Innflutningur á kjöti hefur neikvæð áhrif á afkomu afurðafélaga og dregur úr framleiðslu innanlands. Áfram verður unnið að því að aðlaga rekstur samstæðunnar að breyttu rekstrarumhverfi, m.a. með því að leggja áherslu á sérstöðu og gæði innlendrar framleiðslu.

Staða lykilvörumerkja félagsins í matvælaiðnaði er sterk og ímynd félagsins góð á markaði sem rennir stoðum undir frekari uppbyggingu á markaðsstöðu á komandi árum. Aukin vélvæðing og öflug vöruþróun hefur styrkt grundvöll félagsins sem öflugs aðila á kjötmarkaði. Samt sem áður er reiknað með erfiðum aðstæðum á kjötmarkaði á næstu árum vegna hækkana á hrávöru til landbúnaðarframleiðslu og aukningu í innflutningi kjötvara.

Matvöruhluti innflutningsdeildar hefur styrkt stöðu sína á markaði með nýjum vöruflokkum sem ganga vel. Búvöruhluti innflutningsdeildar hefur byggst upp á undanförnum árum og er að þjónusta bændur með allar helstu rekstrarvörur. Áfram verða nýtt tækifæri til frekari vaxtar. Jákvætt er að verð á áburði til bænda lækkaði umtalsvert frá fyrra ári. Samt sem áður er nokkur óvissa um verðþróun helstu rekstrarvara á næstu misserum sem getur haft neikvæð áhrif á framleiðslukostnað landbúnaðarvara.

Fjárhagsdagatal

18. febrúar 2025             Ársuppgjör 2024

21. mars 2025                 Aðalfundur vegna ársins 2024

21. ágúst 2025                Árshlutauppgjör jan-jún 2025

19. febrúar 2026             Ársuppgjör 2025

20. mars 2026                Aðalfundur vegna ársins 2025

Frekari upplýsingar veita:

Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 –

Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 –

Viðhengi



EN
22/08/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Slaturfelag Sudurlands Svf

 PRESS RELEASE

Árshlutareikningur Sláturfélag Suðurlands jan - jún 2024

Árshlutareikningur Sláturfélag Suðurlands jan - jún 2024 Reykjavík, 22. ágúst 2024. Fréttatilkynning frá Sláturfélagi Suðurlands svf. Afkoma á fyrri árshelmingi 2024 Tekjur á fyrri árshelmingi 9.262 m.kr. og hækka um 3% milli ára613 m.kr. hagnaður á fyrri árshelmingi ársins en 532 m.kr. hagnaður árið áðurEBITDA afkoma var 1.103 m.kr. en 1.068 m.kr. árið áðurEigið fé 7.935 m.kr. í lok júní og eiginfjárhlutfall 56% Árshlutareikningurinn samanstendur af árshlutareikningi Sláturfélags Suðurlands svf. og dótturfélögum þess, Reykjagarði hf. og Hollt og gott ehf...

 PRESS RELEASE

Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands 15. mars 2024

Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands 15. mars 2024 Sláturfélag Suðurlands svf Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands svf. Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands var haldinn föstudaginn 15. mars 2024 kl. 15:00 að Goðalandi, Fljótshlíð. 1. ÁrsreikningurAðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2023. 2. Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs samþykktStjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 18,01% arður af B-deild stofnsjóðs, þar af er verðbótaþáttur 8,01% skv. 1. mgr. 14. gr. samþykkta félagsins, alls kr. 36...

 PRESS RELEASE

Sláturfélag Suðurlands - Ársskýrsla 2023

Sláturfélag Suðurlands - Ársskýrsla 2023  Sjá viðhengi. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Framboð til stjórnar og varastjórnar Sláturfélags Suðurlands svf. á að...

Framboð til stjórnar og varastjórnar Sláturfélags Suðurlands svf. á aðalfundi 15. mars 2024 Framboð til stjórnar og varastjórnar Sláturfélags Suðurlands svf. á aðalfundi 15. mars 2024. Framboð til stjórnar og varastjórnar skal hafa borist skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en þremur vikum fyrir aðalfund í samræmi við 2. mgr. 27. gr. samþykkta félagsins. Framboð hefur borist innan tilskilins frests frá eftirtöldum aðilum: Til setu í aðalstjórnGuðrún S. Magnúsdóttir, Bræðratungu, 806 SelfossiHallfreður Vilhjálmsson, Kambshóli, 301 AkranesiLilja G. Eyþórsdóttir, Vestri-Reynir, 301 A...

 PRESS RELEASE

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 15....

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 15. mars 2024 Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 15. mars 2024 á Goðalandi Fljótshlíð og hefst kl. 15:00. Dagskrá: 1.        Setning aðalfundar, kosning starfsmanna fundarins og könnun á mætingu fulltrúa.        2.        Skýrsla stjórnar félagsins. 3.        Starfsemi félagsins á liðnu ári.4.        Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skýrður.5.        Skýrsla skoðunarmanna.6.        Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.7.       Umræður um skýrslu stjórnar, ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch