GRND Brim

Brim: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt

Brim: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt

Brim hf. hefur endurnýjað samning sinn við Kviku banka hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af félaginu sem skráð eru á aðalmarkað NASDAQ Iceland.

Samningurinn kveður á um að Kvika skuli hvern viðskiptadag leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi Kauphallarinnar áður en markaðurinn opnar. Tilboðin skulu gilda innan dagsins. Verði tilboði Kviku tekið eða verði það fellt niður af hálfu Kviku skal Kvika setja fram nýtt tilboð þar til hámarksfjárhæð viðskipta fyrir hvern dag hefur verið náð. Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu eða þau felld niður af hálfu Kviku.

Kaup- og sölutilboð skulu vera að lágmarki 200.000 hlutir að nafnvirði á gengi sem Kvika ákveður hverju sinni. Tilboðin skulu lögð fram í tveimur hlutum. Annars vegar að minnsta kosti 20.000 hlutir með verðbili að hámarki 1,5% og hins vegar að lágmarki 180.000 hlutir með verðbili sem skal vera sem næst 1,5%, en ekki lægra en 1,45%. Kviku er heimilt að auka hámarksverðbil í 3% ef verðbreyting innan viðskiptadags er umfram 5%.

Tilboð skulu miðast við verðskrefatöflu Kauphallarinnar. Kviku er þó heimilt að setja fram tilboð með lægra verðbili ef sérstakar aðstæður skapast vegna verðskrefatöflunnar. Eigi Kvika viðskipti með bréf félagsins samkvæmt samningnum fyrir 84.000.000 kr. að markaðsvirði eða meira innan dags, falla niður skyldur um hámarksmun kaup- og sölutilboða innan þess dags.

Samningurinn er ótímabundinn og kemur til framkvæmda frá og með 11. nóvember 2025. Samningurinn er uppsegjanlegur af beggja hálfu með 14 daga fyrirvara.

Nánari upplýsingar veitir Inga Jóna Friðgeirsdóttir, fjármálastjóri, á netfangið 





EN
10/11/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Brim

 PRESS RELEASE

Brim: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt

Brim: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt Brim hf. hefur endurnýjað samning sinn við Kviku banka hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af félaginu sem skráð eru á aðalmarkað NASDAQ Iceland. Samningurinn kveður á um að Kvika skuli hvern viðskiptadag leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi Kauphallarinnar áður en markaðurinn opnar. Tilboðin skulu gilda innan dagsins. Verði tilboði Kviku tekið eða verði það fellt niður af hálfu Kviku skal Kvika setja fram nýtt tilboð þar til hámarksfjárhæð viðskipta fyrir hvern dag hefur verið náð. Tilboð skulu endurnýjuð...

 PRESS RELEASE

Brim: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt

Brim: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt Brim hf. hefur endurnýjað samning við Landsbankann um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum í Brim. Samningur Brims við Landsbankann kveður á um að kaup- og sölutilboð skuli að lágmarki nema 12 milljónum íslenskra króna að markaðsvirði. Hámarksmagn viðskipta á hverjum degi skal nema 24 milljónum króna að nettó markaðsvirði, sem reiknast sem mismunur á þeim kaup- og sölutilboðum sem gengið er að. Magnbundið hámarksverðbil milli kaup- og sölutilboða ákvarðast af 10 daga flökti verðs hlutabréfa Brims. Ef 10 daga flökt er undir 30% er magnvegið verðbil...

 PRESS RELEASE

Brim hf. kaupir alla hluti í Lýsi hf.

Brim hf. kaupir alla hluti í Lýsi hf. Brim hf. kaupir alla hluti í Lýsi hf. Samþykkt hefur verið kauptilboð Brim hf. í alla hluti Lýsi hf. fyrir 30 milljarða króna, með fyrirvara um samþykki stjórna félaganna, hluthafafundar kaupanda og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Kaupverð miðast við að heildarverðmæti alls hlutafjár í Lýsi hf. sé samtals krónur 30.000.000.000-, (þrjátíu milljarðar króna 00/100). Frá dragast vaxtaberandi skuldir m.v. 30. júní 2025, sem námu samtals 5.277.295.082. Heildarkaupverð greiðist til helminga með reiðufé og til helminga með hlutabréfum í Brim hf., miðað er vi...

 PRESS RELEASE

Brim hf. - Flöggun - Brú lífeyrissjóður

Brim hf. - Flöggun - Brú lífeyrissjóður Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun frá Brú lífeyrissjóði þar sem farið er yfir 5% eignarhlut í Brim hf.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Uppgjör Brims á öðrum ársfjórðungi 2025

Uppgjör Brims á öðrum ársfjórðungi 2025 Helstu atriði úr fjárhagsuppgjöri 2F 2025 Vörusala var 82,4 m€ á fjórðungnum samanborið við 79,7 m€ á öðrum fjórðungi 2024Hagnaður var 3,2 m€ á fjórðungnum samanborið við 1,0 m€ á öðrum fjórðungi 2024EBITDA var 12,1 m€ og EBITDA hlutfall 14,6% samanborið við 9,0 m€ og EBITDA hlutfall 11,3%Eigið fé þann 30. júní 2025 var 476,6 m€ og eignfjárhlutfall 50,1% Guðmundur Kristjánsson, forstjóri: „Afkoma Brims á öðrum ársfjórðungi var ekki góð og sama má segja um fyrri helming ársins. Ávöxtun eigin fjár á fjórðungnum var 2,6% og 4,4% á fyrstu sex mánuðum ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch