EIK Eik fasteignafelag hf

Eik fasteignafélag hf.: Samkomulag um helstu skilmála vegna kaupa á Festingu hf.

Eik fasteignafélag hf.: Samkomulag um helstu skilmála vegna kaupa á Festingu hf.

Eik fasteignafélag hf. og hluthafar Festingar hf., kt. 550903-4150, hafa undirritað samkomulag um helstu skilmála vegna fyrirhugaðra kaupa Eikar fasteignafélags á öllu hlutafé í félaginu.

Fasteignir Festingar á Íslandi eru um 43.000 m2 að stærð í 11 fasteignum og hýsa starfsemi Samskipa hf. um landið og eru að stærstum hluta í Reykjavík en einnig á Akureyri, Dalvík, Egilsstöðum, Ísafirði og Vestmannaeyjum. Undanskilin í kaupunum eru dótturfélög Festingar í Noregi og Færeyjum sem eiga einnig fasteignir sem nýttar eru í starfsemi Samskipa. Ráðgert er að leigusamningar um eignirnar verði til 20 ára.

Heildarvirði (e. Enterprise Value) Festingar í viðskiptunum er áætlað 15.300.000.000 kr. og er fyrirhugað að  kaupin verði fjármögnuð með handbæru fé og lánsfé. Byggt á áætlun stjórnenda Festingar um rekstrarhagnað ársins 2025 (EBITDA) á föstu verðlagi (m.v. vísitölu neysluverðs til verðtryggingar í janúar 2025), áætlar Eik að áhrif á EBITDA félagsins á ársgrundvelli verði 1.085.000.000 kr.

Viðskiptin eru háð fyrirvörum um niðurstöður áreiðanleikakannana, fjármögnun og endanlega skjalagerð ásamt samþykki stjórnar Eikar fasteignafélags og Samkeppniseftirlitsins.

Ráðgjafar Eikar fasteignafélags í viðskiptunum er fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance hf. og ráðgjafar seljenda er fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka.

Upplýsingar veita:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, , s. 590-2200

Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, , s. 820-8980



EN
28/11/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Eik fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða skiptiútboðs 25. febrúar 2026

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða skiptiútboðs 25. febrúar 2026 Eik fasteignafélag hf. („Eik“) lauk skiptiútboði á skuldabréfum miðvikudaginn 25. febrúar 2026, þar sem boðinn var til sölu skuldabréfaflokkurinn EIK 120266. FlokkurEIK 120266Greiðslu- og uppgjörsdagur04.03.2026Samþykkt tilboð að nafnverði (m.kr.)1.200Samþykkt (ávöxtunarkrafa)3,80%Fjöldi innsendra tilboða2Upphæð móttekinna tilboða að nafnverði (m.kr.)1.200Fjöldi samþykktra tilboða2Vegið meðaltal innsendra tilboða (ávöxtunarkrafa)3,78%Boðhlutfall1,00 Alls bárust gild tilboð að nafnverði 1.200 m.kr., og var ákveðið að taka til...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 25. febrúar 2026 – skiptiútb...

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 25. febrúar 2026 – skiptiútboð Eik fasteignafélag hf. („Eik“) efnir til útboðs á skuldabréfum miðvikudaginn 25. febrúar 2026. Í útboðinu verður boðinn til sölu skuldabréfaflokkurinn EIK 120266. Útboðið er skiptiútboð, þar sem eigendum skuldabréfaflokksins EIK 050726 býðst að skipta bréfum sínum í þeim flokki fyrir kaup á skuldabréfum í útboðinu, þ.e. EIK 120266. Greiðsla vegna útboðsins fer því eingöngu fram með afhendingu skuldabréfa í flokknum EIK 050726 á móti skuldabréfum í EIK 120266 og er greiðsla með reiðufé ekki í boði. Vegna nafnverðseinin...

Eik Fasteignafelag hf: 1 director

A director at Eik Fasteignafelag hf bought 20,000,000 shares at 14.200ISK and the significance rating of the trade was 67/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two y...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Flöggun - Langisjór ehf. og samstarfsaðilar

Eik fasteignafélag hf.: Flöggun - Langisjór ehf. og samstarfsaðilar Flöggunartilkynning er í viðhengi.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda

Eik fasteignafélag hf.: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda Sjá meðfylgjandi tilkynningu.  Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch