EIK Eik fasteignafelag hf

Eik fasteignafélag hf.: Stjórnendauppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2023

Eik fasteignafélag hf.: Stjórnendauppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2023

Samkvæmt ókönnuðu stjórnendauppgjöri fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2023 er EBITDA afkoma félagsins umfram uppfærðar áætlanir, sem fyrst og fremst má rekja til endurmats viðskiptakrafna.

Helstu niðurstöður eru:

  • Rekstrartekjur námu samtals 5.497 m.kr.
    • Þar af námu leigutekjur 4.691 m.kr.
  • Rekstrarkostnaður nam 1.852 m.kr.
  • Endurmat viðskiptakrafna leiddi til jákvæðrar virðisrýrnunar viðskiptakrafna að fjárhæð 181 m.kr.
  • EBITDA nam 3.827 m.kr.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 4.473 m.kr.
  • Handbært fé nam 1.043 m.kr.
  • Handbært fé frá rekstri nam 2.147 m.kr.
  • Virðisútleiguhlutfall var 93,8%
  • Vegnir verðtryggðir vextir námu 3,03%
  • Vegnir óverðtryggðir vextir námu 8,93%

Stjórnendauppgjörið er ókannað og getur tekið breytingum fram að birtingu árshlutareikningsins sem fyrirhugað er þann 7. september 2023.

Á stjórnarfundi félagsins í dag tók stjórn afstöðu til endurmats viðskiptakrafna að teknu tilliti til uppgjöra á leiguskuldbindingum sem stöfuðu af áhrifum Covid-19 á leigutaka og breyttrar stöðu þeirra er leiddi til jákvæðrar virðirýrnunar viðskiptakrafna að heildarfjárhæð 195 m.kr. og er því 181 m.kr. tekjufærsla á tímabilinu. Þrátt fyrir tekjufærsluna er enn hluti þeirra viðskiptakrafna virðisrýrður.

Virðisútleiguhlutfall félagsins nam 93,8% í lok júní. Landsbankinn flutti á öðrum ársfjórðungi 2023 í nýjar höfuðstöðvar sínar og skilaði samhliða því húsnæði sem bankinn hafði verið með í langtímaleigu hjá félaginu en það lækkaði virðisútleiguhlutfallið um 1,7%.

Félagið hefur hækkað afkomuspá sína fyrir árið 2023  og væntir þess að EBITDA ársins verði á bilinu 7.500 – 7.800 m.kr. m.v. fast verðlag að teknu tilliti til vísitölu neysluverð til verðtryggingar í september 2023.

Félagið hyggst birta kannað uppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2023 ásamt uppfærðri afkomuspá út árið 2023 eftir lokun markaða þann 7. september næstkomandi.



EN
30/08/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Eik fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða skiptiútboðs 25. febrúar 2026

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða skiptiútboðs 25. febrúar 2026 Eik fasteignafélag hf. („Eik“) lauk skiptiútboði á skuldabréfum miðvikudaginn 25. febrúar 2026, þar sem boðinn var til sölu skuldabréfaflokkurinn EIK 120266. FlokkurEIK 120266Greiðslu- og uppgjörsdagur04.03.2026Samþykkt tilboð að nafnverði (m.kr.)1.200Samþykkt (ávöxtunarkrafa)3,80%Fjöldi innsendra tilboða2Upphæð móttekinna tilboða að nafnverði (m.kr.)1.200Fjöldi samþykktra tilboða2Vegið meðaltal innsendra tilboða (ávöxtunarkrafa)3,78%Boðhlutfall1,00 Alls bárust gild tilboð að nafnverði 1.200 m.kr., og var ákveðið að taka til...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 25. febrúar 2026 – skiptiútb...

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 25. febrúar 2026 – skiptiútboð Eik fasteignafélag hf. („Eik“) efnir til útboðs á skuldabréfum miðvikudaginn 25. febrúar 2026. Í útboðinu verður boðinn til sölu skuldabréfaflokkurinn EIK 120266. Útboðið er skiptiútboð, þar sem eigendum skuldabréfaflokksins EIK 050726 býðst að skipta bréfum sínum í þeim flokki fyrir kaup á skuldabréfum í útboðinu, þ.e. EIK 120266. Greiðsla vegna útboðsins fer því eingöngu fram með afhendingu skuldabréfa í flokknum EIK 050726 á móti skuldabréfum í EIK 120266 og er greiðsla með reiðufé ekki í boði. Vegna nafnverðseinin...

Eik Fasteignafelag hf: 1 director

A director at Eik Fasteignafelag hf bought 20,000,000 shares at 14.200ISK and the significance rating of the trade was 67/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two y...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Flöggun - Langisjór ehf. og samstarfsaðilar

Eik fasteignafélag hf.: Flöggun - Langisjór ehf. og samstarfsaðilar Flöggunartilkynning er í viðhengi.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda

Eik fasteignafélag hf.: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda Sjá meðfylgjandi tilkynningu.  Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch