REITIR Reitir fasteignafelag hf

REITIR: Viljayfirlýsing við Þarfaþing ehf. undirrituð um Kringlureit

REITIR: Viljayfirlýsing við Þarfaþing ehf. undirrituð um Kringlureit

Reitir fasteignafélag hf., fyrir hönd Reita - þróunar ehf. og Reita atvinnuhúsnæðis ehf., og Þarfaþing ehf. hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um að hefja hönnunarvinnu á Kringlureit. 

Aðilar lýsa jafnframt yfir sameiginlegum vilja til að ganga til samninga um samstarf vegna uppbyggingar íbúðarhúsnæðis með bílageymslu á A - reit Kringlureits á grundvelli þeirra forsendna sem mótast hafa í samningaviðræðum aðila að undanförnu. Heildarumfang samstarfsins gæti numið allt að 10 ma.kr.  

Verkið sem um ræðir felur í sér alverktöku við hönnun og byggingu fullbúins íbúðarhúsnæðis og bílageymslu. Hin nýja íbúðabyggð við Kringluna byggir á metnaðarfullu skipulagi og samræmdum skilmálum innan hverfisins. Lögð verður áhersla á umhverfisvæna byggð, góðar samgöngur og þjónustu. Við hönnun verkefnisins verður leitast við að skapa metnaðarfullar og glæsilegar byggingar sem njóta sín í fallegu umhverfi, þar sem leitast verður við að hámarka notagildi íbúða til að nýta útsýni, birtu og staðsetningu til fullnustu. 

Aðilar eru að vinna að gerð verksamnings sín á milli og hafa einsett sér það markmið að ljúka samningsgerð fyrir lok september 2025. 

Um Reiti fasteignafélag hf. 

Reitir er leiðandi fyrirtæki í fasteignaþróun ásamt rekstri og eignarhaldi atvinnuhúsnæðis. Vöxtur Reita byggir á þróun og fjárfestingu í borgarinnviðum sem styðja við sjálfbært samfélag.  

Innan eignasafns Reita eru um 480 þúsund fermetrar atvinnuhúsnæðis sem hýsir fjölbreytta atvinnustarfsemi og ríkisstofnanir. Gagnkvæmur ávinningur Reita, samstarfsaðila og samfélags er lykilþáttur í starfsemi Reita.  

Fyrirtækið er almenningshlutafélag skráð í Kauphöll síðan 2015. Eigendur eru að stærstum hluta íslenskir lífeyrissjóðir. 

Um Þarfaþing ehf. 

Þarfaþing er 32 ára verktakafyrirtæki sem hefur áralanga reynslu af framkvæmdum fyrir opinbera aðila, fyrirtæki og einstaklinga. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma.  

Stefna fyrirtækisins hefur ávallt verið að kappkosta við að skila góðu og vönduðu verki til handa viðskiptavinum sínum, ásamt því að ábyrgjast traust, gæði og áreiðanleika í viðskiptum. 

Nánari upplýsingar veitir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, netfang eða í síma 575 9000 og 624 0000. 

 



EN
21/08/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Reitir fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

REITIR: Aðalfundur 25. mars 2026

REITIR: Aðalfundur 25. mars 2026 Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15.00, miðvikudaginn 25. mars 2026 í fundarsal H og I á Hilton Reykjavík Nordica Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík. Drög að dagskrá fundarins: Stjórn skýrir frá rekstri félagsins og hag þess á liðnu ári.Ársreikningur og samstæðureikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram til staðfestingar.Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar félagsins á síðastliðnu starfsári.Tillögur stjórnar lagðar fyrir aðalfund: Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfumTillaga um lækkun hlutafjár til jöfnun...

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 9

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 9 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 16. febrúar 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 17. febrúar 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 9. viku 2026 keypti Reitir fasteignafélag hf. 533.000 eigin hluti að kaupverði 69....

 PRESS RELEASE

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 8

REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 8 Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 16. febrúar 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 17. febrúar 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Í 8. viku 2026 keypti Reitir fasteignafélag hf. 490.000 eigin hluti að kaupverði 63....

 PRESS RELEASE

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar

REITIR: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Reita þann 2. apríl 2025 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins. Útgefið hlutafé Reita er 697.000.000 hlutir og eru 11.977.000 hlutir (1,72%) í eigu félagsins við upphaf endurkau...

 PRESS RELEASE

REITIR: Ársuppgjör 2025

REITIR: Ársuppgjör 2025 Stjórn Reita fasteignafélags hf. hefur samþykkt ársreikning samstæðunnar fyrir árið 2025. Afkoma félagsins var í góðu samræmi við útgefnar horfur og ársuppgjörið ber vitni um kröftugan vöxt tekna og rekstrarhagnaðar á árinu.   Rekstrarhagnaður félagsins fyrir matsbreytingu nam 12.112 m. kr. og jókst um 1.140 m. kr. eða 10,4%. Tekjur ársins 2025 námu 18.215 m. kr. sem er aukning um 10,8% frá fyrra ári. Raunvöxtur tekna milli ára er 6,3% og er til kominn vegna verðlagsbreytinga, nýfjárfestinga og heilbrigðs vaxtar innan eignasafnsins. Félagið fjárfesti fyrir 14,7 ma....

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch