SIMINN Siminn HF

Síminn hf. - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Síminn hf. - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Á aðalfundi Símans hf. sem haldinn var þann 13. mars 2025 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa hlutabréf í félaginu þannig að það ásamt dótturfélögum þess eigi, að öðrum lagaskilyrðum uppfylltum, allt að 10% af hlutafé þess, þ.e. að hámarki kr. 247.500.000 að nafnverði, í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun í samræmi við ákvæði 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2026, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar aðalfundar hefur stjórn Símans hf. tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin hlutum. Endurkaupin nú munu að hámarki nema 500 milljónum króna að kaupverði.

Arion banki hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.

Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 2.682.581 hlutir sem jafngildir 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í október 2025. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.

Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni hefjast fimmtudaginn 6. nóvember 2025.

Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.



EN
06/11/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Siminn HF

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi v...

Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun Í 52. viku 2025 keypti Síminn hf. 1.000.000 eigin hluti að kaupverði 14.550.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti22.12.202511:441.000.00014,55014.550.000144.478.282  1.000.000 14.550.000144.478.282 Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 6. nóvember 2025. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 500 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í ...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi v...

Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun Í 51. viku 2025 keypti Síminn hf. 5.000.000 eigin hluti að kaupverði 73.400.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti15.12.202510:511.000.00014,6014.600.000139.478.28216.12.202509:421.000.00014,8014.800.000140.478.28217.12.202509:371.000.00014,7014.700.000141.478.28218.12.202513:551.000.00014,7014.700.000142.478.28219.12.202509:471.000.00014,6014.600.000143.478.282  5.000.000 73.400.000143.478.282 Viðskiptin eru samkvæmt ...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Kaup á öllu hlutafé í Opnum Kerfum hf. og Öryggismiðstöð...

Síminn hf. - Kaup á öllu hlutafé í Opnum Kerfum hf. og Öryggismiðstöð Íslands hf. Síminn hf. hefur undirritað samninga um kaup á öllu hlutafé í Opnum kerfum hf. (OK) og Öryggismiðstöð Íslands hf. (ÖMÍ). Samanlagt heildarvirði (e. enterprise value) OK og ÖMÍ í viðskiptunum nemur 13.750 milljónum króna að viðbættum leiguskuldbindingum sem eru áætlaðar um 1.000 milljónir króna. Endanlegt kaupverð til greiðslu ræðst þó meðal annars af stöðu nettó vaxtaberandi skulda og veltufjármuna á viðmiðunardegi uppgjörs.Kaupin verða fjármögnuð með hlutafé í Símanum, lánsfé frá Arion banka, og handbæru fé...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Viðræður um möguleg kaup á Opnum kerfum

Síminn hf. - Viðræður um möguleg kaup á Opnum kerfum Í tilefni fréttaflutnings á vefnum Innherja vilja stjórnendur Símans hf. greina frá því að viðræður standa yfir við eigendur Opinna kerfa hf. um möguleg kaup á öllu hlutafé í félaginu. Síminn hf. hefur lagt fram óskuldbindandi tilboð sem er með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönnunar og bundið frekari skilyrðum.  Í ljósi þess að tilboðið er óskuldbindandi og háð fyrirvörum er málið ekki komið á það stig að unnt sé að leggja mat á hvort líkur séu á að það leiði til endanlegra viðskipta. Síminn hf. mun upplýsa markaðsaðila um framgang...

 PRESS RELEASE

Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi v...

Síminn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun Í 50. viku 2025 keypti Síminn hf. 4.000.000 eigin hluti að kaupverði 57.300.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti8.12.202514:031.000.00014,2514.250.000135.478.2829.12.202509:471.000.00014,2514.250.000136.478.28210.12.202510:251.000.00014,2014.200.000137.478.28212.12.202515:171.000.00014,6014.600.000138.478.282  4.000.000 57.300.000138.478.282 Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphö...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch