Skel fjárfestingafélag hf.: Kaupsamningur undirritaður við Fasteignastýringu ehf., dótturfélag Kaldalóns, um sölu á 13 fasteignum
Vísað er til tilkynningar Skel fjárfestingafélags hf. („Skel“), dags. 22. desember sl., þar sem tilkynnt var að Skel og Kaldalón hf. („Kaldalón“) hefðu gert með sér skilmálaskjal um helstu skilmála kaupsamnings vegna kaupa Kaldalóns á 13 tilgreindum fasteignum í eigu Skel.
Skel og Fasteignastýring ehf., dótturfélag í fullri eigu Kaldalóns, hafa nú í kjölfar samþykkis aðalfundar Skel á sölu fasteignanna undirritað kaupsamning vegna umræddra fasteigna. Orkan IS ehf. og Löður ehf., dótturfélög í fullri eigu Skel, munu leigja fasteignirnar af Fasteignastýringu ehf.
Kaupverð fasteignanna er óbreytt frá því sem tilgreint var í fyrri tilkynningu og greiðist annars vegar með krónum 3.593.400.000 í reiðufé og hins vegar með 1.287.956.989 nýjum hlutum í Kaldalóni. Kaupsamningarnir eru háðir óverulegum fyrirvörum sem ráðgert er að verði uppfylltir á næstu vikum.
Enn er unnið er að útfærslu, samningum og skjalagerð vegna sölu Skel á öðrum fasteignum sem tilkynnt var um í áðurnefndri tilkynningu Skel, dags. 22. desember sl.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Þór Jóhannesson, forstjóri ()
