SFS B Slaturfelag Sudurlands Svf

Sláturfélag Suðurlands - Ársreikningur 2022

Sláturfélag Suðurlands - Ársreikningur 2022

Reykjavík, 16. febrúar 2023.

Fréttatilkynning frá Sláturfélagi Suðurlands svf.

Afkoma ársins 2022

        Rekstrartekjur ársins 15.757 m.kr. en 13.023 m.kr. árið 2021

        549 m.kr. hagnaður á árinu á móti 234 m.kr. hagnaði árið áður

        EBITDA afkoma var 1.467 m.kr. en 1.026 m.kr. árið 2021

        Eigið fé 6.591 m.kr. og eiginfjárhlutfall 49%

Samstæðuársreikningurinn samanstendur af ársreikningi Sláturfélags Suðurlands svf. og dótturfélaga þess, Reykjagarðs hf. og Hollt og gott ehf.

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á árinu 2022 var 549 m.kr. Árið áður var 234 m.kr. hagnaður.   Betri markaðsaðstæður og aðgerðir sem gripið var til skýra bætta afkomu frá fyrra ári. Eigið fé er 6.591 m.kr. og eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 49%.

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 15.757 m.kr. árið 2022, en 13.023 m.kr. árið áður og hækka því um 21%. Aðrar tekjur voru 88 m.kr. en 135 m.kr. árið áður.

Vöru- og umbúðanotkun var 7.906 m.kr. en 6.316 m.kr. árið áður. Launakostnaður var 3.984 m.kr. og hækkaði um tæp 11%, annar rekstrarkostnaður var 2.488 m.kr. og hækkaði um tæp 13%. Afskriftir hækkuðu um tæp 2%. Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 978 m.kr., en 545 m.kr. rekstrarhagnaður árið áður. Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBITDA) var 1.467 m.kr. en var 1.026 m.kr. árið áður.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 321 m.kr., en voru 260 m.kr. árið áður. Gengistap var 16 m.kr. samanborið við 4 m.kr. gengistap árið áður.

Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var jákvæð um 19 m.kr.

Reiknaður gjaldfærður tekjuskattur er 127 m.kr. en 59 m.kr. árið áður. Hagnaður af rekstri ársins var 549 m.kr. en 234 m.kr. hagnaður árið áður.

Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 1.452 m.kr. árið 2022 samanborið við 956 m.kr. árið 2021. Heildareignir Sláturfélagsins 31. desember 2022 voru 13.439 m.kr. og eiginfjárhlutfall 49%.   Veltufjárhlutfall var 2,0 árið 2022, en 2,4 árið áður.

Fjárfest var á árinu fyrir 671 m.kr. í varanlegum rekstrarfjármunum en 362 m.kr. árið áður. Seldar voru eignir fyrir 26 m.kr. Á árinu var fjárfest í fasteignum fyrir 206 m.kr., vélum og tækjabúnaði fyrir 359 m.kr. og bifreiðum 106 m.kr.

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2022 var í aprílmánuði greiddur 14,84% arður af B-deild stofnsjóðs alls 27 m.kr. og reiknaðir 6% vextir á A-deild stofnsjóðs alls 21 m.kr.

Stjórnin staðfesti endurskoðaðan ársreikning félagsins á stjórnarfundi í dag.   Ársreikningurinn er aðgengilegur á heimasíðu SS:

Sláturfélagið er skráð á First North markaðinn hjá NASDAQ OMX. Sláturfélagið birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti. Ráðgert er að birta afkomu fyrri árshelmings ársins 2023 þann 24. ágúst 2023.

Aðalfundur

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn föstudaginn 17. mars n.k. Stjórn félagsins mun þar leggja til að greiddur verði 19,34% arður af B-deild stofnsjóðs, þar af verðbótarþáttur 9,34%, alls 34,8 m.kr. eða 0,1934 kr. á hvern útgefin hlut og reiknaðir 7,5% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls 27,5 m.kr.

Staða og horfur

Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er traust með 49% eiginfjárhlutfall og veltufjárhlutfall 2,0. Langtímatímaskuldir í lok árs voru 2.678 m.kr. Næsta árs afborganir eru um 95 m.kr. en lán samstæðunnar eru til langs tíma. Lausafjárstaða félagsins er einnig góð en handbært fé var um áramót 1.256 m.kr. og góður aðgangur að skammtímafjármögnun sé þess þörf.

Rekstrartekjur samstæðunnar hækkuðu um 2.734 m.kr. eða um 21% vegna betri markaðsaðstæðna og aðgerða til að auka tekjur. Staðan á veitingamarkaði batnaði auk þess sem samstæðan styrkti stöðu sína á smásölumarkaði og sölu rekstrarvara til bænda. Afkoma Sláturfélagsins batnar milli ára um 316 m.kr.

Framleiðsla kjöts á landsvísu stóð í stað á árinu 2022 en sala jókst um 3,2%. Áhyggjuefni er áætlaður samdráttur í kindakjötsframleiðslu á komandi árum en afkoma bænda í greininni hefur verið slök og brýnt að hún verði bætt. Hækkanir á hrávörumarkaði hafa verið miklar einkum á áburði, kjarnfóðri og öðrum rekstrarvörum bænda. Mikilvægt er að stuðningur verði áfram við greinina til lengri tíma en annað getur haft mjög neikvæð áhrif á innlenda matvælaframleiðslu. Áfram er gert ráð fyrir neikvæðum áhrifum af innflutningi kjötvara á afkomu afurðahluta samstæðunnar.

Matvælaiðnaður félagsins stendur vel. Á árinu var fjárfest í nýjum vélbúnaði til að auka enn frekar hagkvæmni matvælaframleiðslunnar. Ímynd félagsins á markaði er góð og staða lykilvörumerkja sterk sem treystir grundvöll fyrir áframhaldandi uppbyggingu félagsins sem leiðandi aðila á kjötmarkaði.

Sala á innflutningsvörum, matvælum og búrekstrarvörum jókst verulega milli ára. Góð tækifæri eru til frekari vaxtar en félagið er í samstarfi við leiðandi aðila á sínu sviði.

Fjárhagsdagatal

17. mars 2023                        Aðalfundur 2022

24. ágúst 2023                      Árshlutauppgjör jan-jún 2023

15. febrúar 2024                    Ársuppgjör 2023

15. mars 2024                        Aðalfundur vegna ársins 2023

Frekari upplýsingar veitir:

Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 –

Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 –



Viðhengi



EN
16/02/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Slaturfelag Sudurlands Svf

 PRESS RELEASE

Árshlutareikningur Sláturfélag Suðurlands jan - jún 2024

Árshlutareikningur Sláturfélag Suðurlands jan - jún 2024 Reykjavík, 22. ágúst 2024. Fréttatilkynning frá Sláturfélagi Suðurlands svf. Afkoma á fyrri árshelmingi 2024 Tekjur á fyrri árshelmingi 9.262 m.kr. og hækka um 3% milli ára613 m.kr. hagnaður á fyrri árshelmingi ársins en 532 m.kr. hagnaður árið áðurEBITDA afkoma var 1.103 m.kr. en 1.068 m.kr. árið áðurEigið fé 7.935 m.kr. í lok júní og eiginfjárhlutfall 56% Árshlutareikningurinn samanstendur af árshlutareikningi Sláturfélags Suðurlands svf. og dótturfélögum þess, Reykjagarði hf. og Hollt og gott ehf...

 PRESS RELEASE

Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands 15. mars 2024

Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands 15. mars 2024 Sláturfélag Suðurlands svf Niðurstöður aðalfundar Sláturfélags Suðurlands svf. Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands var haldinn föstudaginn 15. mars 2024 kl. 15:00 að Goðalandi, Fljótshlíð. 1. ÁrsreikningurAðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2023. 2. Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs samþykktStjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 18,01% arður af B-deild stofnsjóðs, þar af er verðbótaþáttur 8,01% skv. 1. mgr. 14. gr. samþykkta félagsins, alls kr. 36...

 PRESS RELEASE

Sláturfélag Suðurlands - Ársskýrsla 2023

Sláturfélag Suðurlands - Ársskýrsla 2023  Sjá viðhengi. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Framboð til stjórnar og varastjórnar Sláturfélags Suðurlands svf. á að...

Framboð til stjórnar og varastjórnar Sláturfélags Suðurlands svf. á aðalfundi 15. mars 2024 Framboð til stjórnar og varastjórnar Sláturfélags Suðurlands svf. á aðalfundi 15. mars 2024. Framboð til stjórnar og varastjórnar skal hafa borist skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en þremur vikum fyrir aðalfund í samræmi við 2. mgr. 27. gr. samþykkta félagsins. Framboð hefur borist innan tilskilins frests frá eftirtöldum aðilum: Til setu í aðalstjórnGuðrún S. Magnúsdóttir, Bræðratungu, 806 SelfossiHallfreður Vilhjálmsson, Kambshóli, 301 AkranesiLilja G. Eyþórsdóttir, Vestri-Reynir, 301 A...

 PRESS RELEASE

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 15....

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 15. mars 2024 Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands svf. verður haldinn föstudaginn 15. mars 2024 á Goðalandi Fljótshlíð og hefst kl. 15:00. Dagskrá: 1.        Setning aðalfundar, kosning starfsmanna fundarins og könnun á mætingu fulltrúa.        2.        Skýrsla stjórnar félagsins. 3.        Starfsemi félagsins á liðnu ári.4.        Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skýrður.5.        Skýrsla skoðunarmanna.6.        Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs.7.       Umræður um skýrslu stjórnar, ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch