Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 10 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 11.800.000 eigin hluti að kaupverði 219.795.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
| 2.3.2026 | 11:15:45 | 1.000.000 | 18,8 | 18.800.000 |
| 2.3.2026 | 13:50:32 | 1.700.000 | 18,8 | 31.960.000 |
| 3.3.2026 | 10:15:25 | 1.700.000 | 18,55 | 31.535.000 |
| 3.3.2026 | 14:34:54 | 1.000.000 | 18,35 | 18.350.000 |
| 4.3.2026 | 12:12:52 | 1.000.000 | 18,575 | 18.575.000 |
| 5.3.2026 | 14:23:02 | 2.000.000 | 18,6 | 37.200.000 |
| 5.3.2026 | 14:47:45 | 700.000 | 18,6 | 13.020.000 |
| 6.3.2026 | 14:52:12 | 2.700.000 | 18,65 | 50.355.000 |
| Samtals | 11.800.000 | 219.795.000 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 20. febrúar 2026 og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024 og endurnýjuð á aðalfundi Kviku þann 26. mars 2025.
Kvika hefur nú keypt samtals 23.200.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,501% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 435.055.000 kr. Eftir kaupin eru eigin hlutir Kviku samtals 297.567.380 hlutir eða sem nemur 6,426% af útgefnum hlutum í félaginu.
Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 631.548.500 kr. að kaupvirði en aldrei fleiri hluti en 45.000.000.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 20. febrúar 2026 til aðalfundar Kviku á árinu 2026 nema hámarks kaupvirði eða hámarks fjölda hluta verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar skal vera í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014 sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu
