NOVA PLATINUM NOVA HF

Nova klúbburinn hf.: Nova og Rafal sameina krafta sína með stofnun nýs hátæknifélags

Nova klúbburinn hf.: Nova og Rafal sameina krafta sína með stofnun nýs hátæknifélags

Nova og Rafal stefna að því að stofna nýtt félag sem mun sameina reynslu Rafal í stafrænni þróun og öflugt fjarskiptakerfi Nova með það að markmiði að bjóða fyrirtækjum og stórnotendum framúrskarandi lausnir sem byggja á nýjustu fjarskiptatækni.

Nova klúbburinn hf. og Rafal ehf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um stofnun nýs sameiginlegs félags sem mun sérhæfa sig í IoT-lausnum (Internet of Things), eins og snjallvöktun, orkustjórnun og gagnastýrðri þjónustu. Með fyrirvara um endanlegan frágang samninga verður félagið byggt á styrkleikum beggja fyrirtækja: annars vegar öflugu fjarskiptakerfi Nova, sem er meðal þeirra fullkomnustu í Evrópu, og hins vegar yfir 40 ára reynslu Rafal í hönnun, smíði og rekstri raforku- og tæknilegra innviða. Nova mun fara með meirihlutaeign í nýju félagi.

Markmið félagsins verður að gefa viðskiptavinum tækifæri á að nýta sér nýjustu tækni til vöktunar og stýringar á sínum auðlindum, en með fjarvöktun og stýringu má spara verulegan tíma, kostnað og bæta ákvarðanatöku í rekstri. Lausnirnar spila jafnframt stórt hlutverk í umhverfismálum og skapa grunn fyrir gagnadrifnari nálgun í nýtingu auðlinda. Þetta fellur vel að stefnu og framtíðarsýn Nova að bjóða tæknibúnað og lausnir fyrir innviði fyrirtækja og samfélagsins, og er rökrétt framhald af kaupum Nova á Ofar.

Félaginu er ætlað að hraða þróun á markaði hlutanetslausna á Íslandi, en markaður fyrir IoT-lausnir á Norðurlöndum hefur farið vaxandi á undanförnum árum og þó svo að markaðurinn sé að hluta til frábrugðinn, þá eru tækifærin samhliða því fjölmörg á Íslandi. Með sameiginlegri nálgun telja Nova og Rafal sig vel í stakk búin til að styðja við þróun snjallari, skilvirkari, öruggari og sjálfbærari innviða hér á landi.

„Nova og Rafal hafa verið að vinna að ýmsum IoT lausnum fyrir fyrirtæki síðustu misseri og eru því vel kunnug hvoru öðru og þeim tækifærum sem eru á þessum markaði í dag. Með því að sameina krafta Nova og Rafal með þessum hætti fæst enn meiri slagkraftur á þessu sviði. Þjónusta Nova til stórnotenda í gegnum sérlausnir hefur aukist ár frá ári og sjáum við aukna þörf viðskiptavina á breiðara vöruframboði á þessum grunni.

Með þessu fæst enn betri nýting á innviðum Nova í gegnum þrjá sölukanala; Nova á einstaklingsmarkaði, Ofar á fyrirtækjamarkaði og nýtt félag sem þjónustar stórnotendur, gagnaver, ríki og sveitarfélög. Rafal hefur þegar sýnt hvað er hægt að gera á þessu sviði og við sjáum mikil tækifæri í að þróa þessar lausnir áfram saman með markvissari hætti.“ segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova klúbbsins.

Valdimar tekur undir með Sylvíu,

“Undanfarin ár höfum við hjá Rafal umbreytt fyrirtækinu í leiðandi þekkingar- og þjónustumiðstöð á sviði orku-, rafmagns- og fjarskiptainnviða. Við höfum byggt upp mikla reynslu og þekkingu á sviði snjallra innviðalausna sem bæta vöktun og stýringar, auka öryggi og stuðla að betri nýtingu á auðlindum.

Framtíðin kallar á enn snjallari og sjálfbærari innviði og með þessu samstarfi við Nova erum við að taka mikilvægt næsta skref og skapa öflugan vettvang fyrir þróun snjallra innviða á Íslandi. Fyrir núverandi viðskiptavini okkar þýðir þetta samstarf að þjónustan heldur áfram óskert með okkar frábæra stafsfólki en með auknum styrk til að þróa og innleiða enn betri lausnir.

Rafal mun áfram vinna að því að umbreyta orku í tækifæri og byggja upp orku- og rafmagnsinnviði sem styðja við örugga og skilvirka orkunýtingu fyrir komandi kynslóðir.” segir Valdimar að lokum.

Viðhengi



EN
26/03/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on PLATINUM NOVA HF

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Niðurstöður aðalfundar 26. mars 2026

Nova klúbburinn hf.: Niðurstöður aðalfundar 26. mars 2026 Aðalfundur Nova klúbbsins hf. var haldinn í dag, fimmtudaginn 26. mars 2026. Helstu niðurstöður fundarins voru eftirfarandi: Í stjórn félagsins voru endurkjörin þau: Hrund Rudolfsdóttir  Jón Óttar Birgisson  Jóhannes Þorsteinsson  Sigríður Olgeirsdóttir Steinunn Hlíf Sigurðardóttir Stjórn hefur skipt með sér verkum og var Jón Óttar Birgisson kjörinn formaður stjórnar, og tekur því við af Sigríði Olgeirsdóttur, sem gegnt hefur stjórnarformennsku undanfarin þrjú ár. Í tilnefningarnefnd félagsins voru endurkjörin þau:   Thelma Kri...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Nova og Rafal sameina krafta sína með stofnun nýs...

Nova klúbburinn hf.: Nova og Rafal sameina krafta sína með stofnun nýs hátæknifélags Nova og Rafal stefna að því að stofna nýtt félag sem mun sameina reynslu Rafal í stafrænni þróun og öflugt fjarskiptakerfi Nova með það að markmiði að bjóða fyrirtækjum og stórnotendum framúrskarandi lausnir sem byggja á nýjustu fjarskiptatækni. Nova klúbburinn hf. og Rafal ehf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um stofnun nýs sameiginlegs félags sem mun sérhæfa sig í IoT-lausnum (Internet of Things), eins og snjallvöktun, orkustjórnun og gagnastýrðri þjónustu. Með fyrirvara um endanlegan frágang samninga v...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Aðalfundur 26. mars 2026 – Framboð til stjórnar o...

Nova klúbburinn hf.: Aðalfundur 26. mars 2026 – Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar Aðalfundur Nova klúbbsins hf. verður haldinn fimmtudaginn 26. mars, kl. 16. Eftirtalin framboð bárust til setu í stjórn félagsins: Erla Ósk ÁsgeirsdóttirHaukur SkúlasonHjördís Elsa ÁsgeirsdóttirHrund RudolfsdóttirJóhannes ÞorsteinssonJón Óttar BirgissonSigríður OlgeirsdóttirSteinunn Hlíf Sigurðardóttir Framboðsfrestur er nú útrunninn og hefur stjórn félagsins staðfest lögmæti framboðanna. Í samþykktum Nova klúbbsins hf. kemur fram að fimm skipa stjórn félagsins og fer því fram stjórnarkjör á aðalf...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Aðalfundur 26. mars 2026 – Endanleg dagskrá og ti...

Nova klúbburinn hf.: Aðalfundur 26. mars 2026 – Endanleg dagskrá og tillögur Aðalfundur Nova klúbbsins hf. verður haldinn rafrænt og á skrifstofu félagsins að Lágmúla 9, Reykjavík, fimmtudaginn 26. mars 2026, kl. 16:00.Meðfylgjandi er endanleg dagskrá fundarins og tillögur stjórnar, sem er óbreytt frá fundarboðun.Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru hvattir til að skrá sig á  fyrir kl. 16:00 þann 25. mars, eða degi fyrir fundardag. Skráningu á fundinn þarf að fylgja afrit af skilríkjum og umboð, ef við á. Framboðsfrestur ...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Aðalfundur 26. mars 2026

Nova Klúbburinn hf.: Aðalfundur 26. mars 2026 Aðalfundur Nova Klúbbsins hf. verður haldinn fimmtudaginn 26. mars 2026, klukkan 16:00, að Lágmúla 9, 108 Reykjavík. Meðfylgjandi er fundarboð, sem tiltekur dagskrá fundarins, og tillögur stjórnar sem lagðar verða fyrir fundinn. Fundargögn og allar frekari upplýsingar vegna fundarins er að finna á vef félagsins,  Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch