EIK Eik fasteignafelag hf

Eik fasteignafélag hf.: Árshlutauppgjör fyrstu níu mánuði ársins 2022

Eik fasteignafélag hf.: Árshlutauppgjör fyrstu níu mánuði ársins 2022

  • Rekstrartekjur námu 7.387 m.kr.
  • Rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir nam 4.875 m.kr.
  • Heildarhagnaður nam 7.234 m.kr.
  • Handbært fé frá rekstri nam 3.042 m.kr.
  • Bókfært virði fjárfestingareigna nam 118.270 m.kr. í lok tímabilsins.  
  • Bókfært virði eigna til eigin nota nam 4.186 m.kr. í lok tímabilsins.
  • Matsbreyting fjárfestingareigna var 9.888 m.kr.
  • Handbært fé nam 1.734 m.kr. í lok tímabilsins.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 68.626 m.kr. í lok tímabilsins.
  • Eiginfjárhlutfall nam 34,1%.
  • Hagnaður á hlut var 2,12 kr.
  • Virðisútleiguhlutfall var 94,0% í lok tímabilsins
  • Vegnir verðtryggðir vextir námu 3,03% í lok tímabilsins.
  • Vegnir óverðtryggðir vextir námu 6,52% í lok tímabilsins.

Árshlutareikningur Eikar fasteignafélags hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2022 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins þann 27. október 2022.

Meðfylgjandi er árshlutaskýrsla sem inniheldur árshlutareikning vegna fyrstu níu mánaða ársins ásamt ítarlegri upplýsingum um rekstur félagsins en fram koma í tilkynningunni.

Rekstur félagsins

Rekstur félagsins gekk vel á fyrstu níu mánuðum ársins 2022 og var afkoman í takt við áætlanir stjórnenda félagsins. Rekstrartekjur félagsins á fyrstu níu mánuðum ársins 2022 námu 7.387 m.kr. Þar af voru leigutekjur 6.275 m.kr. Rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir nam 4.875 m.kr. og jókst um rúmlega 15% á milli ára. Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 9.006 m.kr. og heildarhagnaður samstæðunnar á fyrstu níu mánuðum ársins 2022 nam 7.234 m.kr.

NOI hlutfall (þ.e. rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir sem hlutfall af leigutekjum) nam 74,6% á fyrstu níu mánuðum ársins 2022 samanborið við 72,7% fyrir sama tímabil 2021.

Fjárfestingareignir félagsins eru metnar á gangvirði í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) og stuðst er m.a. við núvirt framtíðarsjóðstreymi einstakra eigna. Breytingar á gangvirði eru færðar undir matsbreytingu fjárfestingareigna sem voru um 9.888 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins.

Efnahagur félagsins

Heildareignir félagsins námu 126.089 m.kr. þann 30. september 2022. Þar af eru fjárfestingareignir að virði 118.270 m.kr. sem skiptast í fjárfestingareignir í útleigu að fjárhæð 114.216 m.kr., leigueignir 2.457 m.kr., fjárfestingareignir í þróun 1.137 m.kr., byggingarréttir og lóðir 448 m.kr. og fyrirframgreidd gatnagerðargjöld að fjárhæð 13 m.kr. Eignir til eigin nota námu 4.186 m.kr. og fasteignir í þróun 671 m.kr. Eigið fé félagsins nam 42.977 m.kr. í lok september 2022 og var eiginfjárhlutfall 34,1%. Á aðalfundi félagsins þann 5. apríl 2022 var samþykkt að greiða út arð til hluthafa vegna rekstrarársins 2021 að fjárhæð 1.740 m.kr. og var hann greiddur þann 28. apríl 2022.

Heildarskuldir félagsins námu 83.111 m.kr. þann 30. september 2022, þar af voru vaxtaberandi skuldir 68.626 m.kr. og tekjuskattsskuldbinding 10.451 m.kr. 

Virðisútleiguhlutfall

Virðisútleiguhlutfall félagsins var 94,0% í lok tímabilsins en var 94,2% um áramótin. Félagið fékk Lónsbakka í Hörgársveit til baka úr langtímaleigu frá Húsasmiðjunni. Sú eign er nú flokkuð sem fjárfestingareign í þróun.

Horfur

Miðað við vísitölu neysluverðs til verðtryggingar í nóvember 2022 gerir félagið ráð fyrir að EBITDA ársins verði á bilinu 6.430 – 6.690 m.kr. á föstu verðlagi út árið.

Áhrif COVID-19

Áhrif COVID-19 á rekstur félagsins fara hratt dvínandi og voru metin ekki til staðar á þriðja ársfjórðungi. Miðað við óbreytta stöðu faraldursins væntir félagið að svo verði áfram.  Félagið mat að áhrifin hafi verið neikvæð um 40 – 45 m.kr. á EBITDA á fyrri helmingi ársins. Þá eru áhrif COVID-19 á virði fjárfestingareigna félagsins að mestu leyti horfin.

Eignasafn félagsins

Á árinu hefur félagið fengið afhentar fjórar eignir á höfuðborgarsvæðinu, Sóltún 24, Skeifuna 5, hluta Pósthússtrætis 2 og nú í lok september Smiðshöfða 9, sem telja samanlagt 2.968 fermetra. Þá hefur félagið selt og afhent þrjár fasteignir á árinu, Hjalteyrargötu 4 á Akureyri og Höfðasel 2 og 4 á Akranesi, sem telja samanlagt 3.911 fermetra og nemur bókfærður söluhagnaður á þriðja ársfjórðungi 362 m.kr. 



Líkt og fram kom í fréttatilkynningu félagsins til kauphallar þann 15. september hefur viðræðum verið slitið um möguleg kaup félagsins á Lambhagavegi 23 ehf. og Laufskálum fasteignafélagi ehf.

Fasteignir innan samstæðunnar eru nú í kringum 110 talsins og telja rúmlega 312 þúsund útleigufermetra í rúmlega 600 leigueiningum. Heildarfjöldi leigutaka er yfir 400. Helstu fasteignir félagsins á höfuðborgarsvæðinu eru Borgartún 21 og 21a, Borgartún 26, Suðurlandsbraut 8 og 10, Mýrargata 2-16, Pósthússtræti 2 (Hótel 1919), Smáratorg 3 (Turninn), Smáratorg 1, Álfheimar 74 (Nýi Glæsibær), Grjótháls 1-3 og Austurstræti 5, 6, 7 og 17. Helsta fasteign félagsins utan höfuðborgarsvæðisins er Glerártorg, Akureyri. Stærstu leigutakar félagsins eru Húsasmiðjan, Flugleiðahótel, Ríkiseignir, Landsbankinn, Sýn, Össur, Míla, Deloitte, Síminn og VÍS.

Stærsti hluti fasteignasafns félagsins er skrifstofuhúsnæði eða 41%. Næst koma verslunarhúsnæði 24%, lagerhúsnæði 14%, hótel 9%, heilsutengt húsnæði 7% og veitinga- og skemmtistaðir 3%. Um 93% fasteigna félagsins eru á höfuðborgarsvæðinu, þar af 38% á fjármála- og viðskiptasvæði Reykjavíkur (aðallega innan póstnúmera 105 og 108), 17% í miðbæ Reykjavíkur og 19% í Smáranum - Mjódd. 7% eignasafnsins er á landsbyggðinni, þar af rúmlega 6% á Akureyri.

Rafrænn kynningarfundur

Rafrænn kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 28. október 2022 klukkan 8:30. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.

Skráning á fundinn fer fram hér:

Eftir skráningu fá þátttakendur tölvupóst með nánari upplýsingum.

Fjárhagsdagatal

Stefnt er að birtingu árshluta- og ársuppgjöra á neðangreindum dagsetningum:



Stjórnendauppgjör 2022 og áætlun 2023                               6. febrúar 2023

Ársuppgjör 2022                                                                     28. febrúar 2023

Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaða.

Nánari upplýsingar veita:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, , s. 590-2200

Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, , s. 820-8980

Viðhengi



EN
27/10/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Eik fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða skiptiútboðs 25. febrúar 2026

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða skiptiútboðs 25. febrúar 2026 Eik fasteignafélag hf. („Eik“) lauk skiptiútboði á skuldabréfum miðvikudaginn 25. febrúar 2026, þar sem boðinn var til sölu skuldabréfaflokkurinn EIK 120266. FlokkurEIK 120266Greiðslu- og uppgjörsdagur04.03.2026Samþykkt tilboð að nafnverði (m.kr.)1.200Samþykkt (ávöxtunarkrafa)3,80%Fjöldi innsendra tilboða2Upphæð móttekinna tilboða að nafnverði (m.kr.)1.200Fjöldi samþykktra tilboða2Vegið meðaltal innsendra tilboða (ávöxtunarkrafa)3,78%Boðhlutfall1,00 Alls bárust gild tilboð að nafnverði 1.200 m.kr., og var ákveðið að taka til...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 25. febrúar 2026 – skiptiútb...

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 25. febrúar 2026 – skiptiútboð Eik fasteignafélag hf. („Eik“) efnir til útboðs á skuldabréfum miðvikudaginn 25. febrúar 2026. Í útboðinu verður boðinn til sölu skuldabréfaflokkurinn EIK 120266. Útboðið er skiptiútboð, þar sem eigendum skuldabréfaflokksins EIK 050726 býðst að skipta bréfum sínum í þeim flokki fyrir kaup á skuldabréfum í útboðinu, þ.e. EIK 120266. Greiðsla vegna útboðsins fer því eingöngu fram með afhendingu skuldabréfa í flokknum EIK 050726 á móti skuldabréfum í EIK 120266 og er greiðsla með reiðufé ekki í boði. Vegna nafnverðseinin...

Eik Fasteignafelag hf: 1 director

A director at Eik Fasteignafelag hf bought 20,000,000 shares at 14.200ISK and the significance rating of the trade was 67/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two y...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Flöggun - Langisjór ehf. og samstarfsaðilar

Eik fasteignafélag hf.: Flöggun - Langisjór ehf. og samstarfsaðilar Flöggunartilkynning er í viðhengi.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda

Eik fasteignafélag hf.: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda Sjá meðfylgjandi tilkynningu.  Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch