SIMINN Siminn HF

Síminn hf. - Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki

Síminn hf. - Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki

Síminn hf. lauk í dag sölu á nýjum almennum skuldabréfaflokki SIMINN 29 1, sem gefinn er út undir kr. 9.000.000.000 útgáfuramma félagsins.

Alls bárust 16 tilboð, að nafnvirði kr. 4.440.000.0000, á álagi á bilinu 1,05% - 1,30% á 1M REIBOR. Ákveðið var að taka öllum tilboðum að nafnvirði kr. 4.440.000.000 á álaginu 1,30% á 1M REIBOR.

Í tengslum við útboðið gafst núverandi eigendum skuldabréfaflokksins SIMINN 26 1 kostur á að selja á hreina verðinu 100,10 til að greiða fyrir kaupin. Niðurstaða skiptiútboðsins leiðir til þess að Síminn kaupir alls kr. 1.340.000.000 að nafnvirði í flokknum SIMINN 26 1.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður 18. mars 2026 og í kjölfarið verður sótt um að skuldabréfaflokkurinn verði tekinn til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku skuldabréfanna til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.

Grunnlýsing og viðauki við grunnlýsinguna hafa verið birt í tengslum við útgáfuramma félagsins. Grunnlýsing útgáfuramma, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu skuldabréfaflokksins og töku skuldabréfanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins: .  

Ekki var um almennt útboð að ræða. Útboðið var sömuleiðis undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni.

Nánari upplýsingar veitir: Hjörtur Þór Steindórsson, fjármálastjóri Símans hf., netfang: .



EN
11/03/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Siminn HF

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki

Síminn hf. - Útgáfa á nýjum skuldabréfaflokki Síminn hf. lauk í dag sölu á nýjum almennum skuldabréfaflokki SIMINN 29 1, sem gefinn er út undir kr. 9.000.000.000 útgáfuramma félagsins. Alls bárust 16 tilboð, að nafnvirði kr. 4.440.000.0000, á álagi á bilinu 1,05% - 1,30% á 1M REIBOR. Ákveðið var að taka öllum tilboðum að nafnvirði kr. 4.440.000.000 á álaginu 1,30% á 1M REIBOR. Í tengslum við útboðið gafst núverandi eigendum skuldabréfaflokksins SIMINN 26 1 kostur á að selja á hreina verðinu 100,10 til að greiða fyrir kaupin. Niðurstaða skiptiútboðsins leiðir til þess að Síminn kaupir alls...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. – Framboð til stjórnar og í tilnefningarnefnd

Síminn hf. – Framboð til stjórnar og í tilnefningarnefnd Aðalfundur Símans hf. verður haldinn fimmtudaginn 12. mars 2026 kl. 16:00 að Hilton Reykjavík Nordica (Vox Club), Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Framboðsfrestur til stjórnar rann út þann 7. mars sl. kl. 16:00. Framboð til stjórnar Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins: Arnar Þór MássonBjarni ÞorvarðarsonJón SigurðssonSigrún Ragna ÓlafsdóttirValgerður Halldórsdóttir Er það mat stjórnar að framboðin séu gild sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga. Í samræmi við samþykktir félagsins skulu fimm stjórnarme...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Aðalfundur Símans hf. verður haldinn 12. mars 2026 – Enda...

Síminn hf. - Aðalfundur Símans hf. verður haldinn 12. mars 2026 – Endanleg dagskrá Aðalfundur Símans hf. verður haldinn fimmtudaginn 12. mars 2026 kl. 16:00 að Hilton Reykjavík Nordica (Vox Club), Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Meðfylgjandi er endanleg dagskrá fundarins. Allar frekari upplýsingar varðandi aðalfundinn er að finna á vef félagsins: . Viðhengi

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Útboð á skuldabréfum 11. mars 2026

Síminn hf. - Útboð á skuldabréfum 11. mars 2026 Síminn hf. efnir til útboðs á skuldabréfum miðvikudaginn 11. mars 2026. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokknum SIMINN 29 1, undir kr. 9.000.000.000 útgáfuramma félagsins. SIMINN 29 1 er nýr almennur (e. senior) skuldabréfaflokkur sem mun bera fljótandi vexti tengda eins mánaðar REIBOR vöxtum, auk vaxtaálags sem mun ákvarðast í útboði. Lokagjalddagi flokksins verður þann 5. júní 2029. Útboðið verður með „hollenskri“ aðferð þar sem öll samþykkt tilboð verða tekin á hæsta samþykkta álagi á 1M REIBOR. Samhliða útboðinu gefst núverandi eigen...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Staðfesting staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum sku...

Síminn hf. - Staðfesting staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum skuldabréfaflokkanna SIMINN 26 1 og SIMINN 28 1 KPMG ehf. er staðfestingaraðili skuldabréfaflokkanna SIMINN 26 1 og SIMINN 28 1. Hlutverk staðfestingaraðila er að yfirfara forsendur og útreikninga útgefanda í tengslum við hálfsárs- og ársreikninga útgefanda. Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum skilyrðum miðað við 31.12.2025 samræmist mati útgefanda og skýrsla um fjárhagsleg skilyrði því staðfest. Meðfylgjandi er staðfesting staðfestingaraðila á skýrslu um fjárhagsleg skilyrði. Viðhengi ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch