SIMINN Siminn HF

Síminn hf. – Sala Mílu ehf. til Ardian France SA og uppfærð afkomuspá

Síminn hf. – Sala Mílu ehf. til Ardian France SA og uppfærð afkomuspá

Þann 15. september 2022 var tilkynnt að Síminn hf. („Síminn“) og Ardian France SA („Ardian“) hafi skrifað undir samkomulag um tilteknar breytingar á samningi um kaup og sölu 100% hlutafjár í Mílu ehf. („Míla“) sem tilkynnt hafði verið um þann 23. október 2021 sem og 22. júlí 2022. Í tilkynningunni kom jafnframt fram að Samkeppniseftirlitið samþykkti viðskiptin með tilteknum skilyrðum og að efndadagur yrði í lok september 2022.

Síminn hefur í dag fengið greitt að fullu fyrir Mílu, annars vegar 32,7 milljarðar króna í reiðufé og hins vegar 17,5 milljarðar króna í formi skuldabréfs til þriggja ára. Skuldabréfið ber 4% vexti og er framseljanlegt. Öll skilyrði kaupsamnings aðila eru þar með uppfyllt.

Áætlaður söluhagnaður Símans af viðskiptunum er nú 37,8 milljarðar króna að teknu tilliti til alls kostnaðar vegna viðskiptanna og uppfærðrar áætlunar um veltufjármuni og skuldir Mílu. Eins og hefðbundið er í viðskiptum sem þessum fer í framhaldi efndadags fram aðlögun kaupverðs sem byggist á fjárhagsstöðu Mílu eins og hún er 30. september 2022, en reiknað er með að aðlögun kaupverðs, hvort sem það verði til hækkunar eða lækkunar verði ekki veruleg.

Í kynningu á uppgjöri 2F 2022 kom fram að væntingar væru um að seinni helmingur ársins myndi skila góðri EBITDA afkomu en þar sem sala Mílu væri ófrágengin væri óvissa um meðferð sölukostnaðar og því ekki tilefni á þeim tíma að endurskoða afkomuspá. Nú þegar óvissu hefur verið eytt hefur félagið uppfært EBITDA afkomuspá fyrir árið 2022 og gerir ný spá ráð fyrir að EBITDA samstæðu verði á bilinu 5,8 – 6,1 milljarðar króna en EBITDA spá samstæðunnar var á bilinu 5,3 – 5,6 milljarðar króna.

Í næstu viku mun stjórn Símans boða til hluthafafundar sem áætlað er að halda þann 26. október nk. Á hluthafafundinum verður nánar gerð grein fyrir viðskiptunum og tillaga lögð fram um að lækka hlutafé félagsins með greiðslu til hluthafa upp á 31,5 milljarða króna. Jafnframt er til skoðunar sala á framangreindu skuldabréfi eða eftir atvikum útgreiðsla þess til hluthafa en gera má ráð fyrir að tillaga þess efnis verði tekin fyrir á öðrum hluthafafundi.

Nánari upplýsingar veitir Orri Hauksson forstjóri Símans ( ).





EN
30/09/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Siminn HF

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Flöggun eigin hlutir

Síminn hf. - Flöggun eigin hlutir Í dag, 26. mars 2026, var hlutafé Símans hf. lækkað um 75.000.000 hluti í samræmi við ákvörðun aðalfundar frá 12. mars sl. Lækkunin tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með kaupum á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlunum. Með breytingunni fór hlutfall eigin bréfa Símans hf. undir 5% af heildarfjölda hluta. Síminn hf. átti 148.868.692 eigin hluti fyrir þessar aðgerðir en á að þeim loknum 73.868.692 hluti eða sem nemur 3,08% af útgefnum hlutum í félaginu. Tilkynning þessi er gerð með vísan til 29. gr. (Flöggunarskylda vegna eigin hluta) laga nr...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Breytingar á hlutafé

Síminn hf. - Breytingar á hlutafé Í 19. gr. laga nr. 20/2021 um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu segir að ef útgefandi lækkar hlutafé skuli hann við fyrsta tækifæri og í síðasta lagi á síðasta viðskiptadegi þess mánaðar er breytingar eiga sér stað, birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða. Á aðalfundi Símans hf. þann 12. mars sl. var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins um kr. 75.000.000 að nafnverði en eftir lækkun yrði hlutafé samtals kr. 2.400.000.000. Lækkunin tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með k...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Lækkun hlutafjár

Síminn hf. - Lækkun hlutafjár Á aðalfundi Símans hf. þann 12. mars 2026 var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins. Lækkunin nemur kr. 75.000.000 að nafnverði og tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með kaupum á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlunum. Eftir lækkun verður hlutafé samtals kr. 2.400.000.000. Beiðni hefur verið send til Nasdaq og mun lækkunin verða framkvæmd fimmtudaginn 26. mars 2026. Vísað er til tilkynningar félagsins sem birtist í fréttakerfi Kauphallar þann 12. mars sl. þar sem greint er frá niðurstöðum aðalfundar.

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Niðurstöður aðalfundar 12. mars 2026

Síminn hf. - Niðurstöður aðalfundar 12. mars 2026 Meðfylgjandi eru niðurstöður frá aðalfundi Símans hf. sem haldinn var í dag. Sjálfkjörið var í stjórn félagsins fyrir næsta starfsár. Stjórnin hefur skipt með sér verkum og er Jón Sigurðsson formaður stjórnar og Sigrún Ragna Ólafsdóttir varaformaður stjórnar.Stjórnin er þannig skipuð: Jón Sigurðsson, formaður stjórnarSigrún Ragna Ólafsdóttir, varaformaður stjórnarArnar Þór MássonBjarni ÞorvarðarsonValgerður Halldórsdóttir Sjálfkjörið var í tilnefningarnefnd félagsins fyrir næsta starfsár en nefndina skipa: Eyjólfur Árni RafnssonJensína B...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup Símans á ve...

Síminn hf. - Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup Símans á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Síminn hf. (Síminn) og Sýn hf. (Sýn) hafa komist að samkomulagi um helstu skilmála vegna mögulegra kaupa Símans á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar. Rekstrareiningin sem um ræðir inniheldur vefmiðlana Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal. Í skilmálaskjalinu er fjallað um helstu forsendur viðskiptanna og gert er ráð fyrir að heildarvirði (e. enterprise value) einingarinnar sé 5.250 milljónir króna og tekju...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch