KALD KALDALON HF.

Kaldalón hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Kaldalón hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Aðalfundur Kaldalóns hf. („Kaldalón“ eða „félagið“) sem haldinn var þann 26. mars 2026 samþykkti að heimila stjórn félagsins að kaupa hluti í félaginu þannig að félagið, að öðrum lagaskilyrðum uppfylltum, eigi allt að 10% af hlutafé þess í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun í samræmi við ákvæði 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Heimild aðalfundarins gildir til 30. júní 2027.

Á grundvelli framangreindrar samþykktar aðalfundar Kaldalóns hefur stjórn félagsins ákveðið að nýta hluta framangreindrar heimildar og koma á endurkaupaáætlun um framkvæmd kaupa á hlutum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Áætlað er að kaupa allt að 10.000.000 hluti sem samsvarar 0,92% af útgefnum hlutum, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna nemi ekki hærri fjárhæð en kr. 250.000.000. Framkvæmd áætlunarinnar hefst þriðjudaginn 31. mars 2026 og mun áætlun vera í gildi þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó ekki lengur en til 30. júní 2026.

Í dag á Kaldalón 24.291.818 eigin hluti sem nemur 2,24% af útgefnum hlutum félagsins. Aðalfundur félagsins hinn 26. mars 2026 samþykkti að lækka hlutafé félagsins sem nemur framangreindum hlutum með niðurfellingu eigin hluta félagsins og er sú lækkun komin í framkvæmd.

Íslandsbanki hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.  Kaldalón hefur heimild til að lækka það heildarkaupverð sem Íslandsbanki skal kaupa fyrir eða til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er fyrrgreindu tímabili.

Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq á Íslandi, hvort sem er hærra. Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf Kaldalóns í kauphöll á síðustu 20 viðskiptadögum fyrir kaupdag, sbr. 3. mgr. 3 gr. framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnar (EBS) nr. 2016/1052. Íslandsbanki hf. mun annast útreikning á meðaltali daglegra viðskipta og bera ábyrgð á að framkvæmd endurkaupanna fari ekki yfir leyfilegt hámark.  

Endurkaupaáætlunin verður framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi eins og við á, þar með talið reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 1290/2025 um sama efni.

Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.

Nánari upplýsingar veitir

Jón Þór Gunnarsson, forstjóri



EN
27/03/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on KALDALON HF.

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Implementation of a Share Buyback Programme

Kaldalón hf.: Implementation of a Share Buyback Programme The annual general meeting of Kaldalón hf. (“Kaldalón” or the “Company”), held on 26 March 2026, approved an authorisation for the Board of Directors to acquire shares in the Company so that, subject to applicable legal requirements, the Company may hold up to 10% of its share capital. The purpose of the authorisation is to support market making in the Company’s shares and/or to establish a formal share buyback programme in accordance with Article 5 of Regulation (EU) No. 596/2014 of the European Parliament and of the Council on mark...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Kaldalón hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar Aðalfundur Kaldalóns hf. („Kaldalón“ eða „félagið“) sem haldinn var þann 26. mars 2026 samþykkti að heimila stjórn félagsins að kaupa hluti í félaginu þannig að félagið, að öðrum lagaskilyrðum uppfylltum, eigi allt að 10% af hlutafé þess í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun í samræmi við ákvæði 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir geg...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Niðurstöður aðalfundar 2026

Kaldalón hf.: Niðurstöður aðalfundar 2026 Eftirfarandi tillögur voru lagðar fyrir aðalfund Kaldalóns hf., sem haldinn var að Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, Reykjavík, þann 26. mars 2026 kl. 16:00. Ársreikningur félagsins 2025 og ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps félagsins á reikningsárinu Ársreikningur félagsins 2025 var lagður fram til staðfestingar og samþykktur samhljóða. Tillaga um að greiddur verði út arður til hluthafa, þ.e. eiganda þeirra hluta sem ekki eru í eigu Kaldalóns, að fjárhæð 1.000.000.000 króna vegna rekstrarársins 2025, eða sem nemur 0,94 kr. á hlut, var samþykk...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Results of the Annual General Meeting 2026

Kaldalón hf.: Results of the Annual General Meeting 2026 The following proposals were presented to the Annual General Meeting of Kaldalón hf., held at Reykjavík Natura, Nauthólsvegur 52, Reykjavík, on 26 March 2026 at 16:00. The Company’s 2025 Annual Financial Statements and decision on the allocation of profit or loss for the financial year The Company’s 2025 Annual Financial Statements were presented for confirmation and were unanimously approved. A proposal to pay a dividend to shareholders, i.e. the holders of shares not owned by Kaldalón, in the amount of ISK 1,000,000,000 for the 20...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Annual and Sustainability Report 2025 Published

Kaldalón hf.: Annual and Sustainability Report 2025 Published Kaldalón hf. has published its Annual and Sustainability Report for the year 2025 in Icelandic. The report is available on . The Company’s Annual Financial Statements were published on 4 March 2026. The Annual and Sustainability Report contains an overview of Kaldalón’s performance in 2025, key operational highlights and financial results, as well as detailed information on sustainability matters. Further information is available on Kaldalón’s . For further information, please contact: Jón Þór Gunnarsson, CEO

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch