EIK Eik fasteignafelag hf

Eik fasteignafélag hf.: Leiðrétting - Stjórnendauppgjör vegna ársins 2025 og áætlun ársins 2026

Eik fasteignafélag hf.: Leiðrétting - Stjórnendauppgjör vegna ársins 2025 og áætlun ársins 2026

Í fyrri tilkynningu félagsins var ósamræmi á milli talna í umfjöllun um áætlun 2026 í tilkynningunni sjálfri og stjórnendauppgjöri sem fylgdi með. Tölur hafa verið leiðréttar í neðangreindri tilkynningu en upplýsingar í stjórnendauppgjöri eru óbreyttar.



Rekstur Eikar fasteignafélags („Eik“ eða „félagið“) gekk vel á árinu 2025 og hélt kröftugur vöxtur í tekjum og EBITDA sér í takti við áætlanir. Samkvæmt stjórnendauppgjöri nam EBITDA ársins 7.901 m.kr. og jókst hún um 7,6% á milli ára.

Helstu niðurstöður stjórnendauppjörs fyrir árið 2025 eru:

  • Rekstrartekjur námu 12.586 m.kr.
  • Leigutekjur námu 10.865 m.kr.
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 7.901 m.kr.
  • Matsbreyting fjárfestingareigna nam 5.352 m.kr.
  • Söluhagnaður fjárfestingareigna nam 134 m.kr.
  • Handbært fé frá rekstri nam 4.962 m.kr.
  • Bókfært virði fjárfestingareigna nam 172.760 m.kr.
  • Skuldsetningarhlutfall (nettó vaxtaberandi skuldir / virði fasteigna, lóða og byggingarheimildina) nam 58,9%.
  • Virðisútleiguhlutfall nam 94,7%.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 104.210 m.kr.
  • Vegnir verðtryggðir vextir fjármögnunar félagsins námu 3,71%.
  • Vegnir óverðtryggðir vextir fjármögnunar félagsins námu 9,55%.

Eik fékk Festingu hf. afhent seinni part desember mánaðar, en fasteignir Festingar eru um 43.000 fm. að stærð og hýsa starfsemi Samskipa hf. á Íslandi. Heildarvirði Festingar í kaupunum (e. Enterprice Value) var 15.070 m.kr. Félagið nýtti efnahagsreikning fjármagnaði kaupin að fullu með yfirtöku lána og nýrri bankafjármögnun. Við kaupin hækkuð fjármögnunarkjör félagsins lítillega, en félagið nýtti sveigjanlegar fjármögnunarleiðir við kaupin.  Kaupin styrkja tekjugrunn Eikar með 20 ára verðtryggðum samningnum, en ekki er gert ráð fyrir auknum rekstrarkostnaði félagsins vegna kaupana.

Handbært fé frá rekstri nam 4.962 m.kr. á árinu. M.v. niðurstöðu stjórnendauppgjörs og að teknu tilliti til arðgreiðslustefnu félagsins má vænta að tillaga um arðgreiðslu vegna ársins 2025 verði u.þ.b. 1,1 kr. pr útistandandi hlut samanborið við 1,0 kr. pr. hlut vegna ársins 2024.

Áætlun ársins 2026

Eik spáir áframhaldandi kröftugum vexti leigutekna og EBITDA eftir stækkun eignasafnsins með kaupum á Festingu hf.

Hér koma upplýsingar um helstu stærðir úr áætlun félagsins á föstu verðlagi miðað við vísitölu neysluverðs í janúar 2026:

  • Rekstrartekjur á bilinu 14.250 – 14.800 m.kr.
  • Leigutekjur á bilinu 12.530 – 13.040 m.kr.
  • EBITDA á bilinu 9.000 – 9.360 m.kr.
  • Fjárfestingar í núverandi eignum og eignfærðar endurbætur á bilinu 2.500 – 3.000 m.kr.
  • Gjaldfært viðhald um 280 m.kr.
  • Virðisútleiguhlutfall 94,5 – 95,5% í lok árs 2026.

Í meðfylgjandi kynningu eru frekari upplýsingar um stjórnendauppgjör Eikar og forsendur áætlunar vegna ársins 2026. Vakin er athygli á að um er að ræða óendurskoðað stjórnendauppgjör sem kann að taka breytingum fram að birtingu ársuppgjörs og ársskýrslu félagsins þann 12. mars nk.

Kynningarfundur

Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 6. febrúar 2026 klukkan 8:30 á skrifstofu félagsins á 18. hæð í Smáratorgi 3, Kópavogi. Boðið verður upp á léttan morgunmat frá kl. 8.00.

Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna stjórnendauppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.

Fundinum verður einnig streymt á netinu og fer skráning á rafræna fundinn fram hér:

Nánari upplýsingar veita:

Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri, ,  s. 856-5907

Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT,  s. 820 8980

Viðhengi



EN
05/02/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Eik fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða skiptiútboðs 25. febrúar 2026

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða skiptiútboðs 25. febrúar 2026 Eik fasteignafélag hf. („Eik“) lauk skiptiútboði á skuldabréfum miðvikudaginn 25. febrúar 2026, þar sem boðinn var til sölu skuldabréfaflokkurinn EIK 120266. FlokkurEIK 120266Greiðslu- og uppgjörsdagur04.03.2026Samþykkt tilboð að nafnverði (m.kr.)1.200Samþykkt (ávöxtunarkrafa)3,80%Fjöldi innsendra tilboða2Upphæð móttekinna tilboða að nafnverði (m.kr.)1.200Fjöldi samþykktra tilboða2Vegið meðaltal innsendra tilboða (ávöxtunarkrafa)3,78%Boðhlutfall1,00 Alls bárust gild tilboð að nafnverði 1.200 m.kr., og var ákveðið að taka til...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 25. febrúar 2026 – skiptiútb...

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 25. febrúar 2026 – skiptiútboð Eik fasteignafélag hf. („Eik“) efnir til útboðs á skuldabréfum miðvikudaginn 25. febrúar 2026. Í útboðinu verður boðinn til sölu skuldabréfaflokkurinn EIK 120266. Útboðið er skiptiútboð, þar sem eigendum skuldabréfaflokksins EIK 050726 býðst að skipta bréfum sínum í þeim flokki fyrir kaup á skuldabréfum í útboðinu, þ.e. EIK 120266. Greiðsla vegna útboðsins fer því eingöngu fram með afhendingu skuldabréfa í flokknum EIK 050726 á móti skuldabréfum í EIK 120266 og er greiðsla með reiðufé ekki í boði. Vegna nafnverðseinin...

Eik Fasteignafelag hf: 1 director

A director at Eik Fasteignafelag hf bought 20,000,000 shares at 14.200ISK and the significance rating of the trade was 67/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two y...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Flöggun - Langisjór ehf. og samstarfsaðilar

Eik fasteignafélag hf.: Flöggun - Langisjór ehf. og samstarfsaðilar Flöggunartilkynning er í viðhengi.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda

Eik fasteignafélag hf.: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda Sjá meðfylgjandi tilkynningu.  Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch