EIK Eik fasteignafelag hf

Eik fasteignafélag hf.: Stjórnendauppgjör vegna ársins 2024 og fjárhagsáætlun 2025

Eik fasteignafélag hf.: Stjórnendauppgjör vegna ársins 2024 og fjárhagsáætlun 2025

Samkvæmt stjórnendauppgjöri nam EBITDA ársins 7.341 m.kr. og eru niðurstöðurnar í takt við uppfærðar horfur félagsins. Handbært fé frá rekstri nam 4.875 m.kr. og jókst um 19,4% milli ára.

Helstu niðurstöður stjórnendauppjörs eru:

  • Rekstrartekjur námu 11.495 m.kr.
  • Leigutekjur námu 9.896 m.kr.
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 7.341 m.kr.
  • Matsbreyting fjárfestingareigna nam 7.327 m.kr.
  • Handbært fé frá rekstri nam 4.875 m.kr.
  • Bókfært virði fjárfestingareigna nam 145.471 m.kr.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 85.098 m.kr.
  • Vegnir verðtryggðir vextir námu 3,63%
  • Vegnir óverðtryggðir vextir námu 7,67%
  • Hlutfall óverðtryggðra lána nam tæplega 3% við árslok
  • Eiginfjárhlutfall nam 33,7% í lok árs
  • Veðhlutfall (vaxtaberandi skuldir / virði fasteigna og byggingarheimildina) nam 54,9%
  • Virðisútleiguhlutfall án þróunareigna nam 93,6% í lok árs

Félagið spáir því að EBITDA félagsins verði á bilinu 7.620 – 7.940 m.kr. á árinu 2025 á föstu verðlagi miðað við vísitölu neysluverðs í janúar 2025. Þá spáir félagið að rekstrartekjur verði á bilinu 12.055 – 12.545 m.kr., og þar af verði leigutekjur á bilinu 10.375 – 10.800 m.kr. sem er um 5% raunvöxtur milli ára miðað við miðgildi áætlaðra leigutekna.

Ef félagið hefði verið með 95% virðisútleiguhlutfall allt árið 2025 og tilfærslu á 6.400 þróunarfermetrum í tekjuberandi útleigufermetra er áætlað að áætlun leigutekna fyrir árið 2025 hefði verið 540 – 570 m.kr. hærri.

Í meðfylgjandi kynningu eru frekari upplýsingar um stjórnendauppgjör og forsendur fjárhagsáætlunar. Þá verða ítarlegri upplýsingar um ársuppgjörið birtar í ársskýrslu félagsins þann 13. febrúar nk.

Nánari upplýsingar veita:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, , s. 590-2200

Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs,  s. 590-2200 / 820 8980

Viðhengi



EN
03/02/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Eik fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða skiptiútboðs 25. febrúar 2026

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða skiptiútboðs 25. febrúar 2026 Eik fasteignafélag hf. („Eik“) lauk skiptiútboði á skuldabréfum miðvikudaginn 25. febrúar 2026, þar sem boðinn var til sölu skuldabréfaflokkurinn EIK 120266. FlokkurEIK 120266Greiðslu- og uppgjörsdagur04.03.2026Samþykkt tilboð að nafnverði (m.kr.)1.200Samþykkt (ávöxtunarkrafa)3,80%Fjöldi innsendra tilboða2Upphæð móttekinna tilboða að nafnverði (m.kr.)1.200Fjöldi samþykktra tilboða2Vegið meðaltal innsendra tilboða (ávöxtunarkrafa)3,78%Boðhlutfall1,00 Alls bárust gild tilboð að nafnverði 1.200 m.kr., og var ákveðið að taka til...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 25. febrúar 2026 – skiptiútb...

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 25. febrúar 2026 – skiptiútboð Eik fasteignafélag hf. („Eik“) efnir til útboðs á skuldabréfum miðvikudaginn 25. febrúar 2026. Í útboðinu verður boðinn til sölu skuldabréfaflokkurinn EIK 120266. Útboðið er skiptiútboð, þar sem eigendum skuldabréfaflokksins EIK 050726 býðst að skipta bréfum sínum í þeim flokki fyrir kaup á skuldabréfum í útboðinu, þ.e. EIK 120266. Greiðsla vegna útboðsins fer því eingöngu fram með afhendingu skuldabréfa í flokknum EIK 050726 á móti skuldabréfum í EIK 120266 og er greiðsla með reiðufé ekki í boði. Vegna nafnverðseinin...

Eik Fasteignafelag hf: 1 director

A director at Eik Fasteignafelag hf bought 20,000,000 shares at 14.200ISK and the significance rating of the trade was 67/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two y...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Flöggun - Langisjór ehf. og samstarfsaðilar

Eik fasteignafélag hf.: Flöggun - Langisjór ehf. og samstarfsaðilar Flöggunartilkynning er í viðhengi.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda

Eik fasteignafélag hf.: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda Sjá meðfylgjandi tilkynningu.  Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch