SKEL fjárfestingafélag hf.: Aðalfundur 6. mars 2025 – framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar
Aðalfundur SKEL fjárfestingafélags hf. verður haldinn þann 6. mars 2025 kl. 16:00 í Ballroom salnum í Reykjavík Edition, Austurbakka 2, 101 Reykjavík.
Framboðsfrestur til stjórnar er runninn út. Eftirtaldir aðilar hafa gefið kost á sér í stjórn félagsins:
- Birna Einarsdóttir
- Birna Ósk Einarsdóttir
- Guðni Rafn Eiríksson
- Jón Ásgeir Jóhannesson
- Sigurður Ásgeir Bollason
Nánari upplýsingar um frambjóðendur og tillögu tilnefninganefndar er að finna í viðhengi og á heimasíðu SKEL:
Framboðsfrestur til setu í tilnefningarnefnd félagsins er einnig runninn út. Eftirfarandi einstaklingar eru í framboði til tilnefningarnefndar:
- Almar Þór Möller
- Álfheiður Eva Óladóttir
Samkvæmt starfsreglum tilnefningarnefndar skal hluthafafundur kjósa tvo nefndarmenn en nýkjörin stjórn félagsins skipar einn úr stjórn í nefndina í kjölfar aðalfundar. Almar og Álfheiður verða því sjálfkjörin til setu í nefndinni.
Öll fundargögn má finna á heimasíðu félagsins:
Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á aðalfundinn á fundarstað frá kl. 15:00 á fundardegi. Til að auðvelda skráningu hvetjum við hluthafa til að forskrá sig eða umboðsmann sinn með því að senda nafn, kennitölu og eftir atvikum útfyllt umboðseyðublað á fyrir kl. 14:00 á fundardegi.
Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri,
Viðhengi
