GRND Brim

Brim hf.: Upplýsingar um breytta framkvæmd aðalfundar

Brim hf.: Upplýsingar um breytta framkvæmd aðalfundar

Aðalfundur Brims hf. verður haldinn þriðjudaginn 31. mars kl. 17:00.

Þar sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögu sóttvarnarlæknis, að takmarka samkomur vegna útbreiðslu Covid-19 veirunnar hefur verið lagt bann við því að halda fjölmennan fund. Því hafa forsendur breyst verulega frá því að aðalfundur Brims hf. var auglýstur og ekki lengur tækt að safna hluthöfum saman til fundar á einn stað. Í ljósi þess og ábendingum frá hluthöfum félagsins beinir stjórnin því til hluthafa að mæta ekki á aðalfundinn heldur kjósa fyrirfram skriflega um tillögur fundarins og fela fundarstjóra umboð til að kjósa á fundinum fyrir sína hönd. Gert er ráð fyrir að einungis mæti á fundarstað starfsmenn fundarins, forstjóri og stjórnarformaður. 

Skrifleg kosning

Eyðublað fyrir skriflega kosningu og leiðbeiningar er að finna á heimasíðu félagsins:

Skulu hluthafar senda útfyllt eyðublöð á netfangið: og verður tekið við þeim þar til fundurinn hefst kl. 17:00 á aðalfundardaginn.

Skriflegt umboð

Jafnframt má senda þeim sem koma til með að sitja fundinn umboð með saman hætti og greinir hér að framan. Eyðublað og leiðbeiningar um það er að finna á heimasíðu félagsins:

Frestur hluthafa til að senda félaginu umboð og skrifleg atkvæði er til kl. 17:00 á aðalfundardaginn á netfangið:

Fundurinn verður sendur út gegnum heimasíðu félagsins: Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst. Aðgangsorð inná fundinn verður sennt við móttöku atkvæðaseðils með umboði.

Nánari upplýsingar veita:

Inga Jóna Friðgeirsdóttir, fjármálastjóri í síma 858-1170 eða á netfangið

Jón Þór Andrésson í síma 858-1030 eða á netfangið

Reykjavík, 24. mars 2020

Stjórn Brims hf.

Viðhengi

EN
24/03/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Brim

 PRESS RELEASE

Framboð til stjórnar Brims hf. á aðalfundi félagsins 19. mars 2025

Framboð til stjórnar Brims hf. á aðalfundi félagsins 19. mars 2025 Framboð til stjórnar Brims hf. á aðalfundi félagsins 19. mars 2025 Eftirtaldir einstaklingar bjóða sig fram í kjöri til stjórnar Brims hf. á aðalfundi félagsins 19. mars 2025 Anna G. Sverrisdóttir Guðmundur Marteinsson Hjálmar Þór Kristjánsson Kristján Þ. Davíðsson Kristrún Heimisdóttir Þar sem frambjóðendur eru jafnmargir og þeir stjórnarmenn sem á að kjósa á fundinum og samsetning stjórnar fullnægir ákvæðum laga og samþykkta félagsins um kynjahlutföll er sjálfkjörið í stjórnarsætin fimm. Nánari upplýsingar um fra...

 PRESS RELEASE

Aðalfundur Brims hf. verður haldinn 19. mars 2026

Aðalfundur Brims hf. verður haldinn 19. mars 2026 Aðalfundur Brims hf. verður haldinn fimmtudaginn 19. mars 2026 í matsal félagsins að Norðurgarði 1, 101 Reykjavík klukkan 16:30. Fundurinn fer fram á íslensku. Dagskrá Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina síðastliðið ár.Endurskoðaður ársreikningur lagður fram til staðfestingar.Tillaga stjórnar um greiðslu arðs.Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu.Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna.Kosning stjórnar félagsins.Kosning endurskoðenda.Tillaga stjórnar um utanaðkomandi nefndarmann í endurskoðunarnefnd.Tillaga um að stjórn fái heimild til kau...

 PRESS RELEASE

Ársuppgjör Brims hf. 2025

Ársuppgjör Brims hf. 2025 Góður rekstur og sterk fjárhagsstaða Fjórði ársfjórðungur (4F) Rekstrartekjur á 4F 2025 voru 114,5 m€ samanborið við 105,2 m€ á 4F 2024EBITDA nam 22,0 m€ á 4F samanborið við 18,3 m€ á sama tímabili 2024Hagnaður á 4F var 20,3 m€ samanborið við 16,0 m€ á 4F 2024 Árið 2025 Rekstrartekjur ársins 2025 voru 409,7 m€ samanborið við 389,4 m€ árið 2024EBITDA ársins 2025 var 90,6 m€ (22,1%) en var 65,3 m€ (16,8%) árið 2024Hagnaður ársins 2025 var 60,0 m€, en var 40,5 m€ árið áðurHagnaður á hlut var 0,031 € en var 0,021 € árið 2024Heildareignir í árslok voru 997,7 m€ sam...

 PRESS RELEASE

Brim: Birting ársreiknings 2025, fimmtudaginn 26. febrúar 2026

Brim: Birting ársreiknings 2025, fimmtudaginn 26. febrúar 2026 Brim hf. mun birta ársreikning félagsins fyrir árið 2025 eftir lokun markaða fimmtudaginn 26. febrúar.Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn fimmtudaginn 26. febrúar klukkan 16:30 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1 þar sem boðið verður upp á léttar veitingar.Guðmundur Kristjánsson forstjóri félagsins kynnir uppgjörið og svarar spurningum.Fundinum verður jafnframt streymt og hægt verður að fylgjast með honum á . Velkomið er að senda spurningar fyrir fundinn eða á meðan fundi stendur á netfangið . Að...

 PRESS RELEASE

Brim: Fjárhagsdagatal ársins 2026

Brim: Fjárhagsdagatal ársins 2026 Brim mun halda aðalfund og birta árshluta- og ársuppgjör samkvæmt neðangreindu fjárhagsdagatali fyrir árið 2026. Ársuppgjör 2025                          26. febrúar 2026Aðalfundur 2026                          19. mars 2026Fyrsti ársfjórðungur 2026             28. maí 2026Annar ársfjórðungur 2026            27. ágúst 2026Þriðji ársfjórðungur 2026              19. nóvember 2026Ársuppgjör 2026                           25. febrúar 2027 Dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch