NOVA PLATINUM NOVA HF

Nova klúbburinn hf.: Þuríður Björg lætur af störfum hjá Nova

Nova klúbburinn hf.: Þuríður Björg lætur af störfum hjá Nova

Þuríður Björg Guðnadóttir, framkvæmdastjóri markaðssóknar hjá Nova, hefur óskað eftir því að láta af störfum hjá félaginu. Hún hefur starfað hjá Nova frá stofnun og setið í framkvæmdastjórn frá árinu 2017. Þuríður lætur af störfum um næstu mánaðarmót en mun áfram veita félaginu ráðgjöf og styðja við yfirstandandi verkefni.

Þuríður er með B.Sc. í Rekstrarverkfræði og er stjórnendamarkþjálfi frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hóf störf 18 ára gömul í þjónustuveri Nova, við stofnun félagsins, og hefur sinnt margvíslegum verkefnum, m.a. sem sölu- og þjónustustjóri, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs, framkvæmdastjóri upplifunar og síðast sem framkvæmdastjóri markaðssóknar. Þuríður sat í stjórn Lyfju á árunum 2018-2024 og situr nú í stjórn Vís trygginga.

„Ég er ótrúlega stolt af árangrinum sem við höfum náð saman og því sem við höfum byggt upp. Við höfum alltaf haft óbilandi trú á því að hægt sé að gera hlutina öðruvísi, skemmtilegri og betur. Það hefur verið lykillinn að okkar árangri og ég er mjög spennt fyrir því sem framtíðin ber í skauti sér – bæði fyrir mig og fyrir Nova. Það hefur verið algjörlega einstakt að fá að vera í hópi Nova dansaranna, að tilheyra stærsta skemmtistað í heimi allan þennan tíma, ástríðufullum hópi sem brennur fyrir árangri og gefst aldrei upp.  Núna er réttur tími fyrir mig að flytja að heiman og stíga inn í nýjar áskoranir. Ég held áfram að hvetja Nova af hliðarlínunni og fylgjast með félaginu vaxa áfram, dafna og vinna stóra sigra í góðum höndum” segir Þuríður Björg.

„Það er alltaf eftirsjá að frábæru fólki en Þuríður skilur eftir sig mikið og mikilvægt starf sem við búum að. Hún hefur verið lykilmanneskja í því að móta, hlúa að og auka viðskiptaánægju meðal viðskiptavina Nova með frábærum árangri. Nú þegar við hefjum nýjan kafla í sögu Nova og stígum næstu skref inn í framtíðina byggjum við á þeim góða grunni sem hefur gert Nova að því magnaða fyrirtæki sem það er í dag. Við óskum Þuríði alls hins besta og hlökkum til að fylgjast með henni takast á við næstu verkefni.“, segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova.



EN
24/10/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on PLATINUM NOVA HF

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Nova Klúbburinn birtir uppgjör þriðja ársfjórðung...

Nova klúbburinn hf.: Nova Klúbburinn birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2025 Góð afkoma og mikil tækifæri til vaxtar Rekstur Nova skilaði góðri afkomu á þriðja ársfjórðungi ársins. Heildartekjur voru um 3,5 milljarðar og jukust um 3,7% milli ára, þjónustutekjur námu 2,8 milljörðum og hækkuðu um 1,8%. EBITDA var 1,1 milljarður og lækkaði um 7,4%, EBITDA hlutfallið var 31,6%. Hagnaður fjórðungsins var 228 milljónir og lækkaði um 29,3% milli ára. Helstu niðurstöður á þriðja ársfjórðungi: Heildartekjur voru 3.514 m.kr. og vaxa um 3,7% á milli áraÞjónustutekjur námu samtals 2.761 m.kr. og va...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf: Nova hf. og Sýn hf. undirrita samninga um framsal ...

Nova klúbburinn hf: Nova hf. og Sýn hf. undirrita samninga um framsal 4G/5G dreifikerfa í sameiginlegt félag, Sendafélagið ehf. Mikilvægum áfanga náð varðandi framtíðarrekstrarfyrirkomulag SendafélagsinsNova hf. (kt. 531205-0810) og Sýn hf. (kt. 470905-1740) hafa í dag undirritað samstarfssamning og hluthafasamning sem kveða á um framsal 4G og 5G dreifikerfa (e. Radio Access Network eða RAN) félaganna til Sendafélagsins ehf. (kt. 440515-1850), í þeim tilgangi að ná fram enn meiri hagræðingu í rekstri þessara innviða og auka fjárfestingargetu. Með gildistöku samstarfssamningsins fellur niður...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 43

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 43 Í 43. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.400.000 eigin hluti að kaupverði 11.886.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)20.10.202513:20600.0004,972.982.00021.10.202515:29600.0004,962.976.00023.10.202514:18600.0004,962.976.00024.10.202514:53600.0004,922.952.000Samtals2.400.000 11.886.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljó...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Þuríður Björg lætur af störfum hjá Nova

Nova klúbburinn hf.: Þuríður Björg lætur af störfum hjá Nova Þuríður Björg Guðnadóttir, framkvæmdastjóri markaðssóknar hjá Nova, hefur óskað eftir því að láta af störfum hjá félaginu. Hún hefur starfað hjá Nova frá stofnun og setið í framkvæmdastjórn frá árinu 2017. Þuríður lætur af störfum um næstu mánaðarmót en mun áfram veita félaginu ráðgjöf og styðja við yfirstandandi verkefni. Þuríður er með B.Sc. í Rekstrarverkfræði og er stjórnendamarkþjálfi frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hóf störf 18 ára gömul í þjónustuveri Nova, við stofnun félagsins, og hefur sinnt margvíslegum verkefnum, m.a....

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 42

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 42 Í 42. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 1.200.000 eigin hluti að kaupverði 5.856.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)14.10.202513:27600.0004,842.904.00015.10.202510:13600.0004,922.952.000Samtals1.200.000 5.856.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch