SVN SILDARVINNSLAN

Síldarvinnslan: Ársuppgjör 2025

Síldarvinnslan: Ársuppgjör 2025



  • Árið 2025 var gott rekstrarár.
  • Veiðar og vinnsla bolfisks og uppsjávarfisks gekk vel.
  • Sala góð og flestir markaðir sterkir.
  • Vinnsla í Grindavík með eðlilegum hætti.
  • Áskoranir í rekstri hlutdeildarfélagsins Arctic Fish.
  • Gott rekstrarár hjá hlutdeildarfélaginu Polar Pelagic.



Helstu niðurstöður úr fjárhagsuppgjöri tímabilsins 

  • Hagnaður ársins nam 63,8 m USD og 19,2 m USD á fjórða ársfjórðungi. 
  • Rekstrartekjur ársins námu 378,4 m USD og 92,0 m USD á fjórða ársfjórðungi. 
  • EBITDA var 115,4 m USD eða 30,5% á árinu og 32,6 m USD eða 35,4% á fjórða ársfjórðungi. 
  • Heildareignir samstæðunnar í lok ársins námu 1.111,6 m USD og eiginfjárhlutfall var 66,1%. 

Rekstur 

Tekjur á árinu 2025 námu 378,4 m USD og 92,0 m USD á fjórða ársfjórðungi samanborið við 325,1 m USD árið 2024 og 88,3 USD á fjórða ársfjórðungi 2024. Rekstrartekjur jukust því um 53,2 m USD á milli ára eða 16,4%. Tekjuaukningin skýrist einkum af loðnuvertíð ársins og háum verðum á makríl- og síldarafurðum. Einnig hefur gengið betur í landvinnslu á bolfiski.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) á árinu 2025 nam 115,4 m USD eða 30,5% af rekstrartekjum. Á árinu 2024 var EBITDA 84,0 m USD og 25,8% af rekstrartekjum. Hækkun á milli tímabila nemur því 31,4 m USD. Á fjórða ársfjórðungi 2025 var EBITDA 32,6 m USD eða 35,4% af rekstrartekjum en hún var 26,0 m USD eða 29,4% af rekstrartekjum á fjórða ársfjórðungi 2024.  

Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 81,3 m USD árið 2025 samanborið við 56,1 m USD árið 2024. Á fjórða ársfjórðungi 2025 var hagnaður fyrir tekjuskatt 24,5 m USD samanborið við 20,3 m USD á sama tímabili 2024. Tekjuskattur fyrir árið 2025 nam 17,5 m USD og hagnaður ársins því 63,8 m USD samanborið við 44,1 m USD hagnað árið 2024. Hagnaður á fjórða ársfjórðungi var 19,2 m USD samanborið við 15,7 m USD á sama tímabili 2024.  

Efnahagur 

Heildareignir námu 1.111,6 m USD í lok desember 2025. Þar af voru fastafjármunir 904,5 m USD og veltufjármunir 207,1 m USD. Í lok árs 2024 námu heildareignir 1.059,6 m USD og þar af voru fastafjármunir 853,6 m USD og veltufjármunir 206,0 m USD. Fastafjármunir jukust því um 50,9 m USD. Helsta fjárfesting ársins er hlutafjáraukning í hlutdeildarfélaginu Arctic Fish. Jákvæður þýðingarmunur veldur m.a. hækkun á bókfærðu virði aflaheimilda og eignarhluta í hlutdeildarfélögum, en Arctic Fish er m.a. gert upp í EUR. Vísir ehf., dótturfélag Síldarvinnslunnar, er einnig gert upp í EUR. Gengi EUR styrktist um 12,9% gagnvart USD á árinu. Veltufjármunir hækkuðu um 1,0 m USD.

Fjárhagsstaða félagsins er sterk og nam eigið fé 734,8 m USD. Eiginfjárhlutfall var 66,1% í lok ársins en það var 60,7% í lok árs 2024.   

Heildarskuldir og -skuldbindingar félagsins námu 376,7 m USD og lækkuðu um 39,8 m USD frá áramótum. Vaxtaberandi skuldir voru 228,7 m USD í lok tímabilsins og lækkuðu um 45,9 m USD frá áramótum. 

Sjóðstreymi 

Handbært fé frá rekstri nam 90,2 m USD á árinu 2025 en var 80,0 m USD á sama tímabili 2024. Fjárfestingahreyfingar voru neikvæðar um 16,9 m USD og fjármögnunarhreyfingar neikvæðar um 79,3 m USD. Handbært fé í lok árs nam 97,3 m USD. 

Meginniðurstöður í íslenskum krónum á árinu 2025

Séu niðurstöður rekstrarreiknings ársins reiknaðar í íslenskar krónur á meðalgengi ársins (1 USD=128,37 kr.) voru rekstrartekjur 48,6 milljarðar króna.  EBITDA nam 14,8 milljörðum króna og hagnaður ársins var 8,2 milljarðar króna. Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar í íslenskar krónur á gengi 31. desember 2025 (1 USD=125,2 kr.) námu eignir samtals 139,2 milljörðum króna, skuldir 47,2 milljörðum króna og eigið fé 92,0 milljörðum króna.

Samþykkt ársreiknings

Uppgjör ársins 2025 var samþykkt á stjórnarfundi Síldarvinnslunnar hf. hinn 4. mars 2026 eftir lokun markaðar. Ársreikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS- International Financial Reporting Standards). 

Kynningarfundur 5. mars 2026

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður aðgengilegur fimmtudaginn 5. mars klukkan 16:00. Streymið verður aðgengilegt á vefsíðu aðgengilegt á streymisrás Síldarvinnslunnar á YouTube.

Frá forstjóra

Árið 2025 var gott rekstrarár og einkenndist af mikilli eftirspurn og háum verðum á öllum helstu mörkuðum, auk þess sem veiðar og vinnsla gengu vel. Afkoman var góð og er árið 2025 eitt af bestu rekstrarárum í sögu félagsins.

Óvissa vegna hækkunar veiðigjalda kemur ekki til með að hafa áhrif fyrr en á árinu 2026 og inn í framtíðina.

Árið hófst á minnstu loðnuvertíð í manna minnum. Væntingar stóðu til stærri kvótaúthlutunar og var úthlutunin því vonbrigði. Lítill kvóti nýttist félaginu þrátt fyrir það vel og voru verð á afurðum í sögulegu hámarki. Mikilvægt er að hægt sé að viðhalda mörkuðum svo þeir glatist ekki. Vertíðin í ár er svo orðin sögulega há í framleiðslu loðnuafurða inn á Asíumarkað.

Makrílveiðar og -vinnsla gengu vel og hækkaði verð á makrílafurðum verulega milli ára. Hlutdeildarfélagið Polar Pelagic, sem m.a. frystir afla um borð, átti einnig góða makrílvertíð.

Kolmunnaveiðar gengu vel, bæði í íslenskri og færeyskri lögsögu. Verð á mjöli hækkaði og markaðir voru sterkir á meðan verð á lýsi hélst tiltölulega stöðugt.

Síldveiðar við Austfirði gengu vel líkt og undanfarin ár og stóðu veiðar fyrir vestan á íslensku síldinni frá því nóvember og fram í desember. Aukin áhersla var lögð á manneldisvinnslu og var eftirspurn góð. Íslenska sumargotssíldin er eini síldarstofninn í Norður-Atlantshafi sem er með MSC-vottun en það styrkir samkeppnisstöðu afurðanna.

Bolfiskmarkaðir voru almennt sterkir, meðal annars vegna samdráttar aflaheimilda í þorski í Barentshafi á undanförnum árum.

Veiðar bolfiskskipanna gengu að sama skapi vel. Samdráttur í þorskkvóta er þó áhyggjuefni þar sem mælingar Hafrannsóknastofnunar benda ekki til þess að stofninn sé að styrkjast.

Starfsemi landvinnslunnar í Grindavík var stöðugri en árið áður og höfðu jarðhræringar ekki teljandi áhrif á reksturinn. Stjórnendur erum samt meðvitaðir um að hætta er til staðar og atburðum ekki lokið. Mikil eftirspurn var eftir saltfiski og verð góð. Þá gekk vinnsla í frystihúsinu í Grindavík vel þó verðhækkanir á ferskum og frystum afurðum hafi verið heldur minni en á söltuðum afurðum.

Aflaverðmæti frystitogarans Blængs hafa aldrei verið meiri og var aukin áhersla lögð á flakavinnslu vegna hagstæðra markaðsaðstæðna.

Hlutdeildarfélagið Arctic Fish skilaði tapi á árinu. Fiskeldi átti almennt undir högg að sækja vegna lækkandi heimsmarkaðsverðs á laxi sem skýrist af meira framboði af laxi. Há eldisgjöld, sem eru ekki í takti við afkomu greinarinnar né aðstæður erlendra samkeppnisaðila, höfðu einnig veruleg áhrif. Félagið hefur lagt áherslu á lækkun kostnaðar og hefur þróunin verið jákvæð síðustu mánuði, sem er mikilvægt í því alþjóðlega samkeppnisumhverfi sem félagið starfar. Þá hefur verðþróun á laxi verið jákvæð undanfarna mánuði. Greinin bindur vonir við að endurskoðun eldisgjalda og lagaumgjarðar leiði til hóflegri gjaldtöku meðan greinin er í uppbyggingarfasa.

Þrátt fyrir sterkt rekstrarár eru blikur á lofti. Gjöld og skattar hækkuðu verulega og fyrirsjáanleiki í rekstrarumhverfi hefur minnkað, sem dregur úr vilja til fjárfestinga.

Ráðgjöf í makríl og kolmunna dróst verulega saman milli ára en á móti kemur eru síldarstofnar að styrkjast og loðnustofninn virðist í betra ástandi en undanfarin ár. Aukin spenna í alþjóðamálum hefur áhrif á verð aðfanga, s.s. olíuverð, og þannig á verðbólguþróun hérlendis sem og erlendis.

Veiðigjöld hækkuðu umtalsvert eftir harðar deilur á vorþingi Alþingis á síðasta ári. Gjöld á þorsk, ýsu og makríl hækkuðu verulega á milli ára, en gjöld á síld urðu lægri en okkar áætlanir gerðu ráð fyrir. Áhrif hækkana koma þó ekki að fullu fram fyrr en árið 2028. Fyrirsjáanleiki í útreikningi veiðigjalda er takmarkaður og því óvissa um hvernig gjöldin koma til með að þróast.Aðrir skattar og opinber gjöld hækkuðu einnig, þar á meðal kolefnisgjöld og dreifingarkostnaður raforku. Hærri orkukostnaður veikir samkeppnisstöðu greinarinnar.

Til að mæta samdrætti í aflaheimildum var farið í hagræðingu í bolfiskflotanum en tveimur togurum verður lagt og einn tekinn í rekstur í staðinn. Þá var tilkynnt á liðnu ári um lokun fiskimjölsverksmiðjunnar á Seyðisfirði. Félagið bindur vonir við að hægt verið að ráðast í mótvægisaðgerðir með sveitarfélaginu til að draga úr neikvæðum áhrifum lokunarinnar.

Síldarvinnslan stendur sterk en rekstrarumhverfi næstu ára mun ráðast af þróun aflaheimilda, gjaldtöku og óvissu á alþjóðlegum mörkuðum. Það er verkefni okkar stjórnenda að aðlagast breytingum í umhverfinu líkt og við höfum alltaf þurft að gera. Ljóst er að fjárfestingar liðinna ára í nýsköpum hafa leitt til aukins orkusparnaðar og -nýtni, betri meðhöndlun hráefnis og úrvalsafurðum. Síldarvinnslan stendur því föstum fótum líkt og hún hefur gert síðastliðin 70 ár.

Fjárhagsdagatal

Aðalfundur 2025 – 19. mars 2026

1. ársfjórðungur 2026 – 21. maí 2026

2. ársfjórðungur 2026 – 27. ágúst 2026  

3. ársfjórðungur 2026 – 26. nóvember 2026

Ársuppgjör 2026 – 4. mars 2027  

Nánari upplýsingar

Gunnþór B. Ingvason, forstjóri

Viðhengi



EN
05/03/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on SILDARVINNSLAN

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan: Ársuppgjör 2025

Síldarvinnslan: Ársuppgjör 2025 Árið 2025 var gott rekstrarár.Veiðar og vinnsla bolfisks og uppsjávarfisks gekk vel.Sala góð og flestir markaðir sterkir.Vinnsla í Grindavík með eðlilegum hætti.Áskoranir í rekstri hlutdeildarfélagsins Arctic Fish.Gott rekstrarár hjá hlutdeildarfélaginu Polar Pelagic. Helstu niðurstöður úr fjárhagsuppgjöri tímabilsins  Hagnaður ársins nam 63,8 m USD og 19,2 m USD á fjórða ársfjórðungi. Rekstrartekjur ársins námu 378,4 m USD og 92,0 m USD á fjórða ársfjórðungi. EBITDA var 115,4 m USD eða 30,5% á árinu og 32,6 m USD eða 35,4% á fjórða ársfjórðungi. Heildare...

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan hf. - Birting ársuppgjörs 2025 fimmtudaginn 5. mars

Síldarvinnslan hf. - Birting ársuppgjörs 2025 fimmtudaginn 5. mars Síldarvinnslan hf. birtir ársuppgjör 2025 á fimmtudaginn kemur 5. mars 2026. Fjárfestakynning verður aðgengileg þann sama dag kl. 16 þar sem Gunnþór Ingvason, forstjóri félagsins, kynnir uppgjör félagsins og fer yfir ástand og horfur. Vefstreymið má nálgast á . Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Síldarvinnslunnar, . Nánari upplýsingar veitir Gunnþór Ingvason í síma 470-7000 eða á

 PRESS RELEASE

Fundarboð - Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. 2026

Fundarboð - Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. 2026 Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 19. mars 2026 í Safnahúsinu, Neskaupstað, kl. 14:00. Fundurinn verður einnig haldinn með rafrænum hætti og verður hluthöfum þannig jafnframt boðið upp á fullgilda rafræna þátttöku á fundinum í gegnum Lumi AGM án þess að hluthafar séu viðstaddir á fundarstað. Dagskrá fundarins er með eftirfarandi hætti: Skýrsla stjórnarEndurskoðaðir reikningar lagðir fram til staðfestingarTekin ákvörðun um greiðslu arðsTillaga stjórnar um starfskjarastefnuÁkveðin þóknun til stjórnar félagsins og...

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan hf. - Drög að stjórnendauppgjöri 2025

Síldarvinnslan hf. - Drög að stjórnendauppgjöri 2025 Drög að stjórnendauppgjöri vegna ársins 2025 liggja nú fyrir og samkvæmt þeim mun EBITDA afkoma ársins nema um USD 113 - 115 milljónir sem er nokkuð hærri en fyrri afkomuspá sem gerði ráð fyrir EBITDA afkomu að fjárhæð USD 96 – 104 milljónir. Er í drögunum gert ráð fyrir að hagnaður félagsins eftir skatta verði að fjárhæð USD 62 – 64 milljónir. Helstu ástæður hærri afkomu má rekja til sterkari markaða en einnig gekk síldarvertíð vel í lok ársins og var umfram áætlanir. Vinna við endurskoðun ársuppgjörs er í gangi og því geta lykiltölur e...

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan hf. - Samningur um viðskiptavakt

Síldarvinnslan hf. - Samningur um viðskiptavakt Síldarvinnslan hf. hefur endurnýjað samning við Landsbankann um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum í félaginu. Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins í því skyni að markaðsverð skapist á þeim og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. Samningurinn kveður á um að kaup- og sölutilboð skuli að lágmarki nema 15 milljónum íslenskra króna að markaðsvirði. Hámarksmagn viðskipta á hverjum degi skal nema 30 milljónum króna að nettó markaðsvirði, sem reiknast sem mismunur á þeim kaup- og sölutilboðum viðskipta...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch