Festi hf.: Endurkaup vika 27
Í 27. viku 2025 keypti Festi alls 165.000 eigin hluti fyrir 47.025.000 kr. eins og hér segir:
Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) |
27 | 30.6.2025 | 13:13:58 | 50.000 | 285,00 | 14.250.000 |
27 | 1.7.2025 | 11:13:07 | 40.000 | 285 | 11.400.000 |
27 | 2.7.2025 | 11:07:38 | 50.000 | 285 | 14.250.000 |
27 | 3.7.2025 | 10:14:39 | 25.000 | 285 | 7.125.000 |
165.000 | 47.025.000 |
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti Festi 246.226 hluti eða 0,08% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 165.000 eigin hluti fyrir 47.025.000 kr. og á í dag 411.226 hluti sem samsvarar 0,13% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 27. júní 2025 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 2.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,80% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 800 milljónir króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi hf. ().
