NOVA PLATINUM NOVA HF

Nova klúbburinn hf.: Nova klúbburinn kaupir Ofar

Nova klúbburinn hf.: Nova klúbburinn kaupir Ofar

Nova klúbburinn hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Ofar hf. Kaupin eru liður í markvissri vaxtarstefnu Nova klúbbsins og styrkja verulega stöðu félagsins á fyrirtækjamarkaði.

Ofar er eitt stærsta þjónustufyrirtæki landsins á sviði tæknibúnaðar og lausna og þjónustar um 10.000 fyrirtæki, þar á meðal langflest stærri fyrirtæki landsins. Hjá félaginu starfa um 100 sérfræðingar og býr það yfir öflugum innviðum á sviði vöru- og innkaupastýringar, vöruhúss, dreifingar og verkstæðisþjónustu. Ofar hefur áratuga reynslu af því að styðja við fyrirtæki og stofnanir með tölvu- og tæknibúnaði frá yfir 150 heimsþekktum vörumerkjum á borð við Lenovo, Canon, Bose og Sony. Fyrirtækið býður einnig upp á framúrskarandi úrval hljóð- og myndlausna, prentlausna, heilbrigðislausna ásamt lausnum fyrir vöruhús, verslanir, veitingastaði, innviði, gagnaver og fleira.

Heildartekjur Ofar á árinu 2025 voru um 7,8 ma.kr., EBITDA félagins tæplega 620 m.kr. og rekstrarhagnaður um 360 m.kr. Heildarvirði (e. Enterprise value) kaupanna nemur 4.400 m.kr., en auk þess nema leiguskuldbindingar um 510 m.kr. í árslok 2025. Endanlegt kaupverð ræðst af nettó stöðu veltufjármuna og hreinum vaxtaberandi skuldum á uppgjörsdegi. Kaupin verða fjármögnuð með handbæru fé og lánsfé.

Breidd og slagkraftur Nova klúbbsins gagnvart fyrirtækjamarkaði og samstarfsaðilum eykst verulega með kaupunum. Kaupin eru mikilvægt skref í að styrkja Nova klúbbinn sem eignarhaldsfélag með aðgreindar tekjustoðir á sviði þjónustu, tækni og innviða. Nova hf. og Ofar verða rekin í sitthvoru lagi, hvort undir sínu vörumerki, en tækifærin liggja m.a. í auknu vöruframboði og kross-sölu þar sem markhópar félaganna eru ólíkir.

Áætlaður vöxtur Ofar á núverandi ári sem og áætluð jákvæð samlegðaráhrif á EBITDA samstæðu Nova klúbbsins eru samtals um 250 m.kr. á ársgrundvelli, þegar þau eru að fullu komin fram. Þannig verða áætluð heildaráhrif á EBITDA samstæðunnar um 870 m.kr., en gert er ráð fyrir að árlegar fjárfestingar samstæðunnar aukist um 60 m.kr. á ári. Viðskiptin munu þannig styrkja sjóðstreymi samstæðunnar verulega.

„Ofar er félag sem hefur byggt upp öfluga stöðu á markaði með fagmennsku og metnaði. Félagið, líkt og Nova, vinnur markvisst með tækninýjungar og hefur það að leiðarljósi að viðskiptavinir séu ávallt með bestu lausnir fyrir sína starfsemi. Ég kynntist Ofar vel þegar ég starfaði hjá Origo og hef fylgst með þróun félagsins síðan. Þar starfar sterkt og reynslumikið teymi með skýra sýn. Það verður einstaklega spennandi að efla frekari vöxt Ofar, þar sem tækifærin eru fjölmörg, og um leið nýta þau tækifæri sem skapast fyrir Nova klúbbinn á þeirri vaxtarvegferð sem við erum á,“ segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova klúbbsins.

„Ofar er sterkt og sjálfstætt félag  þar sem mikil uppbygging og þróun hefur átt sér stað á undanförnum árum. Með komu Nova klúbbsins sem eiganda skapast öflugur grunnur fyrir næsta vaxtarkafla félagsins. Við sjáum skýr tækifæri til áframhaldandi sóknar Ofar á sviði sölu og þjónustu á tölvu- og tæknibúnaði og á sama tíma beinir Skyggnir nú öllum kröftum sínum að kjarnafélögum á sviði upplýsingatækni, hugbúnaðarþróunar, rekstri tölvukerfa og netöryggis,“ segir Ari Daníelsson, forstjóri Skyggnis eignarhaldsfélags fyrir hönd seljenda.

Ráðgjafar kaupanda í viðskiptunum voru LOGOS og Deloitte og ráðgjafar seljanda voru Arctica Finance og BBA//Fjeldco.

Gert er ráð fyrir að viðskiptin taki gildi að uppfylltum fyrirvörum, þar á meðal samþykki samkeppnisyfirvalda.



EN
20/02/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on PLATINUM NOVA HF

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Uppgjör 4. ársfjórðungs og ársins 2025

Nova Klúbburinn hf.: Uppgjör 4. ársfjórðungs og ársins 2025 Áframhaldandi sterkur rekstur leggur grunn að enn frekari vexti Rekstur Nova skilaði góðri afkomu á árinu 2025 og á fjórða ársfjórðungi. Heildartekjur á fjórða ársfjórðungi voru um 4,0 milljarðar og jukust um 15,25% milli ára, þjónustutekjur námu 2,8 milljörðum og hækkuðu um 3,3%. EBITDA var 1,1 milljarður og hækkaði um 3,6%, EBITDA hlutfallið var 29,8%. Hagnaður fjórðungsins var 239 milljónir og lækkaði um 2,0% milli ára. Heildartekjur ársins námu 14,3 ma.kr sem er umfram útgefið spábil í upphafi árs (13,7-14 ma.kr) EBIDTA er jaf...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Uppgjör 4. ársfjórðungs og ársuppgjörs 2025 verðu...

Nova Klúbburinn hf.: Uppgjör 4. ársfjórðungs og ársuppgjörs 2025 verður birt eftir lokun markaða á morgun, 26. febrúar Nova Klúbburinn hf. birtir uppgjör fjórða ársfjórðungs og ársuppgjör 2025 eftir lokun markaða á morgun, fimmtudaginn 26. febrúar.Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn föstudaginn 27. febrúar, kl. 8:30, hjá Nova, Lágmúla 9, á 4. hæð. Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri, ásamt Þórhalli Jóhannssyni, fjármálastjóra, kynna uppgjör Nova Klúbbsins og svara fyrirspurnum. Boðið verður uppá beint streymi sem hægt verður að nálgast ásamt ...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 8 – Lok endur...

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 8 – Lok endurkaupa Í 8. viku 2026 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.100.000 eigin hluti að kaupverði 9.072.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)16.2.202610:34600.0004,332.598.00017.2.202610:39600.0004,332.598.00018.2.202609:57600.0004,332.598.00019.2.202610:28300.0004,261.278.000Samtals2.100.000 9.072.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Nova Klúbburinn átti 104.400.000 eigin hluti fyrir ...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Nova klúbburinn kaupir Ofar

Nova klúbburinn hf.: Nova klúbburinn kaupir Ofar Nova klúbburinn hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Ofar hf. Kaupin eru liður í markvissri vaxtarstefnu Nova klúbbsins og styrkja verulega stöðu félagsins á fyrirtækjamarkaði. Ofar er eitt stærsta þjónustufyrirtæki landsins á sviði tæknibúnaðar og lausna og þjónustar um 10.000 fyrirtæki, þar á meðal langflest stærri fyrirtæki landsins. Hjá félaginu starfa um 100 sérfræðingar og býr það yfir öflugum innviðum á sviði vöru- og innkaupastýringar, vöruhúss, dreifingar og verkstæðisþjónustu. Ofar hefur áratuga reynslu af því að ...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 7

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 7 Í 7. viku 2026 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 13.242.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)09/02/202614:02600.0004,462.676.00010/02/20269:59600.0004,462.676.00011/02/20269:42600.0004,432.658.00012/02/202612:24600.0004,382.628.00013/02/20269:40600.0004,342.604.000Samtals3.000.000 13.242.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluni...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch