Skeljungur hf.: Skeljungur birtir ársuppgjör 2019 fimmtudaginn 13. febrúar - kynningarfundur 14. febrúar kl. 8:30
Skeljungur hf. mun birta ársuppgjör 2019 eftir lokun markaða fimmtudaginn 13. febrúar 2020.
Af því tilefni býður Skeljungur til opins kynningarfundar föstudaginn 14. febrúar, kl. 8:30, í höfuðstöðvum Skeljungs, Borgartúni 26, 8. hæð, 105 Reykjavík. Boðið verður upp á léttar veitingar frá kl. 8:15.
Á fundinum munu Árni Pétur Jónsson, forstjóri, og Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna uppgjörið og helstu þætti úr rekstrinum. Að fundi loknum gefst fundargestum tækifæri til þess að ræða við stjórnendur félagsins.
Kynningarefni af fundinum verður gert aðgengilegt á heimasíðu Skeljungs,
Nánari upplýsingar veitir Árni Pétur Jónsson, forstjóri,
Skeljungur er orkufyrirtæki sem selur vörur og þjónustu á Íslandi, í Færeyjum og á Norður-Atlantshafinu. Meginstarfsemi félagsins er innflutningur, birgðahald, sala og dreifing á eldsneyti og eldsneytistengdum vörum og smásala. Félagið starfrækir 76 eldsneytisstöðvar og 6 birgðastöðvar á Íslandi og í Færeyjum. Auk þess selur félagið áburð og efnavörur á Íslandi og rekur verslanir og þjónustar og selur olíu til húshitunar í Færeyjum. Viðskiptavinir Skeljungs spanna frá einstaklingum til fyrirtækja, í sjávarútvegi, landbúnaði, flutningum, flugi og til verktaka. Starfsemin er rekin undir merkjunum Skeljungur, Orkan, Kvikk og Magn. Meginmarkmið Skeljungs er að þjóna orkuþörf einstaklinga og fyrirtækja á hagkvæman og öruggan máta í sátt við umhverfi sitt.