EIK Eik fasteignafelag hf

Eik fasteignafélag hf.: Árshlutauppgjör fyrstu þrjá mánuði ársins 2021

Eik fasteignafélag hf.: Árshlutauppgjör fyrstu þrjá mánuði ársins 2021

  • Rekstrartekjur námu 2.033 m.kr.
  • Virðisrýrnun viðskiptakrafna nam 89 m.kr.
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 1.260 m.kr.
  • Heildarhagnaður nam 884 m.kr.
  • Handbært fé frá rekstri nam 745 m.kr.
  • Bókfært virði fjárfestingareigna nam 99.711 m.kr.  
  • Bókfært virði eigna til eigin nota nam 3.835 m.kr. í lok tímabilsins.
  • Matsbreyting fjárfestingareigna var 881 m.kr.
  • Handbært fé nam 2.904 m.kr.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 63.103 m.kr. í lok tímabilsins.
  • Eiginfjárhlutfall nam 31,4%.
  • Hagnaður á hlut var 0,26 kr.
  • Virðisútleiguhlutfall var 92% í lok tímabilsins
  • Vegnir verðtryggðir vextir námu 3,09% í lok tímabilsins.
  • Vegnir óverðtryggðir vextir námu 3,15% í lok tímabilsins.

Árshlutareikningur Eikar fasteignafélags hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2021 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins þann 29. apríl 2021.

Meðfylgjandi er árshlutaskýrsla sem inniheldur árshlutareikning vegna fyrstu þriggja mánaða ársins ásamt ítarlegri upplýsingum um rekstur félagsins en fram koma í tilkynningunni.

Rekstur félagsins

Rekstur félagsins gekk vel á fyrstu þremur mánuðum ársins 2021 og var afkoman í takt við áætlanir stjórnenda félagsins. Rekstrartekjur félagsins á fyrstu þremur mánuðum ársins 2021 námu 2.033 m.kr. Þar af voru leigutekjur 1.873 m.kr. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 1.260 m.kr. Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 1.107 m.kr. og heildarhagnaður samstæðunnar á fyrstu þremur mánuðum ársins 2021 nam 884 m.kr.

NOI hlutfall (þ.e. rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir sem hlutfall af leigutekjum) nam 67,8% á fyrstu þremur mánuðum ársins 2021 samanborið við 71,4% fyrir sama tímabil 2020.

Fjárfestingareignir félagsins eru metnar á gangvirði í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) og stuðst er m.a. við núvirt framtíðarsjóðstreymi einstakra eigna. Breytingar á gangvirði eru færðar undir matsbreytingu fjárfestingareigna sem voru um 881 m.kr. á fyrstu þremur mánuðum ársins.

Efnahagur félagsins

Heildareignir félagsins námu 108.441 m.kr. þann 31. mars 2021. Þar af eru fjárfestingareignir að virði 99.711 m.kr. sem skiptast í fjárfestingareignir í útleigu að fjárhæð 96.873 m.kr., leigueignir 2.293 m.kr., fjárfestingareignir í þróun 76 m.kr., byggingarréttir og lóðir 457 m.kr. og fyrirframgreidd gatnagerðargjöld að fjárhæð 13 m.kr. Eignir til eigin nota námu 3.835 m.kr. og fasteignir í þróun 659 m.kr. Eigið fé félagsins nam 34.084 m.kr. í lok mars 2021 og var eiginfjárhlutfall 31,4%. Heildarskuldir félagsins námu 74.358 m.kr. þann 31. mars 2021, þar af voru vaxtaberandi skuldir 63.103 m.kr. og tekjuskattsskuldbinding 7.668 m.kr. 

Virðisútleiguhlutfall

Virðisútleiguhlutfall félagsins stóð í stað frá áramótum og var 92% í lok fyrsta ársfjórðungs.

Horfur og áhrif vegna COVID-19

Horfur fyrir árið eru óbreyttar frá rekstraráætlun sem birt var í febrúar síðastliðnum.

Áhrif COVID-19 á rekstur félagsins er enn sýnileg og áætlar félagið að bein áhrif COVID-19 hafi verið á bilinu 130-140 m.kr. á fyrstu þremur mánuðum ársins. Félagið gerir ráð fyrir að faraldurinn muni halda áfram að hafa áhrif á reksturinn út árið.

Fjármögnun

Félagið gaf út tvo nýja skuldabréfaflokka í fjórðungnum. Seldar voru 2.200 m.kr. að nafnverði í skuldabréfaflokknum EIK 100327 sem ber 1,45% verðtryggða vexti. Þá voru seldar 1.200 m.kr. að nafnverði í skuldabréfaflokknum EIK 23 1 sem ber 2,9% óverðtryggða vexti. Fjármunirnir voru nýttir í að greiða upp óhagstæðari bankalán.

Skuldabréfaflokkurinn EIK 15 1, sem bar 3,3% vexti, var greiddur upp í mars síðastliðnum. Uppgreiðslan var fjármögnuð að fullu með óverðtryggðu bankaláni.

Vegnir verðtryggðir vextir námu 3,09% í lok fjórðungsins og vegnir óverðtryggðir vextir 3,15%, en félagið leitast alltaf eftir því að hafa sem hagstæðust fjármagnskjör.

Eignasafn félagsins

Fasteignir innan samstæðunnar eru rúmlega 100 talsins og telja rúmlega 310 þúsund útleigufermetra í rúmlega 600 leigueiningum. Heildarfjöldi leigutaka er yfir 400. Helstu fasteignir félagsins á höfuðborgarsvæðinu eru Borgartún 21 og 21a, Borgartún 26, Suðurlandsbraut 8 og 10, Mýrargata 2-16, Pósthússtræti 2 (Hótel 1919), Smáratorg 3 (Turninn), Smáratorg 1, Álfheimar 74 (Nýi Glæsibær), Grjótháls 1-3 og Austurstræti 5, 6, 7 og 17. Helsta fasteign félagsins utan höfuðborgarsvæðisins er Glerártorg. Stærstu leigutakar félagsins eru Húsasmiðjan, Flugleiðahótel, Ríkiseignir, Rúmfatalagerinn, Sýn, Landsbankinn, Össur, Míla, Síminn og Deloitte.

Stærsti hluti fasteignasafns Eikar er skrifstofuhúsnæði eða 45%. Næst koma verslunarhúsnæði 24%, lagerhúsnæði 13%, hótel 9%, heilsutengt húsnæði 5% og veitinga- og skemmtistaðir 3%. Um 92% fasteigna félagsins eru á höfuðborgarsvæðinu, þar af 38% á fjármála- og viðskiptasvæði Reykjavíkur (aðallega innan póstnúmera 105 og 108), 17% í miðbæ Reykjavíkur og 19% í Smáranum - Mjódd. 8% eignasafnsins er á landsbyggðinni, þar af tæplega 7% á Akureyri.

Rafrænn kynningarfundur

Rafrænn kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 30. apríl 2021 klukkan 8:30. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.

Skráning á fundinn fer fram hér:

Eftir skráningu fá þátttakendur tölvupóst með nánari upplýsingum.

Fjárhagsdagatal 2021

Stefnt er að birtingu árshluta- og ársuppgjöra á neðangreindum dagsetningum:

Árshlutauppgjör 2. ársfjórðungs 2021                                   25. ágúst 2021

Árshlutauppgjör 3. ársfjórðungs 2021                                   28. október 2021

Stjórnendauppgjör 2021 og áætlun 2022                             11. febrúar 2022

Ársuppgjör 2021                                                                      3. mars 2022

Nánari upplýsingar veitir:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, , s. 590-2200

Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, , s. 820-8980

Viðhengi



EN
29/04/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Eik fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða skiptiútboðs 25. febrúar 2026

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða skiptiútboðs 25. febrúar 2026 Eik fasteignafélag hf. („Eik“) lauk skiptiútboði á skuldabréfum miðvikudaginn 25. febrúar 2026, þar sem boðinn var til sölu skuldabréfaflokkurinn EIK 120266. FlokkurEIK 120266Greiðslu- og uppgjörsdagur04.03.2026Samþykkt tilboð að nafnverði (m.kr.)1.200Samþykkt (ávöxtunarkrafa)3,80%Fjöldi innsendra tilboða2Upphæð móttekinna tilboða að nafnverði (m.kr.)1.200Fjöldi samþykktra tilboða2Vegið meðaltal innsendra tilboða (ávöxtunarkrafa)3,78%Boðhlutfall1,00 Alls bárust gild tilboð að nafnverði 1.200 m.kr., og var ákveðið að taka til...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 25. febrúar 2026 – skiptiútb...

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 25. febrúar 2026 – skiptiútboð Eik fasteignafélag hf. („Eik“) efnir til útboðs á skuldabréfum miðvikudaginn 25. febrúar 2026. Í útboðinu verður boðinn til sölu skuldabréfaflokkurinn EIK 120266. Útboðið er skiptiútboð, þar sem eigendum skuldabréfaflokksins EIK 050726 býðst að skipta bréfum sínum í þeim flokki fyrir kaup á skuldabréfum í útboðinu, þ.e. EIK 120266. Greiðsla vegna útboðsins fer því eingöngu fram með afhendingu skuldabréfa í flokknum EIK 050726 á móti skuldabréfum í EIK 120266 og er greiðsla með reiðufé ekki í boði. Vegna nafnverðseinin...

Eik Fasteignafelag hf: 1 director

A director at Eik Fasteignafelag hf bought 20,000,000 shares at 14.200ISK and the significance rating of the trade was 67/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two y...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Flöggun - Langisjór ehf. og samstarfsaðilar

Eik fasteignafélag hf.: Flöggun - Langisjór ehf. og samstarfsaðilar Flöggunartilkynning er í viðhengi.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda

Eik fasteignafélag hf.: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda Sjá meðfylgjandi tilkynningu.  Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch