Síldarvinnslan hf. - birting ársuppgjörs 2024 fimmtudaginn 6. mars
Síldarvinnslan hf. birtir ársuppgjör 2024 eftir lokun markaða fimmtudaginn 6. mars 2025.
Fjárfestakynning verður þann sama dag kl. 16:00 en þá mun Gunnþór Ingvason, forstjóri félagsins, kynna uppgjör félagsins og fara yfir ástand og horfur.
Fjárfestakynningin verður eingöngu send út á vefstreymi. Vefstreymið má nálgast á . Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en kynning hefst.
Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir og á meðan á fundi stendur á netfangið .
Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Síldarvinnslunnar, . Upptaka verður einnig aðgengileg á fjárfestasíðunni að fundi loknum.
Nánari upplýsingar veitir Gunnþór Ingvason í síma 470-7000 eða á
