ISF ISFELAG HF.

Ísfélag hf. – Niðurstöður aðalfundar 23. apríl 2025

Ísfélag hf. – Niðurstöður aðalfundar 23. apríl 2025

Aðalfundur Ísfélags hf. var haldinn í að Tangagötu 1 í Vestmannaeyjum og rafrænt þann 23. apríl 2025. Mætt var fyrir 87,14 % atkvæða.

Hér verður gerð grein fyrir helstu niðurstöðum fundarins:

Ársreikningur

Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins.

Tillaga um greiðslu arðs

Samþykkt var að arðgreiðsla á árinu 2025 vegna rekstrarársins 2024 verði 2,558 kr. á hlut eða 2.100.000 milljónir kr. Arðurinn verður greiddur 16. maí 2025. Réttur hluthafa til arðgreiðslu miðast við hlutaskrá 25. apríl 2025.

Tillaga um starfskjarastefnu

Tillaga að starfskjarastefnu var lögð fram óbreytt og var hún samþykkt.

Kosning stjórnar félagsins

Í stjórn félagsins voru kjörin: Guðbjörg Matthíasdóttir, Einar Sigurðsson, Gunnar Sigvaldason, Steinunn H. Marteinsdóttir og Sigríður Vala Halldórsdóttir. Samsetning stjórnar uppfyllir ákvæði laga og samþykkta félagsins um kynjahlutfall.

Ákvörðun um þóknun til stjórnar félagsins

Samþykkt var að stjórnarlaun vegna ársins 2024 verði sem hér segir: Formaður verði með kr. 517.500 á mánuði en aðrir stjórnarmenn með 258.750.

Ákvörðun um þóknun til endurskoðunarnefndar

Samþykkt var að þóknanir vegna ársins 2024 verði sem hér segir: Formaður verði með kr. 269.100 á mánuði en aðrir stjórnarmenn með 134.550.

Kosning endurskoðenda

Samþykkt var að endurskoðandi félagsins fyrir næsta ár verði KPMG (Matthías Þ. Óskarsson).



Tillaga um endurskoðunarnefnd

Samþykkt var tillaga stjórnar um tilnefningu nefndarmanna í endurskoðunarnefnd. Tilnefnir voru Lárus Finnbogason sem formann nefndarinnar og Gunnar Svavarsson, sem báðir eru óháðir félaginu.

Tillaga um heimild stjórnar til kaupa á eigin bréfum

Aðalfundur samþykkti að framlengja heimild stjórn félagsins til að kaupa eigin hluti í félaginu til næstu átján mánaða.

Stjórn félagsins kom saman í kjölfar aðalfundar og hefur skipt með sér verkum. Var ákveðið að Einar Sigurðsson yrði stjórnarformaður og Steinunn H. Marteinsdóttir varaformaður stjórnar.



EN
23/04/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on ISFELAG HF.

 PRESS RELEASE

Ísfélag hf. - Viðskipti stjórnanda

Ísfélag hf. - Viðskipti stjórnanda Sjá viðhengi. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Ísfélag hf. participation in financing of Austur Holding AS in connect...

Ísfélag hf. participation in financing of Austur Holding AS in connection with Kaldvik AS share capital increase Ísfélag hf. (the “Company”), which holds a 29.3% stake in Austur Holding AS (“Austur”), hereby announces its participation in the financing of Austur in relation to Austur’s subscription in a share capital increase of Kaldvik AS, following the approval of an extraordinary general meeting of Kaldvik AS on 19 June 2025. Kaldvik AS, listed on Nasdaq First North Growth Market and Euronext Growth in Oslo, announced on 5 June 2025 the results of a private placement of 38,011,500 new ...

 PRESS RELEASE

Þátttaka Ísfélags hf. í fjármögnun Austur Holding AS vegna hlutafjárút...

Þátttaka Ísfélags hf. í fjármögnun Austur Holding AS vegna hlutafjárútboðs Kaldvik AS Ísfélag hf. („félagið“) sem er 29,3% hluthafi í Austur Holding AS („Austur“) tilkynnir hér með um aðkomu félagsins að fjármögnun Austur vegna þátttöku Austur í hlutafjárhækkun Kaldvik AS, í kjölfar samþykktar hluthafafundar Kaldvik AS þann 19. júní 2025.  Kaldvik AS, sem er skráð á Nasdaq First North Growth Market og Euronext Growth í Osló í Noregi, tilkynnti þann 5. júní 2025 um niðurstöðu lokaðs hlutafjárútboðs vegna útgáfu 38.011.500 nýrra hluta að fjárhæð NOK 532 milljónum eða um það bil EUR 46,2 mill...

 PRESS RELEASE

Uppgjör Ísfélags hf. á fyrsta ársfjórðungi 2025

Uppgjör Ísfélags hf. á fyrsta ársfjórðungi 2025 Frá Stefáni Friðrikssyni forstjóra.  Fyrsti ársfjórðungur ársins 2025 bar þess merki að afli skipa félagsins í loðnu var einungis tæp 1.200 tonn sem öll fóru í frystingu. Þetta er annað árið í röð þar sem loðnuvertíðin bregst og það hefur mikil áhrif á rekstur félagsins, starfsmenn þess og samfélögin sem félagið starfar í. Aflabrögð í bolfiski á fyrsta ársfjórðungi voru í lakari kantinum. Verð hefur verið gott og sala afurða hefur gengið vel. Veiðar frystitogarans Sólbergs ÓF gengu vel.   Við fengum afhent glæsilegt uppsjávarskip í maí, sem...

 PRESS RELEASE

Ísfélag hf. birtir afkomu fyrsta ársfjórðungs 2025 þriðjudaginn 27. ma...

Ísfélag hf. birtir afkomu fyrsta ársfjórðungs 2025 þriðjudaginn 27. maí eftir lokun markaða. Ísfélag hf. birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025 eftir lokun markaða á þriðjudaginn 27. maí.  Fjárfestum er velkomið að senda spurningar á netfangið .  Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Ísfélagsins, .   Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Jóhann Árnason í síma 488-1109 eða á . 

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch