Síminn hf. - Landsréttur sýknar Seðlabanka Íslands
Vísað er til tilkynningar Símans hf. þann 3. nóvember 2023 þar sem fjallað var um ákvörðun fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands, dags. 31. október 2023, um að sekta Símann hf. um 76,5 m.kr. í tengslum við upplýsingagjöf vegna sölunnar á Mílu ehf, og tilkynningar þann 16. desember 2024 um niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í sama efni.
Landsréttur kvað upp dóm í dag þar sem dómur Héraðsdóms var staðfestur og þannig hafnað að fella úr gildi framangreinda ákvörðun fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands. Málskostnaður var felldur niður.
Síminn mun skoða forsendur dómsins og meta hvort sóst verði eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar.
