Brim: Birting ársreiknings 2024, fimmtudaginn 27. febrúar 2025
Brim hf. mun birta ársreikning félagsins fyrir árið 2024 eftir lokun markaða fimmtudaginn 27. febrúar.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn fimmtudaginn 27. febrúar klukkan 16:30 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1 þar sem boðið verður upp á léttar veitingar.
Guðmundur Kristjánsson forstjóri félagsins kynnir uppgjörið og svarar spurningum.
Fundinum verður jafnframt streymt og hægt verður að fylgjast með honum á . Velkomið er að senda spurningar fyrir fundinn eða á meðan fundi stendur á netfangið . Aðsendum spurningum verður svarað í lok fundar.
Nánari upplýsingar veitir Inga Jóna Friðgeirsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 858-1170 eða
