SYN SYN

Sýn hf.: Afkoma Sýnar hf. á fjórða ársfjórðungi og á árinu 2025.

Sýn hf.: Afkoma Sýnar hf. á fjórða ársfjórðungi og á árinu 2025.

Sterkur fjórði ársfjórðungur eftir umbreytingaár

Ársreikningur Sýnar hf. fyrir árið 2025 var samþykktur á stjórnarfundi þann 26. febrúar 2026

Helstu niðurstöður í rekstri á fjórða ársfjórðungi 2025:

Heildartekjur á fjórða ársfjórðungi (4F) 2025 námu 6.073 m.kr. og hækka um 6% milli ára (4F 2024: 5.731 m.kr.).

EBITDAaL nam 1.339 m.kr. á fjórðungnum og jókst um 32,3% milli ára. Fjárfestingar námu 1.048 m.kr. og var EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum var jákvætt um 291 m.kr. samanborið við 194 m.kr. á 4F 2024.

Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 384 m.kr. á fjórðungnum og jókst um 88% milli ára, leiðrétt fyrir virðisrýrnun sem féll til á samanburðartímabilinu.

Hagnaður eftir skatta nam 122 m.kr. á fjórðungnum. Á samanburðartímabilinu nam tap 1.194 m.kr., en leiðrétt fyrir virðisrýrnun var tapið 33 m.kr.

Hrein fjármagnsgjöld á fjórðungnum námu 327 m.kr. og hækka um 6,1% milli ára.

Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri:

„Árið 2025 var umbreytingarár hjá Sýn sem markaði ákveðin tímamót hjá félaginu. Við tókum stefnumótandi ákvarðanir sem renna styrkari stoðum undir reksturinn og móta fyrirtækið til lengri tíma litið.

Ráðist var í umfangsmikla endurmörkun þar sem vörumerkin Stöð 2 og Vodafone sameinuðust undir merkjum Sýnar. Endurmörkunin vakti mikla athygli á markaði og jókst vörumerkjavitund almennings hratt ásamt því að Sýn var tilnefnt sem Besta íslenska vörumerkið. Nýtt og einfaldara vöruframboð, þar sem fjarskipti og sjónvarp eru vöndluð saman, fékk góðar viðtökur á markaði. Heimatengingum fjölgaði um 7% á milli ára og hafa aldrei fleiri verið með farsímaáskrift hjá Sýn.

Við tryggðum okkur á ný sýningarrétt á Enska boltanum og héldum áfram metnaðarfullri íslenskri dagskrárgerð sem hefur skilað sér meðal annars í 48% aukningu í áhorfi á fjórða ársfjórðungi hjá 12-80 ára samanborið við sama tímabil í fyrra. Einnig var SÝN+ sigursælasta einkarekna sjónvarpsveitan á íslensku sjónvarpsverðlaununum sem afhent voru á árinu. Á sama tíma skapaði ákvörðun Fjarskiptastofu um kvöð á dreifingu línulegrar sjónvarpsdagskrár, um kerfi markaðsráðandi samkeppnisaðila, aukna óvissu um forsendur aðgreiningar á markaði. Nýlega var gert samkomulag um heildsölu og dreifingu á sjónvarpsefni og er óvissa í því máli ekki lengur til staðar.

Á árinu kláruðum við sölu fjarskiptainnviða til Sendafélagsins eftir umfangsmikla undirbúningsvinnu í samstarfi við Nova og sameinuðum dótturfélögin Njálu, Já og Endor inn í rekstur Sýnar til að einfalda skipulag og auka rekstrarsamlegð.

Mikilvægum áfanga var náð þegar við kláruðum innleiðingu á nýjum ferlum og fjárhagskerfi sem gerðu okkur kleift að ráðast í ítarlegri starfsþáttagreiningu. Það veitir okkur skýrari sýn á afkomu allra rekstrareininga félagsins og leggur grunn að markvissum aðgerðum í hagræðingu og endurskipulagningu.

Þrátt fyrir krefjandi aðstæður sýna niðurstöður fjórða ársfjórðungs að aðgerðir ársins eru að skila árangri. Við stöndum því á traustari grunni og förum inn í næsta tímabil með einfaldari rekstrargrunn, skýrari stefnu og aukna getu til að skapa sjálfbæran og arðbæran vöxt.“

Frekari upplýsingar 

  • Opinn kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn föstudaginn 27. febrúar kl. 8:30 í húsnæði félagsins að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík. Fjárfestakynning verður birt í kauphöll áður en fundurinn hefst. Vakin er athygli á að ekki verður hægt að fylgjast með fundinum í beinu streymi.
  • Tekið er á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið . 
  • Nánari upplýsingar má nálgast á síðu fjárfestatengsla Sýnar á og í fréttakerfi Nasdaq Iceland. 

Viðhengi



EN
26/02/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on SYN

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Framboð til stjórnar, varastjórnar og tilnefningarnefndar – B...

Sýn hf.: Framboð til stjórnar, varastjórnar og tilnefningarnefndar – Beiðni um margfeldiskosningu Aðalfundur Sýnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 26. mars 2026, kl. 15:00. Eftirtalin framboð bárust innan lögboðins framboðsfrests:Framboð til aðalstjórnar Hákon StefánssonHeiðrún Lind MarteinsdóttirKjartan BriemPetrea Ingileif GuðmundsdóttirRagnar Páll DyerRannveig Eir Einarsdóttir Framboð til varastjórnar: Daði KristjánssonIngibjörg Ásdís Ragnarsdóttir Þar sem einungis tvö framboð bárust til varastjórnar verða hlutaðeigandi sjálfkjörin á fundinum. Framboð til tilnefningarnefndar: Guðr...

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Endanleg dagskrá og tillögur Aðalfundar

Sýn hf.: Endanleg dagskrá og tillögur Aðalfundar Í viðhengi er að finna endanlega dagskrá og tillögur stjórnar til aðalfundar Sýnar hf. Eina breytingin frá fyrra fundarboði er að við dagskrána hefur bæst við dagskrárliður nr. 13 um fyrirhuguð viðskipti með vefmiðla og útvarp Sýnar hf. – til kynningar. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Sýn og Síminn undirrita skilmálaskjal um kaup Símans á vef- o...

Sýn hf.: Sýn og Síminn undirrita skilmálaskjal um kaup Símans á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Stjórn Sýnar hf. hefur tekið ákvörðun um að ganga til einkaviðræðna við Símann hf. á grundvelli skilmálaskjals um kaup á öllum vef- og útvarpsmiðlum félagsins. Rekstrareiningin sem um ræðir inniheldur vefmiðlana Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal. Heildarvirði (e. enterprise value) í viðskiptunum nemur samkvæmt skilmálaskjali 5.250 m.kr. Samkvæmt skilmálaskjalinu skuldbinda aðilar sig til þess að vin...

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Boðun aðalfundar

Sýn hf.: Boðun aðalfundar Aðalfundur Sýnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 26. mars kl. 15:00.Meðfylgjandi er fundarboð, dagskrá og tillögur stjórnar, skýrsla tilnefningarnefndar, og tillaga að breyttri starfskjarastefnu með auðkenndum breytingum innan hornkolfa. Allar frekari upplýsingar varðandi aðalfundinn auk fundargagna er hægt að nálgast á heimasíðu félagsins:   Viðhengi

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Afkoma Sýnar hf. á fjórða ársfjórðungi og á árinu 2025.

Sýn hf.: Afkoma Sýnar hf. á fjórða ársfjórðungi og á árinu 2025. Sterkur fjórði ársfjórðungur eftir umbreytingaár Ársreikningur Sýnar hf. fyrir árið 2025 var samþykktur á stjórnarfundi þann 26. febrúar 2026 Helstu niðurstöður í rekstri á fjórða ársfjórðungi 2025: Heildartekjur á fjórða ársfjórðungi (4F) 2025 námu 6.073 m.kr. og hækka um 6% milli ára (4F 2024: 5.731 m.kr.). EBITDAaL nam 1.339 m.kr. á fjórðungnum og jókst um 32,3% milli ára. Fjárfestingar námu 1.048 m.kr. og var EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum var jákvætt um 291 m.kr. samanborið við 194 m.kr. á 4F 2024. Rekstrarhagn...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch