A1W1Z1 Vatryggingafelag Islands hf

SKAGI: Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. slitið

SKAGI: Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. slitið

Með vísan til tilkynningar frá 6. október 2025, þar sem greint var frá undirritun samkomulags um helstu skilmála samruna („samkomulagið“) á milli Íslandsbanka hf. („Íslandsbanki“) og Skaga hf. („Skagi“), tilkynnir stjórn Skaga hér með um að samrunaviðræðum félaganna hefur verið slitið.

Stjórn Skaga harmar að þetta sé niðurstaða þess ferlis sem lagt var upp með enda er það mat hennar að verulegur ávinningur yrði af samruna félaganna og tækifæri til framtíðar fyrir alla hagaðila. Samruni við Íslandsbanka var í samræmi við stefnu félagins um að taka þátt í nauðsynlegum breytingum á fjármálamarkaði og voru skýr tækifæri til staðar til að sækja fram á öllum sviðum fjármálaþjónustu.

Í samkomulaginu voru festir í sessi helstu skilmálar fyrirhugaðs samruna félaganna, þar á meðal gagngjald í formi ákveðins fjölda nýrra hluta í Íslandsbanka, ásamt því að sammælst var um skilgreint og tímasett ferli áreiðanleikakannana, samlegðargreiningar, vinnu við samrunasamning og gerð tilkynninga til Samkeppniseftirlitsins og Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Í samkomulaginu var gert ráð fyrir mögulegri aðlögun gagngjalds byggt á efnislegum atriðum sem kynnu að koma fram í áreiðanleikakönnunum eða samfara hugsanlegum skilyrðum Samkeppniseftirlitsins sem kynnu að hafa áhrif á viðskiptalegar forsendur. Líkt og fram hefur komið í fyrri tilkynningum beggja aðila hefur vinna við framangreinda verkþætti gengið vel og verið án teljandi efnislegra athugasemda.

Íslandsbanki hefur nú lagt fram tillögu sem felur í sér verulegar breytingar á gagngjaldi, umfram efnisleg atriði sem hafa komið upp í ferlinu. Stjórn Skaga telur að ný tillaga Íslandsbanka rúmist ekki innan umsamdra skilmála og endurspegli á engan hátt virði Skaga í sameinuðu félagi. Aðilar hafa því sammælst um að fyrrnefnt samkomulag frá 6. október sé fallið niður og samrunaviðræðum slitið.

Íslandsbanki og VÍS hafa átt í farsælu samstarfi síðastliðið ár. Með samstarfinu njóta viðskiptavinir sem eru í viðskiptum við bæði félög ávinnings í vildarkerfum félaganna.  Að auki hafa viðskiptavinir nú betri yfirsýn yfir fjármálavörur og tryggingar í appi bankans. Aðilar eru sammála um að halda þessu góða samstarfi áfram, viðskiptavinum beggja til heilla.

Forsvarsmenn Skaga munu nú beina kröftum sínum alfarið að innleiðingu stefnu félagsins um arðbæran vöxt á sviði trygginga, fjárfestingarbankastarfsemi og eignastýringar. Sú umbreytingarvegferð hefur gengið vel og gott gengi félagsins undanfarið ber þess glögglega merki. Skagi hefur enn fremur verið virkur þátttakandi í þróun fjármálamarkaða og við teljum talsverð tækifæri vera fólgin í stöðu okkar í núverandi umhverfi.

Nánari upplýsingar veita:

Stefán Héðinn Stefánsson, stjórnarformaður:

Haraldur I. Þórðarson, forstjóri:



EN
21/02/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Vatryggingafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

SKAGI: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

SKAGI: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Skaga hf. (Skaga) þann 27. mars 2025 var samþykkt að heimila stjórn, í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun, að kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10 % af hlutafé félagsins.  Þann 17. október 2025 barst Skaga samþykki frá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands („fjármálaeftirlitið“) fyrir endurkaupum fyrir allt að 1.500 m.kr. Stjórn Skaga hefur á grundvelli fyrrgreindra heimilda ákveðið að hefja framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka hlutafé þess eða mæta skuldbindingu vegna kaup...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Aðalfundur Skaga 17. mars 2026

SKAGI: Aðalfundur Skaga 17. mars 2026 Stjórn Skaga hf. boðar til aðalfundar í félaginu sem haldinn verður þriðjudaginn 17. mars 2026 kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, Reykjavík, auk þess sem boðið verður upp á rafræna þátttöku. Fundarboð með nánari upplýsingum um dagskrá aðalfundar ásamt tillögum stjórnar, starfskjarastefnu og skýrslu tilnefningarnefndar má finna í meðfylgjandi viðhengjum. Nánari upplýsingar veitir Leifur Hreggviðsson með tölvupósti á   Viðhengi:   Viðhengi ...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. slitið

SKAGI: Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. slitið Með vísan til tilkynningar frá 6. október 2025, þar sem greint var frá undirritun samkomulags um helstu skilmála samruna („samkomulagið“) á milli Íslandsbanka hf. („Íslandsbanki“) og Skaga hf. („Skagi“), tilkynnir stjórn Skaga hér með um að samrunaviðræðum félaganna hefur verið slitið. Stjórn Skaga harmar að þetta sé niðurstaða þess ferlis sem lagt var upp með enda er það mat hennar að verulegur ávinningur yrði af samruna félaganna og tækifæri til framtíðar fyrir alla hagaðila. Samruni við Íslandsbanka var í samræmi við stefnu fé...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Ársuppgjör samstæðu Skaga hf. árið 2025

SKAGI: Ársuppgjör samstæðu Skaga hf. árið 2025 Verulegur afkomubati af grunnrekstri Metár í tryggingastarfsemi að baki Afkoma ársins 2025 og 4F hjá samstæðu Skaga hf. Helstu lykiltölur 2025 Samstæðan Hagnaður fyrir skatta nam 2.437m.kr. (2024: 2.545m. kr.)Hagnaður eftir skatta nam 1.902 m.kr. (2024: 2.258 m.kr.)Hagnaður á hlut nam 1,00 kr. (2024: 1,19 kr.)Afkoma grunnrekstrar fyrir skatta nam 2.417 m.kr (2024: 803 m.kr.)Arðsemi eigin fjár var 8,6% (2024: 10,2%) og gjaldþol samstæðu var 1,31 í lok tímabilsins.Eigið fé samstæðu nam 23.984 m.kr. við lok tímabilsins. Tryggingastarfsemi Á...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Birting ársuppgjörs 2025 og kynningarfundur

SKAGI: Birting ársuppgjörs 2025 og kynningarfundur Skagi mun birta uppgjör ársuppgjör 2025 eftir lokun markaða þann 18. febrúar næstkomandi. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn samdægurs klukkan 16:30 í húsnæði félagsins Ármúla 3 þar sem Haraldur I. Þórðarson, forstjóri, og Brynjar Þór Hreinsson, fjármálastjóri, munu kynna uppgjör ársins.   Hægt verður að fylgjast með fundinum á . Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á sömu slóð.    

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch