EIK Eik fasteignafelag hf

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 5. mars 2021

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 5. mars 2021

Eik fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum föstudaginn 5. mars næstkomandi. Boðinn verður til sölu nýr skuldabréfaflokkur EIK 100327.

Skuldabréfaflokkurinn verður með lokagjalddaga þann 10. mars 2027 og greiðast vextir og afborganir tvisvar sinnum á ári, þann 10. mars og 10. september ár hvert. Afborganir fylgja 30 ára jafngreiðsluferli (annuity) fram til lokagjalddaga þegar allar eftirstöðvar höfuðstóls greiðast upp. Þá mun flokkurinn deila veðsafni með þegar útgefnum skuldabréfaflokkum félagsins, EIK 100346, EIK 161047, EIK 050726, EIK 050749 og EIK 23 1, og lánum frá fjármálastofnunum.

Heildarstærð skuldabréfaflokksins verður að hámarki 3.000 milljónir króna og munu nafnvextir hans ráðast af niðurstöðu útboðsins, sem verður með hollensku fyrirkomulagi, þ.e. að öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem verður tekið. Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna þann 10. mars næstkomandi og verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Nasdaq Iceland.

Íslandsbanki hefur umsjón með sölu skuldabréfanna.

Tilboðum skal skilað fyrir klukkan 16:00 á útboðsdegi, þann 5. mars 2021, til verðbréfamiðlunar Íslandsbanka á netfangið . Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Nánari upplýsingar veitir:

Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, , s: 590-2209 / 820-8980



EN
02/03/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Eik fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda

Eik fasteignafélag hf.: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda Sjá meðfylgjandi tilkynningar. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Endanleg dagskrá og tillögur vegna aðalfundar ...

Eik fasteignafélag hf.: Endanleg dagskrá og tillögur vegna aðalfundar 2026. Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15:00 fimmtudaginn 16. apríl 2026, á BRASA, Turninum Smáratorgi 3, 201 Kópavogi. Ekki hafa verið gerðar breytingar á dagskrá eða tillögum fyrir fundinn sem birtar voru með tilkynningu félagsins 24. mars 2026. Fundargögn eru á heimasíðu félagsins á slóðinni: . Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn eru beðnir um að forskrá sig tímanlega á eftirfarandi vefslóð: en opnað verður fyrir forskráningu miðvikudaginn 8. apríl 2026. Atkv...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Staðfesting og könnun eftirlitsaðila á sérstök...

Eik fasteignafélag hf.: Staðfesting og könnun eftirlitsaðila á sérstökum skilyrðum EIK 100346, EIK 100327, EIK 161047, EIK 050749, EIK 050726, EIK 050734, EIK 141233 og EIK 150536 PricewaterhouseCoopers ehf. („PwC“) hefur staðfest að skuldabréfaflokkarnir EIK 100346, EIK 100327, EIK 161047, EIK 050749, EIK 050726, EIK 050734, EIK 141233, EIK 150536 standast öll fjárhagsleg- og tryggingarleg skilyrði skuldabréfaflokkanna miðað við dagsetninguna 31.12.2025. Sem eftirlitsaðili skuldabréfaflokkanna hefur PwC m.a. það hlutverk að kanna og staðfesta sjálfstæða útreikninga útgefenda á sérstökum s...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða útboðs skuldabréfa

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða útboðs skuldabréfa Eik fasteignafélag hf. („Eik“) lauk í dag útboði á nýjum flokki skuldabréfa, EIK 150531, fyrir samtals 3.980 m.kr. á 4,00% ávöxtunarkröfu. Í flokkinn EIK 150531 bárust 13 tilboð að fjárhæð 4.940 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,83-4,05%. Tilboðum að nafnvirði 3.980 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 4,00%. FlokkurEIK 150531Greiðslu- og uppgjörsdagur7.4.2026Samþykkt tilboð að nafnverði (m.kr.)3.980Samþykkt (ávöxtunarkrafa)4,00%Fjöldi innsendra tilboða13Upphæð móttekinna tilboða að nafnverði (m.kr.)4.940Fjöldi samþykktra tilboða...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Boðun aðalfundar árið 2026

Eik fasteignafélag hf.: Boðun aðalfundar árið 2026 Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15:00 fimmtudaginn 16. apríl 2026, á BRASA, Turninum Smáratorgi 3, 201 Kópavogi. Meðfylgjandi er fundarboð með dagskrá aðalfundar félagsins auk tillagna stjórnar, skýrslu tilnefningarnefndar og annarra skjala sem varða aðalfundinn. Vakin er athygli á upplýsingum í fundarboði um fyrirkomulag rafrænnar forskráningar sem og á tillögum um breytingar á starfskjarastefnu félagsins, samþykktum félagsins ásamt kaupréttaráætlun og kaupréttarkerfi stjórnenda. Jafnframt er vakin sérstök athygli ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch