REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Ársuppgjör 2025

REITIR: Ársuppgjör 2025

Stjórn Reita fasteignafélags hf. hefur samþykkt ársreikning samstæðunnar fyrir árið 2025. Afkoma félagsins var í góðu samræmi við útgefnar horfur og ársuppgjörið ber vitni um kröftugan vöxt tekna og rekstrarhagnaðar á árinu.  

Rekstrarhagnaður félagsins fyrir matsbreytingu nam 12.112 m. kr. og jókst um 1.140 m. kr. eða 10,4%. Tekjur ársins 2025 námu 18.215 m. kr. sem er aukning um 10,8% frá fyrra ári. Raunvöxtur tekna milli ára er 6,3% og er til kominn vegna verðlagsbreytinga, nýfjárfestinga og heilbrigðs vaxtar innan eignasafnsins.

Félagið fjárfesti fyrir 14,7 ma. kr. á árinu, þar af voru um 6 ma. kr. í átta nýjum eignum sem gert er ráð fyrir að skili um 550 m. kr. tekjuaukningu á ársgrundvelli. Eignirnar eru fjölbreyttar hvað varðar tegund, stærð og staðsetningu. Um 8,7 ma. kr. var ráðstafað í uppbyggingarverkefni og endurbætur innan eignasafnsins þar sem stærsta verkefnið er uppbygging á 9.800 fm. hóteli undir merkjum Hyatt við Laugaveg.

Góður framgangur var í þróunarverkefnum félagsins á árinu. Framkvæmdir hófust við Nauthólsveg 50, þar sem félagið byggir hjúkrunarheimili, á Kringlureit, nýju íbúðarhverfi, hófst niðurrif og á Korputúni hófst uppbygging á fyrsta hluta af 90.000 fm. atvinnukjarna. Undirritun uppbyggingarsamkomulags milli Reita og Reykjavíkurborgar undir lok árs 2025 markaði mikilvægan áfanga í þremur umfangsmiklum verkefnum, þ.e. lífsgæðakjarna við Nauthólsveg, og íbúða- og atvinnuhúsnæðis bæði við Spöngina og á uppbyggingarsvæði á mörkum Suðurlandsbrautar og Fákafens. Í heildina er félagið nú með rúmlega 1.000 íbúðir og 130.000 fm. af atvinnuhúsnæði í þróun.

Í ársreikningi félagsins má finna endurskoðað uppgjör ásamt ófjárhagslegri upplýsingagjöf. Frekari upplýsingar um starfsemi ársins verða birtar í ársskýrslu félagsins fyrir árið 2025 í aðdraganda aðalfundar.

Guðni Aðalsteinsson, forstjóri:

„Markviss framkvæmd vaxtarstefnu félagsins heldur áfram að skila félaginu sterkum vexti og er 6,3% raunvöxtur tekna milli ára til marks um góðan árangur í kjarnastarfsemi félagsins. Útleiga á fjölbreyttu safni atvinnueigna tryggir félaginu verðtryggðar og fyrirsjáanlegar tekjur og leggur traustan grunn til þess að ráðast í fjárfestingar sem standa undir vaxtarmarkmiðum félagsins til næstu ára. Í krafti stærðar og þeirrar þekkingar sem félagið býr yfir höldum við áfram að fjárfesta bæði í stækkun og uppbyggingu innan eignasafnsins auk þróunar sem hinum nýja vaxtarbroddi Reita. Árangur félagsins í þróunarverkefnum var afar góður á árinu. Í takt við langtímamarkmið hafa nýjar eignategundir fengið aukið vægi og fjölbreytileiki verkefna hefur aldrei verið meiri. Hjúkrunarheimili, íbúðir, leik- og grunnskóli auk fjölbreytts atvinnuhúsnæðis eru meðal þeirra verkefna sem þegar eru í farvegi. Með gjörbreyttri stöðu þróunarverkefna er virði þróunareigna nú rúmlega tvöfalt frá því við árslok 2023. Við horfum björtum augum til framtíðar og höfum uppfært horfur í samræmi við framangreind tækifæri um arðbærar fjárfestingar og sterka verkefnastöðu til næstu ára. Auk þess að skapa verðmæti fyrir hluthafa félagsins erum við stolt af því að geta lagt okkar framlag á vogarskálarnar við uppbyggingu sem mætir brýnni og vaxandi þörf samfélagsins.“

Lykiltölur ársins 2025

Lykiltölur rekstrar20252024
Leigutekjur18.21516.442
Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna-4.997-4.435
Stjórnunarkostnaður-1.126-1.035
Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu12.11210.972
Matsbreyting fjárfestingareigna11.61317.800
Rekstrarhagnaður23.72528.722
Hrein fjármagnsgjöld-9.657-9.213
Hagnaður og heildarhagnaður11.06215.453
Hagnaður á hlut16,021,6
   
Lykiltölur efnahags31.12.202531.12.2024
Fjárfestingareignir252.194226.396
Handbært og bundið fé1.1672.337
Heildareignir256.061231.369
Eigið fé79.09972.429
Vaxtaberandi skuldir132.096123.031
   
Eiginfjárhlutfall30,9%31,3%
Skuldsetningarhlutfall58,5%58,6%
   
Lykilhlutföll20252024
Virkt nýtingarhlutfall 97,6%98,3%
Nýtingarhlutfall allra eigna 94,4%94,9%
Arðsemi tekjuberandi eigna5,4%5,0%
Arðsemi eigin fjár14,9%23,4%
Rekstrarhagnaðarhlutfall62,8%63,4%
Rekstrarkostnaðarhlutfall25,8%25,6%
Stjórnunarkostnaðarhlutfall5,8%6,0%



Horfur ársins 2026

Samhliða uppgjörinu gefur félagið út horfur fyrir árið 2026. Félagið gerir ráð fyrir að rekstrartekjur ársins verði 19.600-19.900 m. kr,. sem yrði aukning um 7,6-9,3% milli ára og að rekstrarhagnaður ársins nemi 13.000-13.300 m. kr. og aukist um samabærilegt hlutfall og tekjur. 

Horfur fyrir 2026 taka mið af eignasafni félagsins eins og það er um áramót. Gert er ráð fyrir að vöxtur félagsins á árinu verði að stórum hluta innri vöxtur, þar sem tekjur skila sér ekki á árinu.

Gert er ráð fyrir rúmlega 4% hækkun verðlags milli ára og að nýtingarhlutfall verði sambærilegt við nýtingu ársins 2025. Kostnaðarhlutföll eru áætluð sambærileg og á liðnu ári, sem skilar nær óbreyttu rekstrarhagnaðarhlutfalli fyrir árið í heild.

Horfur verða uppfærðar eftir því sem ástæða þykir til.

Aðalfundur 2026

Aðalfundur félagsins verður haldinn miðvikudaginn 25. mars 2026. Staðsetning verður auglýst samhliða boðun fundarins.

Tillaga stjórnar um arð

Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði arður að fjárhæð 3,9 kr. fyrir hverja krónu nafnverðs útistandandi hlutafjár í félaginu vegna rekstrarársins 2025. Greiddar verða 2,3 kr. á hlut í aprílmánuði og 1,6 kr. á hlut í lok september. Nánari upplýsingar má finna í endanlegri tillögu stjórnar til aðalfundar sem birt verður samhliða boðun fundarins.

Kynningarfundur

Reitir bjóða fjárfestum og markaðsaðilum á kynningarfund, þar sem Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, munu kynna uppgjörið.

Fundurinn verður haldinn kl. 8:30 á morgun, þriðjudaginn 17. febrúar 2026, á skrifstofu Reita, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík. Fundinum er jafnframt streymt á slóðinni



Fjárfestar sem fylgjast með streymi geta sent spurningar til stjórnenda á netfangið . 

Kynningarefni fundarins er aðgengilegt á fjárfestasíðu Reita, /fjarfestar.

Um Reiti fasteignafélag

Reitir fasteignafélag hf. er íslenskt hlutafélag. Samstæða félagsins samanstendur af móðurfélaginu, Reitum fasteignafélagi hf., ásamt átta dótturfélögum sem öll eru að fullu í eigu móðurfélagsins. Starfsemi Reita felst í eignarhaldi, útleigu og umsýslu atvinnuhúsnæðis sem að stærstum hluta er verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Þar að auki er félagið virkt í fasteignaþróun og fer með þróun og uppbyggingu ýmissa fasteigna. Fasteignir í eigu félagsins eru í dag um 150 talsins, um 490 þúsund fermetrar að stærð. Meðal fasteigna Reita má nefna stærstan hluta verslunarmiðstöðvarinnar Kringlunnar, Spöngina og Holtagarða, Hótel Borg, Hotel Hilton Nordica og Hótel Reykjavík Natura auk skrifstofubygginga við Höfðabakka 9 og að Vínlandsleið ásamt húsnæði Landspítala við Skaftahlíð og Eiríksgötu auk höfuðstöðva Sjóvár, Origo og Advania.

Eigendur eru að stærstum hluta íslenskir lífeyrissjóðir.

Nánari upplýsingar

Upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, í síma 624 0000 eða netfangið og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 699 4416 eða netfangið .

Viðhengi



EN
16/02/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: Aðalfundur 25. mars 2026

REITIR: Aðalfundur 25. mars 2026 Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15.00, miðvikudaginn 25. mars 2026 í fundarsal H og I á Hilton Reykjavík Nordica Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík. Drög að dagskrá fundarins: Stjórn skýrir frá rekstri félagsins og hag þess á liðnu ári.Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram til staðfestingar.Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsári.Tillögur stjórnar lagðar fyrir aðalfund: Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfumTillaga um lækkun hlutafjár til jöfnun...

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 9

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 9 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 16. febrúar 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 17. febrúar 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 9. viku 2026 keypti Reitir fasteignafélag hf. 533.000 eigin hluti að kaupverði 69....

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 8

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 8 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 16. febrúar 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 17. febrúar 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 8. viku 2026 keypti Reitir fasteignafélag hf. 490.000 eigin hluti að kaupverði 63....

 PRESS RELEASE

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Reita þann 2. apríl 2025 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins. Útgefið hlutafé Reita er 697.000.000 hlutir og eru 11.977.000 hlutir (1,72%) í eigu félagsins við upphaf endurkau...

 PRESS RELEASE

REITIR: Ársuppgjör 2025

REITIR: Ársuppgjör 2025 Stjórn Reita fasteignafélags hf. hefur samþykkt ársreikning samstæðunnar fyrir árið 2025. Afkoma félagsins var í góðu samræmi við útgefnar horfur og ársuppgjörið ber vitni um kröftugan vöxt tekna og rekstrarhagnaðar á árinu.   Rekstrarhagnaður félagsins fyrir matsbreytingu nam 12.112 m. kr. og jókst um 1.140 m. kr. eða 10,4%. Tekjur ársins 2025 námu 18.215 m. kr. sem er aukning um 10,8% frá fyrra ári. Raunvöxtur tekna milli ára er 6,3% og er til kominn vegna verðlagsbreytinga, nýfjárfestinga og heilbrigðs vaxtar innan eignasafnsins. Félagið fjárfesti fyrir 14,7 ma....

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch