EIK Eik fasteignafelag hf

Eik fasteignafélag hf.: Kaup á Festingu hf. frágengin

Eik fasteignafélag hf.: Kaup á Festingu hf. frágengin

Í dag hefur Eik Fasteignafélag hf. („Eik“ eða „félagið“) gengið frá kaupum á Festingu hf. („Festing“) en félögin skrifuðu upphaflega undir kaupsamning 23. maí sl. Seljendur eru Blue Ocean B.V. og SMT Partners B.V.

Fasteignir Festingar á Íslandi eru um 43 þúsund fermetrar að stærð í 12 fasteignum og hýsa starfsemi Samskipa hf. á Íslandi. Fasteignirnar eru að stærstum hluta staðsettar í Reykjavík en stærsta eignin er 28.500 fermetra vöruhús Samskipa í Kjalarvogi 7-15. Leigusamningar um eignirnar verða til 20 ára.

Heildarvirði Festingar í kaupunum (e. Enterprise Value) er 15.070 m.kr. og voru kaupin fjármögnuð með lánsfé.

Eik áætlar að áhrif á EBITDA félagsins verði á bilinu 1.180 – 1.200 m.kr. á ársgrundvelli m.v. vísitölu neysluverðs til verðtryggingar í janúar 2026.  

Ráðgjafar Eikar í viðskiptunum voru fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance hf. og Venture Legal ehf. Ráðgjafar seljenda voru fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka og LOGOS. 

Hreiðar Már, forstjóri Eikar fasteignafélags:

„Við erum afar ánægð með að hafa gengið frá kaupum á Festingu og hlökkum til samstarfsins um ókomna framtíð. Eins og fram hefur komið þá tilheyra fasteignir Festingar mikilvægum innviðum og Samskip er og verður nauðsynlegur hluti af íslensku samfélagi. Eik fasteignafélag vill fjárfesta með atvinnulífinu og þessi viðskipti endurspegla þá vegferð með kröftugum hætti.“

Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Festingar og aðaleigandi:

„Það er ánægjuefni að uppgjör viðskiptanna sé nú að baki. Festing hefur verið hluti af samstæðu okkar um langa hríð og býr yfir stóru safni vandaðra fasteigna sem nýst hafa vel í starfsemi okkar og munu gera það áfram. Við væntum mikils af samstarfinu við Eik og hlökkum til að einbeita okkur nú enn frekar að því að sækja fram á sviði sjó- og landflutninga.“

Nánari upplýsingar veitir:

Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri, , s. 856-5907



EN
23/12/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Eik fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 25. febrúar 2026 – skiptiútb...

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 25. febrúar 2026 – skiptiútboð Eik fasteignafélag hf. („Eik“) efnir til útboðs á skuldabréfum miðvikudaginn 25. febrúar 2026. Í útboðinu verður boðinn til sölu skuldabréfaflokkurinn EIK 120266. Útboðið er skiptiútboð, þar sem eigendum skuldabréfaflokksins EIK 050726 býðst að skipta bréfum sínum í þeim flokki fyrir kaup á skuldabréfum í útboðinu, þ.e. EIK 120266. Greiðsla vegna útboðsins fer því eingöngu fram með afhendingu skuldabréfa í flokknum EIK 050726 á móti skuldabréfum í EIK 120266 og er greiðsla með reiðufé ekki í boði. Vegna nafnverðseinin...

Eik Fasteignafelag hf: 1 director

A director at Eik Fasteignafelag hf bought 20,000,000 shares at 14.200ISK and the significance rating of the trade was 67/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two y...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Flöggun - Langisjór ehf. og samstarfsaðilar

Eik fasteignafélag hf.: Flöggun - Langisjór ehf. og samstarfsaðilar Flöggunartilkynning er í viðhengi.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda

Eik fasteignafélag hf.: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda Sjá meðfylgjandi tilkynningu.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Flöggun - Almenni – Lífsverk lífeyrissjóður

Eik fasteignafélag hf.: Flöggun - Almenni – Lífsverk lífeyrissjóður Flöggunartilkynning er í viðhengi.  Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch