SVN SILDARVINNSLAN

Síldarvinnslan hf. kaupir helmingshlut í Ice Fresh Seafood ehf.

Síldarvinnslan hf. kaupir helmingshlut í Ice Fresh Seafood ehf.

Síldarvinnslan hefur gengið frá kaupum á helmingshlut í sölufyrirtækinu Ice Fresh Seafood en með því lýkur viðræðum sem fyrst var tilkynnt um í lok mars á þessu ári.

Verðmæti Ice Fresh Seafood í viðskiptunum er metið 42,9 milljónir evra sem jafngildir 1,76 sinnum bókfært virði eigin fjár þess hinn 31. desember 2022. Viðskiptin felast annars vegar í kaupum á núverandi hlutum af Samherja hf. fyrir 10,7 milljónir evra, og hins vegar útgáfu nýs hlutafjár í Ice Fresh Seafood að fjárhæð 21,5 milljónir evra. Heildarvirði Ice Fresh Seafood verður 64,4 milljónir evra eftir hlutafjáraukninguna og fjárfesting Síldarvinnslunar nemur 32,2 milljónum evra.

Samhliða þessum viðskiptum mun Ice Fresh Seafood ganga frá kaupum á eignarhlutum í erlendum sölufélögum sem fyrirtækið hefur átt í farsælu viðskiptasambandi við undanfarin ár. Um er að ræða helmingshlut í Seagold Ltd. í Bretlandi, 100% eignarhlut í Ice Fresh Seafood SAS í Frakklandi, 67% hlutafjár í Ice Fresh Seafood Spain S.L. og helmingshlut í Aquanor Marketing Inc. í Bandaríkjunum fyrir samtals 13,9 milljónir evra. Verðmæti félaganna fjögurra í þessum viðskiptum er 1,37 sinnum bókfært virði eigin fjár þeirra í árslok 2022. Félögin voru áður hluti af samstæðu Samherja Holding ehf. og unnið hefur verið að viðskiptunum frá því í lok árs 2022.

Þá mun Ice Fresh Seafood   ganga frá kaupum á helmingshlut í sölufélaginu Cabo Norte S.A. á Spáni af Síldarvinnslunni fyrir 4,9 milljónir evra. Virði hlutarins byggir á því að verðmæti Cabo Norte S.A. sé 1,3 sinnum bókfært virði eigin fjár félagsins í lok árs 2022.

Velta Ice Fresh Seafood var 337 milljónir evra árið 2022 og velta erlendu sölufélaganna var 194 milljónir evra. Samanlögð velta að teknu tilliti til sölu milli félaga var 485 milljónir evra. Samanlögð EBITDA félaganna var 6,7 milljónir evra leiðrétt fyrir einskiptis kostnaði hjá Ice Fresh Seafood vegna stríðsins í Úkraínu.

Fjárfestingin í samræmi við stefnu Síldarvinnslunnar hf.

Fjárfestingin í Ice Fresh Seafood er í samræmi við þá stefnu Síldarvinnslunnar að grípa þau vaxtartækifæri sem bjóðast og stuðla að aukinni áhættudreifingu og arðsemi í rekstri. Ice Fresh Seafood er sölufyrirtæki sem býr yfir margra ára reynslu og sérþekkingu við sölu- og markaðssetningu sjávarafurða. Gústaf Baldvinsson er framkvæmdastjóri Ice Fresh Seafood og hefur gegnt því starfi frá stofnun fyrirtækisins í janúar 2007. Sölunet fyrirtækisins nær til yfir 60 landa og á bak við það er áratuga þekking og viðskiptasambönd á helstu mörkuðum fyrir íslenskt sjávarfang.

Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar, mun greina nánar frá viðskiptunum á fjárfestakynningu í kjölfar birtingar uppgjörs þriðja ársfjórðungs 2023, sem er áætluð 23. nóvember næstkomandi.

Eins og greint var frá í tilkynningu um upphaf viðræðna hinn 29. mars á þessu ári er Ice Fresh Seafood að fullu í eigu Samherja hf. sem er eigandi að 30,06% hlut í Síldarvinnslunni hf. Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Síldarvinnslunnar hf., er jafnframt forstjóri Samherja hf. Með vísan til ákvæða laga og starfsreglna stjórnar þá vék Þorsteinn Már sæti innan stjórnar Síldarvinnslunnar hf. við meðferð málsins og kom ekki að ákvörðunartöku vegna þess.

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka var ráðgjafi Síldarvinnslunnar hf. í viðskiptunum og fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Samherja hf.

Eru viðskiptin gerð með hefðbundnum fyrirvörum um niðurstöður áreiðanleikakannanna og samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar:

„Fjárfesting í Ice Fresh Seafood er gerð í því skyni að styrkja sölu- og markaðsmál félagsins og er rökrétt framhald af þróun sem hefur átt sér stað innan Síldarvinnslunnar hf. á undanförnum árum og birtist meðal annars í kaupum á Vísi hf. í Grindavík á síðasta ári. Ice Fresh Seafood hefur í mörg ár verið leiðandi í sölu- og markaðssetningu íslenskra sjávarafurða. Með þessum viðskiptum er Síldarvinnslan að komast lengra í virðiskeðju sjávarútvegs og nær neytendum þeirra afurða sem við framleiðum. Í því felast ákveðin sóknartækifæri.“

Gústaf Baldvinsson, framkvæmdastjóri Ice Fresh Seafood:

„Síldarvinnslan hefur verið leiðandi framleiðandi uppsjávarafurða á Íslandi í áratugi. Við hjá Ice Fresh Seafood höfum byggt upp sterk tengsl við fyrirtækið á undanförnum árum með sölu á hluta afurða þess. Með kaupum Síldarvinnslunnar á Vísi hf. í Grindavík varð Síldarvinnslan jafnframt stór framleiðandi bolfiskafurða. Samband okkar við Vísi hf. nær enn lengra aftur enda höfum við séð um sölu á hluta afurða fyrirtækisins í mörg ár. Við þessi viðskipti öðlast Ice Fresh Seafood ákveðna sérstöðu með aukinni aðkomu að sölu bæði íslenskra bolfisk- og uppsjávarafurða. Það skapar spennandi áskoranir sem við hlökkum til að takast á við.’’

Nánari upplýsingar veitir Gunnþór Ingvason forstjóri Síldarvinnslunnar hf. í síma 470 7000.



EN
26/09/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on SILDARVINNSLAN

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan: Ársuppgjör 2025

Síldarvinnslan: Ársuppgjör 2025 Árið 2025 var gott rekstrarár.Veiðar og vinnsla bolfisks og uppsjávarfisks gekk vel.Sala góð og flestir markaðir sterkir.Vinnsla í Grindavík með eðlilegum hætti.Áskoranir í rekstri hlutdeildarfélagsins Arctic Fish.Gott rekstrarár hjá hlutdeildarfélaginu Polar Pelagic. Helstu niðurstöður úr fjárhagsuppgjöri tímabilsins  Hagnaður ársins nam 63,8 m USD og 19,2 m USD á fjórða ársfjórðungi. Rekstrartekjur ársins námu 378,4 m USD og 92,0 m USD á fjórða ársfjórðungi. EBITDA var 115,4 m USD eða 30,5% á árinu og 32,6 m USD eða 35,4% á fjórða ársfjórðungi. Heildare...

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan hf. - Birting ársuppgjörs 2025 fimmtudaginn 5. mars

Síldarvinnslan hf. - Birting ársuppgjörs 2025 fimmtudaginn 5. mars Síldarvinnslan hf. birtir ársuppgjör 2025 á fimmtudaginn kemur 5. mars 2026. Fjárfestakynning verður aðgengileg þann sama dag kl. 16 þar sem Gunnþór Ingvason, forstjóri félagsins, kynnir uppgjör félagsins og fer yfir ástand og horfur. Vefstreymið má nálgast á . Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Síldarvinnslunnar, . Nánari upplýsingar veitir Gunnþór Ingvason í síma 470-7000 eða á

 PRESS RELEASE

Fundarboð - Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. 2026

Fundarboð - Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. 2026 Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 19. mars 2026 í Safnahúsinu, Neskaupstað, kl. 14:00. Fundurinn verður einnig haldinn með rafrænum hætti og verður hluthöfum þannig jafnframt boðið upp á fullgilda rafræna þátttöku á fundinum í gegnum Lumi AGM án þess að hluthafar séu viðstaddir á fundarstað. Dagskrá fundarins er með eftirfarandi hætti: Skýrsla stjórnarEndurskoðaðir reikningar lagðir fram til staðfestingarTekin ákvörðun um greiðslu arðsTillaga stjórnar um starfskjarastefnuÁkveðin þóknun til stjórnar félagsins og...

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan hf. - Drög að stjórnendauppgjöri 2025

Síldarvinnslan hf. - Drög að stjórnendauppgjöri 2025 Drög að stjórnendauppgjöri vegna ársins 2025 liggja nú fyrir og samkvæmt þeim mun EBITDA afkoma ársins nema um USD 113 - 115 milljónir sem er nokkuð hærri en fyrri afkomuspá sem gerði ráð fyrir EBITDA afkomu að fjárhæð USD 96 – 104 milljónir. Er í drögunum gert ráð fyrir að hagnaður félagsins eftir skatta verði að fjárhæð USD 62 – 64 milljónir. Helstu ástæður hærri afkomu má rekja til sterkari markaða en einnig gekk síldarvertíð vel í lok ársins og var umfram áætlanir. Vinna við endurskoðun ársuppgjörs er í gangi og því geta lykiltölur e...

 PRESS RELEASE

Síldarvinnslan hf. - Samningur um viðskiptavakt

Síldarvinnslan hf. - Samningur um viðskiptavakt Síldarvinnslan hf. hefur endurnýjað samning við Landsbankann um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum í félaginu. Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins í því skyni að markaðsverð skapist á þeim og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. Samningurinn kveður á um að kaup- og sölutilboð skuli að lágmarki nema 15 milljónum íslenskra króna að markaðsvirði. Hámarksmagn viðskipta á hverjum degi skal nema 30 milljónum króna að nettó markaðsvirði, sem reiknast sem mismunur á þeim kaup- og sölutilboðum viðskipta...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch