Síminn hf. - Uppgjör 4. ársfjórðungs 2020 verður birt eftir lokun markaðar 18. febrúar 2021
Rafrænn kynningarfundur verður haldinn 19. febrúar kl. 8:30
Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung 2020 þann 18. febrúar næstkomandi. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn föstudaginn 19. febrúar 2021 og hefst kl. 8:30. Fundurinn verður eingöngu rafrænn og munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: /fjarfestakynning
Þeir sem vilja bera upp spurningar á meðan á streymi stendur geta sent þær á og verður þeim svarað í lok fundarins.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi .