HAMP Hampidjan Ltd

Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Hampiðjunnar er haldinn verður 21. mars 2025 kl. 16:00

Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Hampiðjunnar er haldinn verður 21. mars 2025 kl. 16:00

Dagskrá:

1.        Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2024.

   2.        Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar reikningsársins 2024.

   3.        Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og undirnefnda stjórnar.

   4.        Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu félagsins.

5.        Kosning stjórnar félagsins.

         a. Kosning formanns.

         b. Kosning fjögurra meðstjórnenda.

6.        Tillaga stjórnar um utanaðkomandi nefndarmann í endurskoðunarnefnd.

7.        Kosning endurskoðunarfélags.

   8.        Önnur mál, löglega upp borin.

Tillögur:

Um greiðslu arðs:

Stjórn félagsins leggur til að á árinu 2025 vegna rekstrarársins 2024 verði greiddar 1,10 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 700 milljónir ISK. Arðurinn verði greiddur í viku 23.

Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 21. mars 2025, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 25. mars.

Arðleysisdagurinn er 24. mars.

Um þóknun til stjórnarmanna:

Þóknun til stjórnarmanna verði 350.000 kr. á mánuði, formaður fái þrefaldan hlut.

Þóknun til nefndarmanna í endurskoðunarnefnd skal nema 105.000 kr. á mánuði, formaður

fái 175.000 kr. á mánuði.

Um starfskjarastefnu:

Stjórn félagsins leggur til að núverandi starfskjarastefna félagsins, sem samþykkt var á síðasta aðalfundi, muni gilda áfram með minniháttar breytingum. Starfskjarastefnan er í samræmi við 79. gr. a hlutafélagalaga nr. 2/1995.

Tillaga að starfskjarastefnu ásamt greinargerð er meðfylgjandi í viðauka.

Um utanaðkomandi nefndarmann í endurskoðunarnefnd:

Jóhann Gunnar Jóhannsson

Um endurskoðunarfélag:

PricewaterhouseCoopers ehf. verði kjörið til næsta árs.

Viðhengi



EN
11/03/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Hampidjan Ltd

 PRESS RELEASE

Hampiðjan – Ársreikningur samstæðu Hampiðjunnar 2025

Hampiðjan – Ársreikningur samstæðu Hampiðjunnar 2025 Lykilstærðir  Allar fjárhæðir í evrum og samanburðartölur í sviga. Árið 2025 Rekstrartekjur ársins voru 359,7 m€ (311,0 m€)EBITDA af reglulegri starfsemi var 39,6 m€ (37,6 m€)Aðlöguð EBITDA fyrir einskiptiskostnaði nam 40,4 m€ (37,6 m€)Fjáreignatekjur námu 1,6 m€ (4,7 m€)Fjármagnsgjöld voru 12,7 m€ (13,5 m€)Gengismunur var 1,9 m€ til gjalda (2,1 m€ til tekna)Hagnaður ársins af áframhaldandi starfsemi nam 8,8 m€ (14,3 m€)Aflögð starfsemi eftir skatta nam 2,9 m€ til gjalda (0,3 m€ til gjalda)Heildareignir voru 547,5 m€ (509,5 m€ í lok 20...

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf. – Kynningarfundur ársuppgjörs 2025 fimmtudaginn 5. mars.

Hampiðjan hf. – Kynningarfundur ársuppgjörs 2025 fimmtudaginn 5. mars. Hampiðjan hf. mun birta ársuppgjör 2025 eftir lokun markaða fimmtudaginn 5. mars 2026. Fjárfestakynning verður haldin sama dag, klukkan 16:15 í höfuðstöðvum félagsins að Skarfagörðum 4. Kynningunni verður jafnframt streymt og verður vefstreymið aðgengilegt á heimasíðu félagsins fyrir fundinn. Fjárfestum er velkomið að senda spurningar á meðan á fundi stendur á netfangið Ársreikningurinn verður aðgengilegur á heimasíðu Hampiðjunnar. Upptaka af kynningunni verður einnig aðgengileg á heimasíðunni að fundi loknum. Nána...

 PRESS RELEASE

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn 20. mars 2026

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn 20. mars 2026 Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn að Skarfagörðum 4, Reykjavík, föstudaginn 20. mars 2026 og hefst klukkan 16:00. Á dagskrá fundarins verður:    1.        Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2025.   2.        Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar reikningsársins 2025.   3.        Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og undirnefnda stjórnar.   4.        Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu félagsins.   5.        Kosning stjórnar félagsins.                a. Kosning formanns.                b. Kosni...

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf. – Afkomuviðvörun: Afkoma fjórða ársfjórðungs 2025 undir ...

Hampiðjan hf. – Afkomuviðvörun: Afkoma fjórða ársfjórðungs 2025 undir væntingum Á vettvangi félagsins er nú unnið að uppgjöri fjórða ársfjórðungs 2025 og gerð ársreiknings. Drög að uppgjöri benda til að velta samstæðu Hampiðjunnar hafi numið tæpum 360 m€ á árinu 2025 sem er aukning um 15% á milli ára. Félagið áætlar að EBITDA í ársreikningi félagsins fyrir árið 2025 nemi á bilinu 39 til 40 m€. EBITDA hefur því aukist um rúm 5% á milli ára sem er minni aukning en árshlutauppgjör Hampiðjunnar hafa sýnt til þessa. Sé leiðrétt fyrir einskiptisliðum þá hækkar ofangreind EBITDA um tæpar 0,8 m€....

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf.: Flöggun frá Almenna-Lífsverk lífeyrissjóði

Hampiðjan hf.: Flöggun frá Almenna-Lífsverk lífeyrissjóði Hampiðjunni hf. hefur borist meðfylgjandi tilkynning í tengslum við sameiningu Almenna lífeyrissjóðsins og Lífsverks lífeyrissjóðs, sem frá og með 1. janúar 2026 starfa undir heitinu Almenni-Lífsverk lífeyrissjóður. Við sameininguna fer eignarhald sjóðsins yfir 5% af heildarhlutafé Hampiðjunnar hf. Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch