KVIKA Kvika banki hf

Kvika banki hf.: Tilkynning um nýtingu áskriftarréttinda og hækkun hlutafjár

Kvika banki hf.: Tilkynning um nýtingu áskriftarréttinda og hækkun hlutafjár

Stjórn Kviku banka hf. („Kvika“ eða „félagið“) hefur síðan á síðasta stjórnarfundi tekið fyrir 15 tilkynningar eigenda áskriftarréttinda að hlutum í félaginu, að nafnvirði samtals 23.333.331 kr., um nýtingu réttindanna.

Allar tilkynningarnar eru vegna áskriftarréttinda sem gefin voru út og seld á árunum 2017 og 2018 á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV í samþykktum félagsins. Framangreint felur í sér nýtingu á áskriftarréttindum að samtals 23.333.331 nýjum hlut. Kaupverð hinna nýju hluta nemur kr. 154.679.319 og því er reiknað meðalgengi 6,629114.

Með vísan til samninga um útgáfu áskriftarréttindanna er stjórn skylt að hækka hlutafé til að mæta skuldbindingum samkvæmt réttindunum og gefa út hlutafé, skrá rétthafa í hlutaskrá og tryggja skráningu þeirra sem rétthafa í verðbréfamiðstöð, sbr. lög nr. 7/2020 um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignaskráningu fjármálagerninga.

Stjórn nýtti í dag heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæði IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess í þeim tilgangi að mæta nýtingu framangreindra áskriftarréttinda. Hlutafé félagsins verður því hækkað um kr. 23.333.331 og mun eftir hækkun standa í kr. 1.999.549.094 að nafnvirði, með útgáfu nýrra hluta. Heimild stjórnar til hlutafjárhækkunar á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV mun í kjölfar hækkunar vera 483.933.355 kr. að nafnvirði.

Hlutafjárhækkunin verður tilkynnt til og skráð af Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra og nýir hlutir verða gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og óskað verður eftir töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Tilkynning þessi er í samræmi við verklag sem félagið tilkynnti um þann 19. september 2019.

EN
20/08/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Kvika banki hf

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Merger between Kvika banki and Arion banki will not t...

Kvika banki hf.: Merger between Kvika banki and Arion banki will not take place The preliminary discussions between Kvika banki hf. and Arion banki hf. with the Competition Authority regarding the proposed merger have now concluded. Representatives of Kvika banki and Arion banki met with representatives of the Competition Authority today, during which the authority presented its position following the completion of the preliminary discussions process. In light of the position expressed by the Competition Authority at the meeting, the Boards of Directors of Kvika banki and Arion banki have...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Ekki verður af samruna Kviku banka og Arion banka

Kvika banki hf.: Ekki verður af samruna Kviku banka og Arion banka Forviðræðum Kviku banka og Arion banka við Samkeppniseftirlitið vegna samrunaáforma félaganna er lokið. Í dag funduðu fulltrúar Kviku banka og Arion banka með fulltrúum Samkeppniseftirlitsins sem kynnti afstöðu sína að loknum forviðræðum. Í ljósi þeirrar afstöðu Samkeppniseftirlitsins sem fram kom á fundinum telja stjórnir Kviku banka og Arion banka að ekki geti orðið af samruna félaganna. Stjórnir bankanna hafa því fallið frá samrunaáformum sem upplýst var um í tilkynningu til Kauphallar þann 6. júlí 2025.   Ármann ...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Announcement regarding reduction in share capital

Kvika banki hf.: Announcement regarding reduction in share capital At Kvika's AGM held on 18 March 2026 the meeting approved to reduce the company's share capital by ISK 301,000,000 nominal value, or the equivalent of 301,000,000 shares, from ISK 4,631,000,000 to ISK 4,330,000,000 nominal value, by cancelling own shares held by the company in the said amount, 301,000,000 shares. These are shares that the company purchased under a formal buy-back programme from last AGM. The share capital reduction has now been registed by the register of undertakings of the Directorate of internal Revenue...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Tilkynning um lækkun hlutafjár

Kvika banki hf.: Tilkynning um lækkun hlutafjár Á aðalfundi Kviku sem haldinn var þann 18. mars 2026 var samþykkt að lækka hlutafé félagsins um 301.000.000 kr. að nafnvirði, eða sem nemur 301.000.000 hlutum, úr 4.631.000.000 kr. í 4.330.000.000 kr. að nafnvirði, með ógildingu eigin hluta félagsins að 301.000.000 hlutum. Um er að ræða hluti sem voru keyptir samkvæmt formlegri endurkaupaáætlun frá síðasta aðalfundi. Hlutafjárlækkunin hefur nú verið skráð hjá fyrirtækjaskrá Skattsins og hlutafé félagsins stendur í kr. 4.330.000.000. Eftir lækkun á bankinn 7.236.463 eigin hluti. 

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Decisions of AGM

Kvika banki hf.: Decisions of AGM The Annual General Meeting of Kvika banki hf. was held on 18 March 2026 at Iceland Parliament Hotel. Attached are the main results of the meeting. Attachment

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch