OLGERD OLGERDIN EGILL SKALLAGRIMSSON HF.

Bera hf.: Andri Þór skiptir um hlutverk og býður sig fram í stjórn – Jón Þorsteinn og Óli Rúnar stýra Beru og Ölgerðinni

Bera hf.: Andri Þór skiptir um hlutverk og býður sig fram í stjórn – Jón Þorsteinn og Óli Rúnar stýra Beru og Ölgerðinni

Andri Þór Guðmundsson, sem sinnt hefur starfi forstjóra Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf., (nú Bera hf.) í rúmlega tvo áratugi, hefur ákveðið að skipta um hlutverk, láta af störfum sem forstjóri, bjóða sig fram til stjórnar og gefa kost á sér til stjórnarformennsku móðurfélagsins Beru. Jafnframt mun Andri Þór sinna sértækum verkefnum með áherslu á fyrirliggjandi tækifæri til vaxtar félagsins. 

Þá hefur Jón Þorsteinn Oddleifsson verið ráðinn forstjóri Beru og Óli Rúnar Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar. Jón Þorsteinn hefur síðustu ár sinnt starfi framkvæmdastjóra fjármála- og mannauðssviðs Beru og Óli Rúnar starfi framkvæmdastjóra markaðssviðs. 

Breytingarnar miða við þann 1. mars næstkomandi.  

Eins og komið hefur fram eru spennandi tímar fram undan hjá fyrirtækinu, en með tilkomu Ölgerðarinnar sem sérstaks dótturfélags innan Beru sá ég ákveðin tækifæri til breytinga og öflugrar sóknar samstæðunnar. Ég bar hugmynd mína um að láta af störfum sem forstjóri Ölgerðarinnar og bjóða mig fram til stjórnar á næsta aðalfundi, undir stjórnarformanninn Boga Þór Siguroddsson. Úr þeim samtölum kom sú hugmynd að ég myndi jafnframt sækjast eftir því að taka við af honum sem stjórnarformaður og sinna stórum og sértækum verkefnum fyrir félagið sem snúa meðal annars að framtíðaruppbyggingu erlenda hluta starfseminnar og viðskiptaþróun með áherslu á ytri vöxt félagsins. Með þessum breytingum erum við að fara í sannkallaðan fluggír, efla félagið verulega og setja aukinn kraft á spennandi vegferð,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Beru.  

Bogi Þór Siguroddsson, stjórnarformaður Beru og stærsti einstaki hluthafi félagsins, segir þetta skynsamlegt skref á ákveðnum tímamótum.  

Með þeim áherslubreytingum sem verða með tilkomu Ölgerðarinnar sem sérstaks dótturfélags Beru, fannst mér rétt að Andri Þór kæmi ekki aðeins í stjórn móðurfélagsins, heldur tæki við stjórnarformennsku félagsins og leiddi þá sókn sem fram undan er. Fyrirtækið er afar öflugt og verður enn öflugra með þeim áherslubreytingum, sóknarsinnaða hugarfari og hugmyndum sem liggja á borðinu,“ segir Bogi Þór Siguroddsson, stjórnarformaður Ölgerðarinnar.  

Bera hf. er skráð í Kauphöll og er móðurfyrirtæki nokkurra rekstrarfélaga. Áætluð velta samstæðunnar verður hátt í 60 milljarðar króna á næsta fjárhagsári og samanlagður starfsmannafjöldi um 600 manns.

Á hluthafafundi félagsins þann 26. febrúar var samþykkt að breyta nafni Ölgerðarinnar í Beru og allur rekstur félagsins sem snerti framleiðslu og sölu á drykkjarvörum yrði framseldur til dótturfélags sem heitir nú Ölgerðin Egill Skallagrímsson. Miðar framsal þessarar rekstrareiningar til Ölgerðarinnar við 1. mars 2026.  Eftir þessar breytingar verða rekstrarfélögin Ölgerðin, Kjarnavörur, Gæðabakstur, Collab Export, Iceland Spring, Danól og Mýrar fasteignafélag systurfélög og í eigu Beru sem jafnframt veitir félögunum stoðþjónustu. 

Bera var nafn móður Egils Skallagrímssonar. Nafnið hefur því sögulega og skýra tengingu við Ölgerðina Egil Skallagrímsson.

Nánari upplýsingar veitir: 

Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Beru í síma 665 8010



EN
28/02/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on OLGERDIN EGILL SKALLAGRIMSSON HF.

 PRESS RELEASE

Bera hf.: Andri Þór skiptir um hlutverk og býður sig fram í stjórn – J...

Bera hf.: Andri Þór skiptir um hlutverk og býður sig fram í stjórn – Jón Þorsteinn og Óli Rúnar stýra Beru og Ölgerðinni Andri Þór Guðmundsson, sem sinnt hefur starfi forstjóra Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf., (nú Bera hf.) í rúmlega tvo áratugi, hefur ákveðið að skipta um hlutverk, láta af störfum sem forstjóri, bjóða sig fram til stjórnar og gefa kost á sér til stjórnarformennsku móðurfélagsins Beru. Jafnframt mun Andri Þór sinna sértækum verkefnum með áherslu á fyrirliggjandi tækifæri til vaxtar félagsins.  Þá hefur Jón Þorsteinn Oddleifsson verið ráðinn forstjóri Beru og Óli ...

 PRESS RELEASE

Bera hf.: Fjárhagsdagatal 2026

Bera hf.: Fjárhagsdagatal 2026 Bera hf. (áður Ölgerðin) mun birta tilkynningar,  árshluta- og ársuppgjör og halda aðalfund í samræmi við það sem hér segir: EfniDags. Birting ársreiknings fjárhagsársins 2025 sem lýkur 28. febrúar 2026 (Tímabilið 1. mars - 28. febrúar)  16. apríl 2026 Aðalfundur 2026  13. maí 2026   Afkomutilkynning   (Tímabilið 1. mars - 31. maí)  18. júní 2026 Birting árshlutareiknings fyrstu 6 mánaða fjárhagsársins 2026   (Tímabilið 1. mars - 31. ágúst)   8. október 2026 Afkomutilkynning  (Tímabilið 1. mars - 30. nóvember)  17. desember 2026  Birting ársreiknings fjárhagsá...

 PRESS RELEASE

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Niðurstöður hluthafafundar 26. febr...

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Niðurstöður hluthafafundar 26. febrúar 2026 Hluthafafundur í Ölgerðinni Egill Skallagrímsson hf., var haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Grjóthálsi 7-11, Reykjavík, hinn 26. febrúar 2026, kl. 16:00. Samþykkt var tillaga stjórnar um að breyta nafni félagsins í Bera hf., og að rekstur félagsins sem tengist sölu, framleiðslu og dreifingu á drykkjarvörum yrði framseldur til dótturfélags félagsins, ÖES ehf., kt. 680126-0110. Fyrrnefnd tillaga fól í sér eftirfarandi breytingar á samþykktum félagsins: Ákvæði 1. gr. breytist og hljóðar nú svo: “Félagið er hlu...

 PRESS RELEASE

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Útgáfa á víxlum - OLGERD260831

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Útgáfa á víxlum - OLGERD260831 Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf. hefur lokið sölu á nýjum sex mánaða víxli, OLGERD260831 fyrir 1.000 m.kr. að nafnverði á kjörum sem samsvara 7,80% flötum vöxtum, en stefnt er að víxillinn verði tekinn til viðskipta og skráður í kauphöll Nasdaq Iceland. Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður 25. febrúar 2026 og í kjölfarið verður sótt um að víxlarnir verða teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hf. hafði umsjón með sölu víxlanna og annast skráningu þeirra. Grunnlýsing og viðauk...

 PRESS RELEASE

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Hluthafafundur 26. febrúar 2026

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hf.: Hluthafafundur 26. febrúar 2026 Hluthafafundur Ölgerðarinnar Egill Skallagrímsson hf. verður haldinn þann 26. febrúar 2026, kl. 16:00, í höfuðstöðvum félagsins að Grjóthálsi 7-11 í Reykjavík. Fundarboð með dagskrá er að finna í meðfylgjandi viðhengi. Endanleg dagskrá fundarins, tillögur stjórnar og önnur skjöl sem lögð verða fyrir hluthafafundinn eru aðgengileg á heimasíðu félagsins, , sem og í höfuðstöðvum félagsins. Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch