GRND Brim

Brim: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun lokið

Brim: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun lokið

Í viku 51 keypti Brim hf. 1.514.546 eigin hluti að kaupverði 58.915.839 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
16.12.201911:00:141.514.54638,9058.915.839
     
Samtals 1.514.546 58.915.839
     
     

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 26. september 2019.

Brim átti 55.485.307 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 56.999.853 eigin hluti eða sem nemur 2,914% af útgefnum hlutum í félaginu.

Þann 21.10.2019 var tillkynnt um að Brim hefði gert samning um kaup á tveimur sjávarútvegsfyrirtækjum, stjórn Brims samþykkti kaupin þann 14.11.2019, og hluthafafundur samþykkti kaupin þann 12.12.2019. Kaupin bíða samþykkis Samkeppniseftirlitsins og eftir atvikum annara eftirlitsaðila. Hluti kaupverðsins verði greiddur með eigin bréfum að nafnverði 22.079.436 eða 1,13% af heildarhlutafé.

Brim hefur keypt samtals 48.430.576 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,48% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 1.899.999.973 kr.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni mátti heildarkaupverð ekki vera hærra en 1.900.000.000 kr. Heildarkaupverði endurkaupa í þessari endurkaupaáætlun er náð og endurkaupaáætluninni því lokið.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar var í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri



EN
16/12/2019

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Brim

 PRESS RELEASE

Uppgjör Brims á þriðja ársfjórðungi 2025

Uppgjör Brims á þriðja ársfjórðungi 2025 Helstu atriði úr fjárhagsuppgjöri 3F 2025 Vörusala var 111 m€ á fjórðungnum samanborið við 110 m€ á þriðja fjórðungi 2024Hagnaður var 29 m€ á fjórðungnum samanborið við 19 m€ á þriðja fjórðungi 2024EBITDA var 42 m€ og EBITDA hlutfall 37,3%Eignir hafa lækkað um 13 m€ frá áramótum og voru 983 m€ í lok tímabilsinsEigið fé þann 30. september 2025 var 505 m€ og eignfjárhlutfall 51,4% Guðmundur Kristjánsson, forstjóri: „Afkoma þriðja fjórðungs er góð og eru það tveir þættir sem skipta mestu máli. Veiðar og vinnsla á makríl gengu vel og verð á sjávarafurð...

 PRESS RELEASE

Brim: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt

Brim: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt Brim hf. hefur endurnýjað samning sinn við Kviku banka hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af félaginu sem skráð eru á aðalmarkað NASDAQ Iceland. Samningurinn kveður á um að Kvika skuli hvern viðskiptadag leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi Kauphallarinnar áður en markaðurinn opnar. Tilboðin skulu gilda innan dagsins. Verði tilboði Kviku tekið eða verði það fellt niður af hálfu Kviku skal Kvika setja fram nýtt tilboð þar til hámarksfjárhæð viðskipta fyrir hvern dag hefur verið náð. Tilboð skulu endurnýjuð...

 PRESS RELEASE

Brim: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt

Brim: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt Brim hf. hefur endurnýjað samning við Landsbankann um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum í Brim. Samningur Brims við Landsbankann kveður á um að kaup- og sölutilboð skuli að lágmarki nema 12 milljónum íslenskra króna að markaðsvirði. Hámarksmagn viðskipta á hverjum degi skal nema 24 milljónum króna að nettó markaðsvirði, sem reiknast sem mismunur á þeim kaup- og sölutilboðum sem gengið er að. Magnbundið hámarksverðbil milli kaup- og sölutilboða ákvarðast af 10 daga flökti verðs hlutabréfa Brims. Ef 10 daga flökt er undir 30% er magnvegið verðbil...

 PRESS RELEASE

Brim hf. kaupir alla hluti í Lýsi hf.

Brim hf. kaupir alla hluti í Lýsi hf. Brim hf. kaupir alla hluti í Lýsi hf. Samþykkt hefur verið kauptilboð Brim hf. í alla hluti Lýsi hf. fyrir 30 milljarða króna, með fyrirvara um samþykki stjórna félaganna, hluthafafundar kaupanda og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Kaupverð miðast við að heildarverðmæti alls hlutafjár í Lýsi hf. sé samtals krónur 30.000.000.000-, (þrjátíu milljarðar króna 00/100). Frá dragast vaxtaberandi skuldir m.v. 30. júní 2025, sem námu samtals 5.277.295.082. Heildarkaupverð greiðist til helminga með reiðufé og til helminga með hlutabréfum í Brim hf., miðað er vi...

 PRESS RELEASE

Brim hf. - Flöggun - Brú lífeyrissjóður

Brim hf. - Flöggun - Brú lífeyrissjóður Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun frá Brú lífeyrissjóði þar sem farið er yfir 5% eignarhlut í Brim hf.  Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch