SIMINN Siminn HF

Leiðrétting: Síminn hf. - Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki og stækkun útgáfuramma

Leiðrétting: Síminn hf. - Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki og stækkun útgáfuramma

Í fréttatilkynningu sem birt var fyrr í dag var rangur útgáfudagur og gjalddagi áskrifta. Rétt dagsetning er 3. júlí 2023. Tilkynningin hefur verið uppfærð í samræmi við það.

Síminn hf. hefur lokið sölu á nýjum skuldabréfaflokki SIMINN 26 1.

SIMINN 26 1 er almennur skuldabréfaflokkur sem ber fljótandi vexti tengda eins mánaðar REIBOR vöxtum auk 1,3% vaxtaálags með lokagjalddaga þann 30. júní 2026. Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.500 m.kr. á pari (genginu 100,0)

Ekki var um almennt útboð að ræða. Útboðið var undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a, c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði og 1. mgr. 3. gr. laga nr. 14/2020 um sama efni.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 3. júlí 2023.

Stjórn Símans hefur samþykkt stækkun útgáfuramma félagsins úr 2.000 m.kr. í 6.000 m.kr. Unnið er að gerð nýrrar grunnlýsingar skuldabréfa og víxla til samræmis við útgáfurammann vegna töku skuldabréfanna til viðskipta í Kauphöll Nasdaq Iceland. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu flokksins og töku skuldabréfanna til viðskipta í Kauphöll verða þá birt á vefsíðu félagsins:

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita:

Matei Manolescu, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki, sími: 522 4000, netfang:  

Ásgrímur Gunnarsson, markaðsviðskipti, Fossar fjárfestingarbanki, sími: 522 4000, netfang:

Óskar Hauksson, fjármálastjóri,

Helgi Þorsteinsson, forstöðumaður fjárstýringar,



EN
23/06/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Siminn HF

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup Símans á ve...

Síminn hf. - Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup Símans á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Síminn hf. (Síminn) og Sýn hf. (Sýn) hafa komist að samkomulagi um helstu skilmála vegna mögulegra kaupa Símans á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar. Rekstrareiningin sem um ræðir inniheldur vefmiðlana Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal. Í skilmálaskjalinu er fjallað um helstu forsendur viðskiptanna og gert er ráð fyrir að heildarvirði (e. enterprise value) einingarinnar sé 5.250 milljónir króna og tekju...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki

Síminn hf. - Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki Síminn hf. lauk í dag sölu á nýjum almennum skuldabréfaflokki SIMINN 29 1, sem gefinn er út undir kr. 9.000.000.000 útgáfuramma félagsins. Alls bárust 16 tilboð, að nafnvirði kr. 4.440.000.0000, á álagi á bilinu 1,05% - 1,30% á 1M REIBOR. Ákveðið var að taka öllum tilboðum að nafnvirði kr. 4.440.000.000 á álaginu 1,30% á 1M REIBOR. Í tengslum við útboðið gafst núverandi eigendum skuldabréfaflokksins SIMINN 26 1 kostur á að selja á hreina verðinu 100,10 til að greiða fyrir kaupin. Niðurstaða skiptiútboðsins leiðir til þess að Síminn kaupir alls...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. – Framboð til stjórnar og í tilnefningarnefnd

Síminn hf. – Framboð til stjórnar og í tilnefningarnefnd Aðalfundur Símans hf. verður haldinn fimmtudaginn 12. mars 2026 kl. 16:00 að Hilton Reykjavík Nordica (Vox Club), Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Framboðsfrestur til stjórnar rann út þann 7. mars sl. kl. 16:00. Framboð til stjórnar Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins: Arnar Þór MássonBjarni ÞorvarðarsonJón SigurðssonSigrún Ragna ÓlafsdóttirValgerður Halldórsdóttir Er það mat stjórnar að framboðin séu gild sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga. Í samræmi við samþykktir félagsins skulu fimm stjórnarme...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Aðalfundur Símans hf. verður haldinn 12. mars 2026 – Enda...

Síminn hf. - Aðalfundur Símans hf. verður haldinn 12. mars 2026 – Endanleg dagskrá Aðalfundur Símans hf. verður haldinn fimmtudaginn 12. mars 2026 kl. 16:00 að Hilton Reykjavík Nordica (Vox Club), Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Meðfylgjandi er endanleg dagskrá fundarins. Allar frekari upplýsingar varðandi aðalfundinn er að finna á vef félagsins: . Viðhengi

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Útboð á skuldabréfum 11. mars 2026

Síminn hf. - Útboð á skuldabréfum 11. mars 2026 Síminn hf. efnir til útboðs á skuldabréfum miðvikudaginn 11. mars 2026. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokknum SIMINN 29 1, undir kr. 9.000.000.000 útgáfuramma félagsins. SIMINN 29 1 er nýr almennur (e. senior) skuldabréfaflokkur sem mun bera fljótandi vexti tengda eins mánaðar REIBOR vöxtum, auk vaxtaálags sem mun ákvarðast í útboði. Lokagjalddagi flokksins verður þann 5. júní 2029. Útboðið verður með „hollenskri“ aðferð þar sem öll samþykkt tilboð verða tekin á hæsta samþykkta álagi á 1M REIBOR. Samhliða útboðinu gefst núverandi eigen...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch