SIMINN Siminn HF

Síminn hf. - Breytingar á hlutafé

Síminn hf. - Breytingar á hlutafé

Í 19. gr. laga nr. 20/2021 um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu segir að ef útgefandi lækkar hlutafé skuli hann við fyrsta tækifæri og í síðasta lagi á síðasta viðskiptadegi þess mánaðar er breytingar eiga sér stað, birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða.

Á aðalfundi Símans hf. þann 12. mars sl. var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins um kr. 75.000.000 að nafnverði en eftir lækkun yrði hlutafé samtals kr. 2.400.000.000. Lækkunin tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með kaupum á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlunum.

Þann 23. mars sl. var tilkynnt um að beiðni hafi verið send á Nasdaq CSD Iceland um lækkun hlutafjárins og að hún myndi koma til framkvæmdar fimmtudaginn 26. mars 2026.

Framangreind lækkun hefur nú komið til framkvæmdar og tilkynnist því hér með að heildarfjöldi hluta í Símanum hf. er í dag, 26. mars 2026, kr. 2.400.000.000 að nafnverði og fylgir eitt atkvæði hverjum hlut í félaginu. Félagið á 73.868.692 eigin hluti að teknu tilliti til lækkunarinnar.

Að öðru leyti er vísað til fyrri tilkynninga félagsins um niðurstöður aðalfundar frá 12. mars 2026 og um lækkun hlutafjár frá 23. mars 2026.



EN
26/03/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Siminn HF

 PRESS RELEASE

Síminn hf. – Útgáfa á nýjum víxlaflokki

Síminn hf. – Útgáfa á nýjum víxlaflokki Síminn hf. lauk í dag sölu á nýjum víxlaflokki SIMINN261022, sem gefinn er út undir kr. 9.000.000.000 útgáfuramma félagsins. Alls bárust tilboð að nafnvirði kr. 1.520.000.000, á bilinu 8,10% - 8,30% flötum vöxtum. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði kr. 1.100.000.000 á 8,153% flötum vöxtum. Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður 22. apríl 2026 og í kjölfarið verður sótt um að víxlaflokkurinn verði tekinn til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku víxlann...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. – Útboð á víxlum miðvikudaginn 15. apríl 2026

Síminn hf. – Útboð á víxlum miðvikudaginn 15. apríl 2026 Síminn hf. efnir til útboðs á víxlum miðvikudaginn 15. apríl 2026. Boðnir verða til sölu víxlar í flokknum SIMINN261022, undir kr. 9.000.000.000 útgáfuramma félagsins. SIMINN261022 er nýr 6M víxill með lokagjalddaga þann 22. október 2026. Nafnverðseining víxlanna er 20 m.kr. Útboðið verður með „hollenskri“ aðferð þar sem öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu samþykktu flötum vöxtum. Félagið áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka öllum tilboðum að hluta. Tilkynnt verður um niðurstöð...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. – Hæstiréttur hafnar beiðni um áfrýjunarleyfi vegna ákvörðu...

Síminn hf. – Hæstiréttur hafnar beiðni um áfrýjunarleyfi vegna ákvörðunar fjármálaeftirlitsnefndar Vísað er til tilkynningar Símans hf. þann 3. nóvember 2023 þar sem fjallað var um ákvörðun fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands, dags. 31. október 2023, um að sekta Símann hf. um 76,5 m.kr. í tengslum við upplýsingagjöf vegna sölunnar á Mílu ehf. Landsréttur hafði áður staðfest ákvörðunina sbr. tilkynningu Símans hf. dags. 12. febrúar 2026. Síminn hf. óskaði eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar en rétturinn hafnaði beiðni félagsins um áfrýjunarleyfi. Afstaða Hæstaréttar er Símanum hf. ...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Flöggun eigin hlutir

Síminn hf. - Flöggun eigin hlutir Í dag, 26. mars 2026, var hlutafé Símans hf. lækkað um 75.000.000 hluti í samræmi við ákvörðun aðalfundar frá 12. mars sl. Lækkunin tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með kaupum á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlunum. Með breytingunni fór hlutfall eigin bréfa Símans hf. undir 5% af heildarfjölda hluta. Síminn hf. átti 148.868.692 eigin hluti fyrir þessar aðgerðir en á að þeim loknum 73.868.692 hluti eða sem nemur 3,08% af útgefnum hlutum í félaginu. Tilkynning þessi er gerð með vísan til 29. gr. (Flöggunarskylda vegna eigin hluta) laga nr...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Breytingar á hlutafé

Síminn hf. - Breytingar á hlutafé Í 19. gr. laga nr. 20/2021 um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu segir að ef útgefandi lækkar hlutafé skuli hann við fyrsta tækifæri og í síðasta lagi á síðasta viðskiptadegi þess mánaðar er breytingar eiga sér stað, birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða. Á aðalfundi Símans hf. þann 12. mars sl. var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins um kr. 75.000.000 að nafnverði en eftir lækkun yrði hlutafé samtals kr. 2.400.000.000. Lækkunin tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með k...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch